15.02.1983
Neðri deild: 40. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1988 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)

195. mál, viðmiðunarkerfi fyrir laun

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Þegar rætt er um það frv. til l. um nýtt viðmiðunarkerfi sem nú er til umr. er ástæða til að rekja í örfáum orðum hvers vegna menn hafa talið nauðsynlegt að hafa slíkt kerfi. Eins og allir hér þekkja hefur vísitölukerfi fyrir laun stöðugt orðið víðtækara hér á landi með hverju ári og reyndar teygt arma sína til langtum fleiri þátta í efnahagslífi okkar en til launa einna. Má reyndar segja að flestallt sé orðið verðtryggt á einn máta eða annan. Verðtrygging launa er út af fyrir sig skiljanleg í verðbólguþjóðfélagi og vitanlega hefur slík verðtrygging vissa kosti. Ætla má að verðtrygging launa stuðli að meira friði á vinnumarkaðinum t. d. Sannarlega er skiljanlegur vilji launþega að verðtryggja sín kjör. Hinu verður þó ekki neitað, að verðtryggingarkerfi eða vísitölukerfi fylgja einnig ýmsir ókostir, sem svo glöggt hafa komið í ljós í okkar efnahagslífi. Verðtryggingarkerfi stuðlar að aukinni víxlverkun og skrúfugangi efnahagslífsins og verðbólgunnar og á örugglega mikinn þátt í þeirri miklu verðbólgu sem við eigum nú við að stríða.

Við Íslendingar erum ekki einir um að nota verðtryggingarkerfi launa og fleiri þátta í efnahagsmálum, en þær þjóðir voru þó langtum fleiri áður sem voru með slík kerfi. Staðreyndin er sú, að mjög víða hefur verðtrygging verið afnumin. Ég vek t. d. athygli á því, að það var gert í Finnlandi 1968 og hefur reyndar verið gert í hverju landinu eftir öðru, m, a. nú fyrir nokkru í Belgíu þar sem verðbólga er einna mest í efnahagsbandalagslöndunum. Menn hafa talið nauðsynlegt að afnema slíka verðbindingu vegna þeirra miklu áhrifa sem hún hefur á víxlverkun verðlags og launa og þar með á verðbólgu og einnig vegna þess að slík tengsl binda mjög hendur stjórnvalda til að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Við framsóknarmenn höfum ekki talið unnt að afnema verðtryggingu launa. Við höfum talið að slíkt mundi leiða til meiri ófarnaðar og óróa á vinnumarkaði, verkfalla og vinnudeilna. Það er skiljanlegt í svo mikilli verðbólgu sem við stríðum við. Við höfum hins vegar talið nauðsynlegt að reyna að draga úr víxlverkun verðlags og launa með breytingum á viðmiðunarkerfi og höfum beitt okkur fyrir því þegar við höfum haft til þess aðstöðu.

Ég vek athygli á efnahagslögunum frá 1979, þar sem gerð er nokkur breyting á viðmiðunarkerfi, m. a. ákveðið að viðskiptakjarafrádráttur skuli tekinn upp og þannig reyndar ráðist að einum oft gagnrýndum þætti þessarar verðtryggingarstefnu, sem oft hefur verið lýst þannig: er kaffi hækkar í Brasilíu hækka laun hér á landi. Með þessu varð þó aðeins lítið skref stigið og ljóst, þegar það var gert, að lengra þurfi að halda áfram á þeirri braut. Þess vegna lagði Framsfl. áherslu á það í síðustu kosningum og síðan við stjórnarmyndun, að viðmiðunarkerfið væri skoðað og lagfært áfram. Í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstj. hafa efnahagsmálin sérstöðu og er þar m. a. ákveðið að vísitölugrundvöllurinn skuli endurskoðaður. Öllum var ljóst að í tengslum við það hlaut að verða að endurskoða sjálft viðmiðunarkerfið. Þetta er síðan ítrekað í skýrslu ríkisstj. um aðgerðir í efnahagsmálum frá því í janúar 1982. Þar segir, með leyfi forseta, um nýtt viðmiðunarkerfi:

