15.02.1983
Efri deild: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)

190. mál, orkulög

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967 með síðari breytingum. Meginmarkmið frv. þessa, sem felur í sér breytingu á orkulögum, er að tryggja opinbert eftirlit með verðlagningu á raforku og heitu vatni, sem selt er samkv. gjaldskrám.

Hinn 31. des. 1981 rann út gildistími verðstöðvunarákvæða í 1. gr, laga nr. 12 frá 30. apríl 1981, um verðlagsaðhald o. fl., en þau ákvæði giltu fyrir tímabilið frá 30. apríl 1981 til þess dags, án þess að önnur sams konar ákvæði kæmu í staðinn. Þessi ákvæði voru eins og kunnugt er hin nýjustu í röð verðstöðvunarákvæða samkv. sérstökum lögum í sambandi við sérstakar efnahagsráðstafanir. Voru næstu ákvæði á undan í 7. gr. laga nr. 121 30. des. 1978, um kjaramál, giltu þan frá 9. sept. 1978, en fengu síðan lokadaginn 1. maí 1981 með breytingu frá áramótum 1980/1981, er staðfest var með lögum nr. 10 frá 13. apríl 1981. Löggjöf af þessu tagi hefur verið hér í gildi með litlum undantekningum á annan áratug þannig að oftast tók ein við af annarri.

Frá því að ákvæðin um herta verðstöðvun féllu úr gildi hefur nokkurt misræmi skapast um opinbert eftirlit með breytingum á verðákvæðum í gjaldskrám orkufyrirtækja. Frá þeim tíma hefur Landsvirkjun ekki verið háð eftirliti yfirvalda með verðlagningu á orku. Í lögum nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, 2. gr., er tekið fram að lögin nái ekki til verðlagningar sem ákveðin er með sérstökum lögum. Í lögum um Landsvirkjun eru slík sérákvæði, en samkv. 2. mgr. 11. gr. landsvirkjunarlaga nr. 59/1965 er þó kveðið á um að stjórn Landsvirkjunar ákveði að fengnum tillögum Þjóðhagsstofnunar heildsöluverð Landsvirkjunar á raforku. Í 8. gr. laga um Laxárvirkjun er samhljóða ákvæði um að stjórn fyrirtækisins ákveði verð Laxárvirkjunar á raforku.

Breytingar á gjaldskrám annarra orkufyrirtækja eru hins vegar háðar staðfestingu ráðh. orkumála. Slík staðfesting er stjórnvaldsathöfn, sem háð er skilyrðum að lögum. M. a. þarf að birta hana í Stjórnartíðindum til að hún öðlist gildi.

Skilyrðið um staðfestingu ráðh. á gjaldskrá er nátengt einkaleyfisrétti fyrirtækjanna. Rétt hefur þótt að ríkisvaldið hafi ríkt eftirlit með starfsemi, sem það hefur veitt einkarétt til. Tilgangur opinbers eftirlits er m. a. að vernda rétt neytenda gegn hugsanlegri misnotkun einkaréttarhafa, t. d. vegna of hárrar gjaldtöku af seldri þjónustu. Jafnframt réttlætist opinbert eftirlit með gjaldskrármálum af nauðsyn þess að tryggja jafnrétti notenda sem kaupa orku frá sama orkufyrirtæki, en samkv. mismunandi ákvæðum í gjaldskrám, þannig að ákveðnum notendahópi sé ekki ívilnað umfram það sem eðlilegt má teljast vegna mismunandi notkunar t. d. er varðar nýtingartíma afls eða önnur atriði.

Ef litið er á þróun á raforkuverði Landsvirkjunar til almenningsveitna s. l. ár er ljóst að verulegt aðhald með verðlagningu raforku frá fyrirtækinu er nauðsynlegt. Rétt er að benda á að gjaldskrárhækkanir Landsvirkjunar til almenningsrafveitna hafa verið langt umfram verðlagsþróun s. l. þrjú ár, t. d. numið 594.1% á árunum 1980–1982 á sama tíma og byggingarvísitala hækkaði um 275%. Er þetta 85% umfram almennar verðlagsbreytingar á þessu þriggja ára tímabili.

Á árinu 1982 er talið að halli á rekstri Landsvirkjunar hafi, þrátt fyrir 119% hækkun gjaldskrár það ár, numið 147.5 millj, kr. Stjórn Landsvirkjunar telur þörf á nær 126% hækkun gjaldskrár í ár, þ. e. 29%, sem kom til framkvæmda samkv. ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar 1. febr. s, l., 29% sem stjórnin hefur áformað að komi til framkvæmda 1. maí n. k., 16.5% 1. ágúst n. k. og síðan 16.5% 1. nóv. n. k., til að ná nærri hallalausum rekstri á árunum 1982 og 1983 til samans. Þessar ráðgerðu hækkanir á raforku frá Landsvirkjun eru miðaðar við um 50% verðbólgu á þessu ári, sem eru forsendur sem óvissa er um.

