14.02.1983
Neðri deild: 39. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)
85. mál, efnahagsaðgerðir
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég leyfi mér að flytja tvær brtt. við frv. eins og það er eftir 2. umr. Þær eru báðar skriflegar og of seint fram komnar og ég leyfi mér að lesa þær, með leyfi forseta. Fyrri brtt. orðast svo:
„2. mgr. 3. gr. orðist svo:
Af útfluttum skreiðarafurðum skal þó aðeins draga 51/2% gengismun. Að öðru leyti kveður ríkisstj. nánar á um til hvaða afurða þetta ákvæði skuli taka og eru ákvarðanir hennar þar að lútandi fullnaðarúrskurðir.“
Þá flyt ég einnig brtt. við sama frv.. sem er svohljóðandi:
„1. 5. tölul. 4. gr. orðist svo:
Kr. 38 millj. renni í Stofnfjársjóð fiskiskipa til lækkunar á skuldum og/eða fjármagnskostnaði fiskiskipa samkv. reglum sem sjútvrn. setur, að höfðu samráði við stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands og Landssambands ísl. útvegsmanna.
2. Á eftir 5 tölul. 4. gr. komi nýr liður, sem verði 6. tölul., svohljóðandi:
Eftirstöðvum, ásamt vöxtum, skal ráðstafað samkv. nánari ákvörðun sjútvrn. í samráði við sjávarútvegsnefndir Alþingis.“
Þetta mál hefur verið allmikið rætt og skal ég ekki hafa um það mörg orð. Ég vil þó endurtaka að mér eru fyllilega ljósir greiðsluerfiðleikar skreiðarframleiðenda. Þeir liggja með mikið fjármagn í skreiðarbirgðum. Hins vegar sýnist mér það á allverulegum misskilningi byggt að afkoma skreiðarframleiðslunnar sé svo slök eins og skilja má á málflutningi hér. Ég vek athygli á því, að skreiðarframleiðendur eru með a. m. k. 40–50% afurðalán sem eru á 33% vöxtum. Þetta eru vissulega mjög hagkvæmir vextir á sama tíma og dollari hefur á ársgrundvelli hækkað um u. þ. b. 100%. Ég hef áður skýrt frá því hér, að þegar skreið fór úr landi á síðasta ári var ávöxtun eigin fjár í skreiðarbirgðum samkv. áætlun Þjóðhagsstofnunar 240%. Hér er ekki verið að leggja neinn skatt á skreiðarframleiðendur fyrr en afurðin er farin úr landi. Mér er fyllilega ljóst að margir skreiðarframleiðendur eru með það mikið fjármagn bundið í skreiðarbirgðum, að þeir hafa að sjálfsögðu orðið að útvega sér lánsfé annars staðar og margir kunna að vera með slíkt lánsfé á vanskilavöxtum. Engu að síður er töluvert, satt að segja ansi mikið, borð fyrir báru þegar þess er gætt hve drjúg ávöxtun eigin fjár í skreiðarbirgðum er.
Menn segja hér: Þetta er óviss peningur. Undir það hef ég tekið. Það verður bara að koma í ljós hvort þetta fjármagn fæst. Ég er sannfærður um að skreiðin fer úr landi. Svo hefur alltaf verið. Í 30 ár hefur það aldrei gerst að ekki hafi birt upp um síðir og skreiðin farið úr landi. Ég tel því óhætt að gera ráð fyrir ráðstöfun þess fjár sem hér er um að ræða í þágu hinna ýmsu greina sjávarútvegsins, bæði í Stofnfjársjóð fiskiskipa og annað þar sem þörf er brýnna ráðstafana til að bæta rekstrargrundvöllinn.
Eins og ég sagði, herra forseti, eru tillögur þessar of seint fram komnar og skriflegar og fer ég fram á að leitað verði afbrigða.