15.02.1983
Efri deild: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)
190. mál, orkulög
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ræða hæstv. iðnrh. gefur mér tilefni til þess að víkja að henni nokkrum orðum. Ég vék að því að mér þætti einkennilegt að hér væri ekki haft það form á að flytja frv. til breytinga á lögum um Landsvirkjun vegna þess að það væru almenn ákvæði í orkulögum fyrir um þetta efni, eins og er tekið skýrt fram í grg. með frv. Hæstv. ráðh. gaf enga skýringu á því hvers vegna þessi leið er farin. Hæstv. ráðh. segir í grg. og sagði í ræðu sinni að öll önnur orkufyrirtæki en Landsvirkjun væru háð opinberu eftirliti um verðákvörðun. Ég spyr hæstv. ráðh. hvort hann geti núna við 1. umr. þessa máls svarað þessari einföldu spurningu, sem hlýtur að liggja ljóst fyrir í hans huga. Hvers vegna er þessi leið farin í stað þess að bera fram frv. um breytingu á landsvirkjunarlögunum?
Hæstv. ráðh. vék nokkrum orðum að því sem ég sagði um frv. það sem liggur fyrir um Landsvirkjun og samið hefur verið af eignaraðilum. Ég hélt því fram að frv. það, sem hér liggur fyrir, væri riftun af hans hálfu á því samkomulagi sem gert var þegar samið var frv. að nýjum lögum fyrir Landsvirkjun. Hæstv. ráðh. hefur ekki mótmælt þessu. Hann vék sér undan að ræða þetta atriði. sem er nú í mínum huga ekkert lítið atriði, og ég hygg að svo sé um fleiri. Hvað sagði hæstv. ráðh. um þetta efni? Hann sagði að frv. — og var þá að tala um þetta frv. að nýjum lögum um Landsvirkjun — gæti ekki bundið Alþingi. Hann viðhafði þau orð. Það var nú ekki mikil speki. Ég hygg að við getum allir skrifað undir þetta. Frv. bindur ekki Alþingi. En ef menn hafa gert samkomulag um þetta frv., um efni þess og annað frv. er borið fram á Alþingi, sem fer í bága við efni fyrri frv., þá er brotið samkomulag sem hefur verið gert. Þetta er mergurinn málsins. Hæstv. ráðh. hefur ekki neitað þessu. Ef hann getur neitað því, þá væri fróðlegt og rétt að hann gerði það beinum orðum, að þetta sé ekki rétt sem hér er sagt. Ef hann neitar því, þá munum við að sjálfsögðu gera ráðstafanir til þess að leiða hið sanna í ljós. Það verður sjálfsagt gert í nefndarstörfum. En það flýtir verkinu að heyra hvað hæstv. ráðh. segir um þetta efni. Ég spyr hann því um þetta.
Eitt er það sem hæstv. ráðh. vék að og var fólgið í þeirri staðhæfingu hans að það væri ekki verr farið með orkufyrirtæki í hans tíð heldur en hefði verið áður með tilliti til þess að farið væri eftir óskum þeirra um gjaldskrárhækkanir. Hæstv. ráðh. sagði þetta. Þetta segir í sjálfu sér ekki mikið og deilan stendur ekki um þetta. Ég held því fram að það sem hæstv. ráðh. hafi gert hafi hann ekki haft heimild til að gera. En það sem áður var gert var gert samkv. heimild í verðstöðvunarlögum. Hæstv. ráðh. talaði um ríkisstj. sem ég hefði stutt á árunum 1974–1978 og vildi meina að sú ríkisstj. hefði ekki að öllu farið eftir óskum orkufyrirtækjanna. Það er alveg rétt. En það er ekki það sem við erum að deila um eða er aðalatriði. Sú ríkisstj. hafði heimild í verðstöðvunarlögum. Þó að hæstv. ráðh. sé kokhraustur hér og láti sem hann hafi heimild, hafi ekkert gert heimildarlaust, þá heyrði ég ekki annað en hann segði í sinni ræðu að hann vildi taka af tvímæli, og notaði það orðalag, tvímæli um það. Um hvað? Hvort núgildandi lög heimiluðu honum þau afskipti af þessum málum sem hann hefur tekið sér? Hæstv. ráðh. mótmælir þessu sjálfsagt ef þetta er ekki réttur skilningur. En ef þetta er réttur skilningur, þá þykir mér sem hæstv. ráðh. efist kannske eitthvað um að hann hafi þá heimild sem hann hefur látið orð liggja að. Þetta gæti hæstv. ráðh. sjálfsagt skýrt betur.