„Ríkisstj. mun nú þegar stofna til viðræðna við samtök launafólks og aðra hagsmunaaðila atvinnulífsins um viðmiðunarkerfi, sem gæti komið í stað núverandi vísitölukerfis og tryggt kaupmátt og jöfnun lífskjara, en væri laust við höfuðókosti þess kerfis, sem nú gildir. M. a. verði reynt a finna leið til þess, að ráðstafanir til að jafna orkukostnað landsmanna valdi ekki aukinni verðbólgu.“

Að þessari skýrslu stóðu að sjálfsögðu allir aðilar að ríkisstj. og varð um hana fullt samkomulag, m. a. stóðu Alþb.-menn að þessari ákvörðun og hafa tekið virkan þátt í endurskoðun á viðmiðunarkerfinu í samræmi við þá samþykkt sem gerð var í janúar. Allir aðilar að ríkisstj. hafa tilnefnt fulltrúa í svonefnda vísitölunefnd. Sú nefnd starfaði ötullega á síðasta ári, hélt marga fundi og ræddi við hagsmunaaðila. Ég verð því að segja að mér fannst það nokkuð undarlegt, sem mér heyrðist hæstv. félmrh. fullyrða hér áðan, að ekki hefði verið haft samráð við launþega um þessi mál. Vísitölunefndin hefur að sjálfsögðu hitt fulltrúa þeirra og fjallað við þá um þær breytingar sem hér er um að ræða.

Þessi mál voru einnig mikið til umræðu í ráðherranefnd um efnahagsmál, sem í áttu sæti hæstv. forsrh. og félmrh. auk mín. Ég hef ekki tölu á því hve oft var á þessi mál minnst þar, en það var mjög oft og eftir umr. í þeirri nefnd var ákveðið að vísitölunefnd ríkisstj. legði fram við hagsmunaaðila ákveðnar hugmyndir um breytingu á viðmiðunarkerfi. Frá þessum breytingum hefur verið greint og koma þær fram m. a. í grg. með því frv. sem nú er til umr. Þar segir á 3. síðu, með leyfi forseta:

„Í ágústmánuði voru ákveðnar hugmyndir lagðar fyrir hagsmunasamtökin. Þessar hugmyndir voru í eftirfarandi fimm liðum:

1. Miðað verði við hinn nýja grundvöll vísitölu framfærslukostnaðar.

2. Ný vísitala, lífskjaravísitala, verði grunnur að nýju viðmiðunarkerfi fyrir laun. Þessi vísitala reiknast út frá vísitölu framfærsluskostnaðar, auk þess sem tekið yrði tillit til breytinga á félagslegri þjónustu, útgjöldum til vegamála og tekjusköttum ríkisins á einstaklinga.

3. Búvörufrádráttur og meðferð áfengis- og tóbaksverðsbreytinga við útreikning verðbóta haldist óbreytt. Auk þess verði tekinn upp orkufrádráttur, þar sem breytingar á gjaldskrám raf- og hitaveitna verði dregnar frá hækkun eða lækkun framfærsluvísitölu við ákvörðun verðbóta.

4. Meðferð viðskiptakjara við útreikning verðbóta verði óbreytt.

5. Verðbætur greiðist á fjögurra eða sex mánaða fresti. Búvöruverð og fiskverð ákvarðist af sömu dagsetningum.“

Allir aðilar að ríkisstj. eða a. m. k. fulltrúar allra aðila í ráðherranefnd um efnahagsmál voru sammála um að vísitölunefnd ríkisstj. legði þessar hugmyndir fyrir hagsmunasamtökin eins og fram er tekið í grg. Og ég vil gjarnan taka undir þau orð hæstv. félmrh. og það er ljúft, að samstarf í ráðherranefnd um efnahagsmál um þessi atriði var gott. Ég tel að þar hafi allir lagt sig fram við að finna lausn á þessu máli, sem svo lengi hefur verið til umfjöllunar hjá hæstv. ríkisstj., og er hæstv. félmrh. ekki undanskilinn í því sambandi.

