14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1940 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)

Um þingsköp

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Það er aðeins ein ósk sem ég hef fram að færa. Ég óska eftir því við hæstv. forseta, að hann láti okkur þm. í té sem allra fyrst, helst áður en fundur sá hefst í fjh.- og viðskn. neðri deildar sem boðaður hefur verið, hvort nokkur fordæmi séu fyrir því að ráðh. flytji frv. af þessu tagi í annarri deild en ráðh. á sæti í.