Hæstv. ráðh. beindi þeirri spurningu til mín hvort ég teldi ekki rétt að stjórnvöld hefðu hönd í bagga með gjaldskrám eða afskipti af þeim málum. Ég svara þessari spurningu játandi. Ég hef ekki verið að mæla á móti þeim ákvæðum sem nú eru í orkulögum um þessi efni, síður en svo. Ég held að þau ákvæði séu alveg nægileg heimild fyrir ráðh., hver sem hann er, nema eitthvað sérstakt beri út af eða ástandið sé afbrigðilegt, þannig að setja þurfi sérstök verðstöðvunarlög. Ég hef ekki verið á móti verðstöðvunarlögum þó að þau gildi um orkuveitur jafnt sem aðra aðila. En hæstv. ráðh. er að gera fsp. til mín. Má ég í leiðinni spyrja hæstv. ráðh. hvers vegna hann hafi komið í veg fyrir hækkun á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur, eins og óskað hefur verið eftir. Vill hæstv. ráðh. svara þessu, gefa sínar skýringar á afstöðu sinni í þessu máli, varðandi þetta tiltekna orkufyrirtæki?
Hæstv. ráðh. vék að nefnd sem hann skipaði til að fjalla um fjáröflun til að jafna húshitunarkostnað og nýlega hefur skilað áliti. Það væri tilefni fyrir mig að ræða ítarlega um þetta nál. og þau mál, sem varða mestu þetta viðfangsefni, að jafna hitunarkostnaðinn í landinu. En ég skal ekki fara að gera það. Hv. 11. landsk. þm. vék að orkujöfnunargjaldinu. Ég vil aðeins í framhaldi af því og af því tilefni sem hæstv. ráðh. gaf mér með því að minnast á störf þessarar nefndar víkja aðeins nokkrum orðum að orkujöfnunargjaldinu.
Það hefur verið lagður skattur á með lögum nr. 12/1980, um orkujöfnunargjald, til þess að jafna upphitunarkostnað landsmanna. Það er alltaf óvinsælt að leggja skatt á. En stundum sjá menn gegnum fingur sér í þeim efnum, ef verið er að þjóna góðu málefni, og svo var þegar lögin um orkujöfnunargjald voru sett. En það hryggilega hefur skeð, að því fjármagni sem inn hefur komið við þessa skattlagningu hefur ekki verið varið í þeim tilgangi sem lögin gerðu ráð fyrir nema að mjög takmörkuðu leyti. Við sjálfstæðismenn höfum við afgreiðslu fjárlaga á undanförnum árum alltaf lagt til að þessu fjármagni yrði varið til jöfnunar á hitunarkostnaði eftir því sem með þyrfti. Tillögur okkar í þessu efni hafa alltaf verið felldar, þær hafa ekki náð fram að ganga. Og það hryggilegasta við þetta er það að þetta hefur verið gert undir stjórn hæstv. iðnrh. sem á sama tíma hefur sagt að hann vildi jöfnun. Ég vil ekkert vera að vefengja það að hæstv. ráðh. vilji jöfnun. En það er hryggilegt að hann skuli ekki hafa tekið forustu í því að landslögum væri framfylgt og því fjármagni sem hefur fengist með orkujöfnunargjaldinu sé varið á réttan hátt.
Hæstv. ráðh. sagði í sinni ræðu að ég hefði ekki sparað stóru orðin. Það er einmitt þegar manni verður hugsað til svona hluta að maður hefur tilhneigingu til að nota stóru orðin. Ég leyfi mér að gera það eftir því sem hugurinn býður.