Um þessa hugmynd hefur síðan verið rætt í vísitölunefnd. Þar náðist ekki samkomulag eins og hv. alþm. þekkja. Nefndin klofnaði og lagði fram tvö álit. Tveir fulltrúar stóðu að áliti því sem frv. það sem nú er lagt fram byggir á, en einn fulltrúi, fulltrúi Alþb., lagði fram sérálit.

Í því sem ég las áðan kemur fram, að menn höfðu þá í huga, þegar ákveðið var að leggja þessar hugmyndir fyrir hagsmunasamtökin, að taka upp nýja vísitölu, svokallaða lífskjaravísitölu. Lífskjaravísitala er hugsuð þannig, að við útreikning hennar verði tekið annars vegar tillit til þeirra gjalda sem þegnar þjóðfélagsins greiða til hins opinbera og hins vegar til þess sem þeir fá fyrir þessi gjöld, beina og óbeina skatta. Ég get sagt fyrir mitt leyti, að mér leist vel á þessa hugmynd og fylgdi henni framan af. Við nánari athugun á framkvæmd komu hins vegar í ljós ýmsir annmarkar. Hvernig á t. d. að meta vegagerð, samdrátt eða aukna vegagerð, sem þá gæti leitt til launahækkunar eða lækkunar? Fjölmörg fleiri vafatilfelli urðu augljós og erfiðleikar í útfærslu á lífskjaravísitölu. Við gerð þessa frv. var því ákveðið að fallast á till. minni hl. í vísitölunefndinni, að í stað lífskjaravísitölu yrðu óbeinir skattar og niðurgreiðslur út úr vísitölunni tekin eða eins og í frv. er sagt: breytingar á óbeininum sköttum og gjöldum og breytingar á niðurgreiðslum vöruverðs hafi ekki áhrif á verðbótavísitölu.

Sá liður í þessum hugmyndum, sem fyrir hagsmunasamtökin voru lagðar, sem hins vegar ekki virðist samstaða um, er 5. liðurinn, þar sem segir:

„Verðbætur greiðist á 4 eða 6 mánaða fresti. Búvöruverð og fiskverð ákvarðist af sömu dagsetningum.“

Enginn ágreiningur er um það, en hins vegar um verðbótatímabilið, fjóra eða sex mánuði. Við framsóknarmenn gerðum það að okkar tillögu að verðbætur reiknuðust á 6 mánaða fresti. Við teljum að með því dragi enn mjög verulega úr víxlverkun verðlags og launa. Hins vegar var Alþb. því mótfallið og lagði áherslu á styttra verðbótatímabil, 4 mánuði og ekki lengra, og því var þetta orðað eins og ég hef lesið.

Ég er alveg sammála hæstv. félmrh. um að eðlilega ættu tímabilin að hefjast 1. jan. og síðan 1. maí o. s. frv. Við samningu þessa frv. þótti flm., hæstv. forsrh. og okkur öðrum sem að þessu standa, hins vegar rétt að byggja á því sem telja mátti næst viðhorfum hv. Alþb. manna. Því var ekki stigið lengra skref en að ákveða fjögurra mánaða tímabil nú þrátt fyrir að þá yrðu verðbætur greiddar, ef frv. er samþykkt, 1. apríl, en ekki 1. maí eins og æskilegra væri. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að vissulega orkar þetta tvímælis, en engu að; síður taldi ég mjög nauðsynlegt að ganga þannig til móts við þá yfirlýstu skoðun Alþb.-manna að verðbótatímabilið yrði a. m. k. ekki lengt í meira en 4 mánuði í þessum áfanga. Þetta veldur vissum vandræðum gagnvart búvöruverðsákvörðun, sem er eðlilegt að ákveða 1. sept. ár hvert frekar en 1. ágúst, og má vel vera að það mál þurfi sérstaklegrar athugunar við.