Skýringar á þessum geigvænlegu verðhækkunum og hækkanaþörf eru margþættar, en þyngst vega ótvírætt óhagstæðir orkusölusamningar til stóriðjufyrirtækja svo og hár fjármagnskostnaður.

Þessar verðhækkanir koma að sjálfsögðu hart niður á almenningi í landinu, ekki síst þeim sem nota raforku til húshitunar, svo og á almennum atvinnurekstri. Jafnframt þrengist svigrúm til eðlilegrar álagningar hjá dreifiveitum raforku og er orkukaupahlutfall flestra þeirra orðið óeðlilega hár útgjaldaliður.

Rn. vefengir ekki nauðsyn þess að leitast verði við að tryggja hallalausan rekstur hjá Landsvirkjun, en hitt er jafnljóst, að með öllu er óverjandi að láta gjaldskrárhækkanir umfram almenna verðlagsþróun bitna áframhaldandi af fullum þunga á viðskiptavinum rafveitna í landinu. Til að hamla gegn þessari þróun hefur rn. knúið fast á um endurskoðun á samningum við ÍSAL, sem keypt hefur 45–50% af raforkuframleiðslu Landsvirkjunar undanfarin ár. Nú er til sérstakrar athugunar að ná fram leiðréttingu á orkuverði til álversins í Straumsvík, en leiðrétting á orkuverði til ÍSALs mundi geta dregið verulega úr hækkunarþörf gagnvart almenningsveitum. Þess má t. d. geta, að ef orkuverðið til ÍSALs og Áburðarverksmiðjunnar, sem greiðir sama orkuverð og álverið, hækkaði í 12.5 mills fyrir yfirstandandi ár mundu áætlaðar tekjur Landsvirkjunar aukast um 181 millj. kr.

Ég vil taka það fram, að orkuverðlagning til Áburðarverksmiðjunnar er auðvitað sérstakt mál, en er tekið hér reikningslega saman vegna þess að sömu ákvæði hafa gilt um þessa verðlagningu. En á það yrði að líta sérstaklega og orkuafhendingarskilyrði að sjálfsögðu öll önnur til þessara fyrirtækja í sambandi við kröfu til orkuafhendingar.

Tekjuaukning sem þessu næmi, um 180 millj. kr., mundi lækka áætlaðan heildargreiðsluhalla hjá Landsvirkjun fyrir árin 1982 og 1983 um 38%. Þar af leiðandi mundi áætluð þörf á hækkun orkuverðs til almenningsveitna á tímabilinu 1. febr. 1983 til 31. des. 1983 lækka úr 125.9% í 51.3%. Með þessu mundi 17.3% hækkun 1. maí 1983 tryggja greiðslujöfnuð fyrir 1982 og 1983 samanlagt.

Þessi hækkun upp í 12.5 mills er hér aðeins tekin sem dæmi um áfanga til að menn fái hugmynd um hvað hér er á ferðinni og hversu mikla þýðingu þessi orkusala hefur fyrir afkomu Landsvirkjunar. En ef slík hækkun næðist fram væri frekari hækkana ekki þörf á árinu til að jafna greiðslustöðu Landsvirkjunar, eins og hér var frá greint. Frv. þetta tekur þó ekki til verðákvæða varðandi orkusölu til stóriðju, enda mun það mál væntanlega koma til sérstakrar meðferðar innan tíðar.

Heildarendurskoðun orkulaga á vegum iðnrn. er nú um það bil að ljúka og er það mál raunar til meðferðar í ríkisstj. og hefur verið það um nokkurt skeið, þar sem fyrir liggja tillögur rn. um ýmis frumvörp sem varða heildarendurskoðun orkulaga. Ætla verður að heildarendurskoðun orkulaga taki nokkurn tíma og því er hér lagt fram frv. um þetta takmarkaða efni, sem vonast er til að afgreiða megi með skjótum hætti. Sú breyting, sem hér er lögð til, verður þá jafnframt tekin upp í frv. að endurskoðuðum orkulögum og felld að slíku frv. þegar það verður lagt fram.

Herra forseti. Ég tel ekki þörf á að orðlengja þetta hér frekar, en legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. iðnn.