Ég var að vona að þegar nefndin, sem skipuð var til að fjalla um fjáröflun til jöfnunar húshitunar, kæmi til starfa og mótaði sína niðurstöðu, þá yrði samkomulag um það að leggja til að orkujöfnunargjaldinu væri ráðstafað eins og lög gera ráð fyrir. En það varð ekki samkomulag um þetta og það er það alvarlega í þessu máli. Það virðist mér líka í samræmi við þá afstöðu sem hæstv. iðnrh. hefur tekið í raun. Og í staðinn fyrir að nota orkujöfnunargjaldið svo sem vera ber leggur meiri hl. n. til að lagður sé á nýr skattur til að mæta þeim útgjöldum sem ríkissjóður þarf að hafa af þessu máli umfram það sem notað er af orkujöfnunargjaldinu. En það er meginhluti fjármagnsins sem þyrfti að koma með nýjum skatti.
Eins og ég sagði áðan er skattlagning ekkert fagnaðarefni og verður ekki til þess að gera málstað okkar, sem viljum jöfnuð í þessu efni, auðveldari. Það verður ekki til þess að hjálpa okkur að ná árangri í þessum efnum að leggja til nýja skattlagningu án þess að nauður reki til. Það verður þvert á móti þessum málstað til trafala. Og það er hörmulegt að nefnd, sem á að gera raunhæfar tillögur um fjáröflun til að jafna hitunarkostnaðinn, skirrist við að leggja til að orkujöfnunargjaldið sé notað í þessu skyni, heldur leggi til að nýr skattur verði lagður á. Auk þess er tillögugerðin á þann veg, að mér kemur ekki til hugar að það sé raunhæf tillaga. Slík tillaga er til þess eins fallin að skemma góðan málstað í raun.
Ég vil hafa hér um sömu orð og ég hafði um hæstv. ráðh. áðan, að með þessu er ég ekki að segja að menn séu vísvitandi að gera tillögur til þess að skemma góðan málstað. Þeim mun hörmulegra er það að raunin skuli vera slík sem nú blasir við.
Mér þykir rétt, af því að hæstv. ráðh. vék sérstaklega að þessu nál. og afstöðu minni, að láta hér koma fram hver afstaða mín er og hver fyrirvarinn er sem ég geri í þessu nál. Hann er svohljóðandi með leyfi hæstv. forseta:
„Það er lagaskylda að ráðstafað sé fjármagni, sem aflað er með orkujöfnunargjaldi samkv. lögum nr. 12 frá 1980, eftir því sem með þarf til jöfnunar hitunarkostnaðar. Þess vegna er hvorki rétt né nauðsynlegt að leggja nýja skatta á til að mæta þessum þörfum, hvort heldur er orkuskattur eða söluskattur. Ráðagerðin um ráðstöfun hluta af auknum tekjum Landsvirkjunar af orkusölu til stóriðju er nú hvorki tímabær né raunhæf, enda koma þær tekjur í góðar þarfir engu að síður og raunar mest um vert að láta einskis ófreistað til að ná hækkun raforkuverðsins til Íslenska álfélagsins hf.“
Ég hef þegar vikið nokkrum orðum að fyrri hluta þessa fyrirvara. Síðari hlutinn veit að þeirri till. meiri hl. n. að framtíðarlausnin skuli vera sú, að ákveðnum hluta af því fjármagni sem kemur við hækkun á sölu orku til álversins verði varið í því skyni að jafna hitunarkostnaðinn. Ég tel, eins og ég segi í fyrirvara mínum, að slíkt sé hvorki tímabært né raunhæft og það er í raun og veru að hlaupast frá vandanum. Ég lít svo á að það sé forgangsverkefni, sem ekki megi hvika frá undir neinum kringumstæðum, að jafna hitunarkostnaðinn frá því sem nú er, hvort sem um nokkra hækkun væri að ræða á orkusölu til álversins eða ekki. M. ö. o., það eigi ekki að skilyrða jöfnun hitunarkostnaðar slíkri fjáröflunarleið.
Herra forseti. Ég hef vikið hér að meginatriðunum sem mér fannst ástæða til að víkja að í ræðu hæstv. iðnrh. Mér gefst tækifæri til að ræða málið nánar í þeirri nefnd sem fær málið til meðferðar. Þar er formaður hv. 3. þm. Vesturl. sem hér hefur talað. Í þeim fáu setningum sem hann sagði í þessari umr. kom hann að því að hann væri sammála frv. Það þykir mér harla einkennileg yfirlýsing af hálfu framsóknarmanna, ef líta má á það sem stefnu Framsfl. sem felst í slíkri yfirlýsingu eins og allt þetta mál er í pottinn búið.