Segja má að þessi vinna í vísitölunefnd hafi að verulegu leyti farið fram á tímabilinu frá því að nefndin var skipuð eftir skýrslu ríkisstj. í jan. í fyrra og þar til efnahagsaðgerðir sáu dagsins ljós 21. ágúst, en þó má segja að í tengslum við efnahagsaðgerðirnar hafi verið hert á þessu máli mjög verulega, bæði með þeim hugmyndum sem lagðar voru fyrir hagsmunasamtökin og ég hef lesið og sömuleiðis með því ákvæði sem fylgir efnahagsaðgerðum og er talið fyrst af 21 atriði sem ríkisstj. ákvað að beita sér fyrir. Þar segir, með leyfi forseta:

„Til þess að ná þessum markmiðum hefur ríkisstj. sett brbl. um ráðstafanir í efnahagsmálum. Aðalefni brbl. er eftirfarandi,“ sem síðan er rakið í þremur liðum.

Þá segir:

„Auk þeirra aðgerða, sem ákveðnar hafa verið með brbl., hefur ríkisstj. ákveðið“— ég undirstrika það — ákveðið að standa að eftirfarandi:

1. Að undangengnum frekari viðræðum við aðila vinnumarkaðarins verði tekið upp nýtt viðmiðunarkerfi fyrir laun, með hliðsjón af hugmyndum viðræðunefndar um vísitölumál, þannig að verðbætur á laun verði greiddar samkv. nýju viðmiðunarkerfi eftir 1. des. 1982.“

Hér er beinlínis vísað í þær hugmyndir sem ég las áðan og fylgja í grg. með þessu frv. Þannig er þetta mál mjög ítarlega samtengt og samtvinnað.

Í öllu því sem ákveðið hefur verið í efnahagsmálum er vísitalan einn og óaðskiljanlegur þáttur af því sem þessi hæstv. ríkisstj. hefur sett sér og framkvæmt að verulegu leyti í efnahagsmálum. Hún hefur m. a. framkvæmt ýmsa þá þætti sem upp eru taldir í grg. með frv. til 1. um efnahagsaðgerðir. M. a. hefur orlof verið lengt, láglaunabætur ákveðnar og t. d. hefur innflutningur fiskiskipa verið stöðvaður í tvö ár. Fleira þess háttar mætti nefna, þótt rétt sé að önnur atriði hafa ekki komið til framkvæmda.

Í þessu sambandi hafa þeir hv. Alþb.-menn ítrekað nefnt að verðlagskerfi sjávarútvegsins hefur ekki verið tekið til endurskoðunar. Það er rétt, að ákvörðun um það var tekin í jan. í fyrra. Ég hef síðan rætt þetta við einstaka fulltrúa hagsmunaaðila og 20. ágúst s. l. lagði ég fram í ríkisstj. till. um nefnd til að endurskoða lög og reglur um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Ég hafði ekki fengið tilnefningar í þá nefnd þegar segja má að hv. Alþingi hafi tekið fram fyrir hendur okkar með ákvæði til bráðabirgða, sem samþ. var við lög um Olíusjóð o. fl., ákvæði sem ég studdi, þar sem gert er ráð fyrir að Alþingi kjósi fjóra menn, en sjútvrh. skipi þrjá fulltrúa hagsmunaaðila í nefnd til þess að endurskoða lög og reglur um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Ég vil því leyfa mér að fullyrða að þessi þáttur sé á réttri leið. Þetta er viðkvæmt mál, vil ég segja, og ber ekki að rasa um ráð fram. Margir eru mjög efins um að breyta eigi núverandi verðlagskerfi sjávarútvegsins, óttast að það kunni að leiða til ills.

