14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1938 í B-deild Alþingistíðinda. (1675)

Um þingsköp

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Milli kl. 5 og 6 í dag var boðaður fundur í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar. Fundurinn var boðaður kl. 9 í fyrramálið til að fjalla um frv. á þskj. 334 um nýtt viðmiðunarkerfi fyrir laun o. fl. Það er að vísu nokkuð óvenjulegt, ég skal ekki fullyrða að það finnist ekki fordæmi, að boðað sé til fundar til að fjalla um frv. áður en framsöguræða hefur verið flutt fyrir frv. í þeirri deild sem það er lagt fram í. Mér er kunnugt um að fundir hafa verið boðaðir, en þegar til fundar hefur verið komið hefur alloftast verið búið að kynna málið fyrir Alþingi.

Látum það vera. Ég geri ráð fyrir að hv. 3. þm. Austurl., formanni fjh.- og viðskn., veitist ekki erfitt að kynna nm. þetta frv., svo kunnugur sem hann er því, þannig að nm. missa kannske ekki af neinu þó að nefndarstörf hefjist áður en fyrir málinu hefur verið talað í deild. Hitt kom upp í huga minn, þegar ég hafði skoðað þetta frv., sem flutt er af forsrh., hvers konar frv. væri hér um að ræða. Ég kannaðist við að ráðherrar hefðu flutt frv. undir þeim kringumstæðum að það væri stjfrv. Ég minnist frv. um efnahagsmál, sem hæstv. núv. utanrrh. flutti þegar hann var forsrh. Hann flutti það þá í Ed., þar sem hann átti sæti, og ég minntist þess að hann gerði grein fyrir því þá að hér væri ekki um að ræða stjfrv., heldur flytti hann frv. sem þm. Ég minntist þess að menntmrh. ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar, Vilhjálmur Hjálmarsson, flutti frv. Það var um framhaldsskóla. Í stað þess að biðja nefnd þingsins að flytja frv. til að kynna það Alþingi, sem oft hefur verið gert, kaus ráðh. að flytja það með þessum hætti og gerði grein fyrir því að ekki hefði verið tekin afstaða til þess máls af ríkisstj.

Nú erum við í fyrramálið að fara á fund til að fjalla um frv. sem hæstv. forsrh. flytur og það er flutt hér í Nd. Sé þetta þmfrv., frv. hv. 8. þm. Reykv. Gunnars Thoroddsens, á að flytja þetta frv. í Ed. Sé þetta frv. hins vegar stjfrv. er það að vísu með nokkuð óvenjulegum hætti að það sé frá forsrh., nema ef vera skyldi að það væri frá forsrh. fyrir hönd allrar ríkisstj.

Mér var kunnugt um að ekki hefði náðst um þetta frv. samstaða. Það kom mér því á óvart, þegar ég gerði mér grein fyrir flutningi málsins, að það væri flutt hér í Nd. Ég hafði átt von á að það yrði flutt í Ed., þar sem hv. 8. þm. Reykv., hæstv. forsrh., á sæti. Til þess að vera viss um það, þegar ég mæti á fund í fyrramálið, hvort ég er að fjalla um frv. sem lögformlega er rétt lagt fram fyrir Alþingi eða hvort ég er að fjalla um frv. sem ætti að vera á fundum Ed. undir forustu forseta þeirrar deildar hv. 2. þm. Austurl. Helga Seljan, vil ég gjarnan spyrja forseta þessarar deildar þeirrar spurningar: Munum við í fyrramálið á fundi fjh.- og viðskn. fjalla um stjfrv. á þskj. 334 eða er hér um að ræða frv. sem hv. 8. þm. Reykv., hæstv. forsrh., flytur og því annarra að boða til þess fundar en þess sem boðaði mig á fund síðla í dag?