Í þessu sambandi verð ég að vekja athygli á því, að frv. það, sem nú er verið að ræða um, nýtt viðmiðunarkerfi er ekki aðeins launþegum í landi viðkomandi. Að sjálfsögðu hefur það áhrif á alla verðákvörðun, bæði verðákvörðun Sexmannanefndar um búvöruverð, því að launaliður bóndans er ákveðinn þar með hliðsjón af verðbótum á laun, og það er að sjálfsögðu engin launung, þótt ekki sé það tengt saman með ákveðnum ákvæðum laga, að við ákvörðun á fiskverði hefur verið tekið tillit til og satt að segja mjög ákveðin hliðsjón höfð af þeim verðbótum sem ákveðnar hafa verið á laun. Þetta er alls ekki óeðlilegt, því að sjómaðurinn hlýtur að leggja áherslu á að tekjuaukning hans verði svipuð og launþega í landi, þ. e. tekjur hans verði tryggðar með vísitölu eða verðtryggingu á svipaðan máta, þótt svo sé ekki tiltekið í lögum. Ég held satt að segja að enginn geti gert ráð fyrir öðru.

Ég verð í þessu sambandi að lýsa nokkurri undrun minni á því, sem undanfarið hefur komið fram m. a. í fjölmiðlum, m. a. hjá einum hv. þm. Alþb., að í efnahagsmálum hafi samkomulag verið rofið með of mikilli hækkun fiskverðs um síðustu áramót. Með þessu er að sjálfsögðu aðeins verið að segja að sjómenn hafi fengið of mikla hækkun sinna tekna. Ég vil leyfa mér að vísa þessu á bug. Ég hef lagt hér fram á hinu háa Alþingi upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun sem sýna og sanna, að sjómenn hafa orðið fyrir mjög mikilli tekjuskerðingu vegna þess mikla aflabrests sem varð á síðasta ári — aflabrests sem nemur um það bil 16% af verðmæti sjávaraflans. Ef sjómenn áttu að halda svipuðum tekjum og launamenn í landi var ekki um annað að ræða en hækka fiskverð nokkuð meira en verðbætur á laun. Það var gert. Niðurstaða af athugunum Þjóðhagsstofnunar er sú, að tekjur sjómanna, t. d. miðað við tekjur verkamanna, þegar árið 1977 er lagt til grundvallar, eru mjög svipaðar. Nánar tiltekið áætlar Þjóðhagsstofnun að tekjur sjómanna séu nú á ársgrundvelli 101 miðað við 100 1977. En ég vek jafnframt athygli á því, að aflaleysi hefur nú í jan. því miður verið mjög mikið og veldur að sjálfsögðu miklum áhyggjum. Aflaleysi hefur jafnvel verið meira en gert var ráð fyrir í svartsýnustu spám, þannig að ég held satt að segja að enginn þurfi að öfunda sjómenn af tekjum þeirra. Þetta vildi ég láta koma fram í þessu sambandi, því að opinberlega hefur sú ákvörðun, sem gerð var um áramót um fiskverð, verið gagnrýnd.

Ég skal svo fara örfáum orðum um frv. sjálft. Ég þarf þó ekki að fara mörgum orðum um það. Ég tek undir það, sem komið hefur fram, að eðlilegt er að taka í notkun nýjan vísitölugrundvöll. Sá vísitölugrundvöllur, sem nú er byggt á, er orðinn mjög gamall og við getum kallað hann úreltan. Þar eru fjölmörg ákvæði sem alls ekki eiga nema stoð í raunveruleikanum í dag. Ef við erum á annað borð með útreikninga sem þessa er vitanlega rétt að hafa þá sem réttasta, a. m. k. grundvöllinn.

Um 2. gr. hef ég nokkuð rætt, þ. e. um tímabilið, og skal ekki endurtaka það.

4. gr. er í raun og veru viðamesta grein þessa frv. Í 4. gr. felast þær breytingar sem einna mikilvægastar eru. Í 4. gr. er m. a. gert ráð fyrir að við útreikning verðbótavísitölu skuli breyting á framfærsluvísitölu til lækkunar eða hækkunar í samræmi við þau áhrif, er leiðir af liðum sem þar eru eftir taldir, koma til frádráttar. Þar er mikilvægur liður breytingar á gjaldskrám raf- og hitaveitna. Þetta er nefnt ítrekað í þeim samþykktum sem ég hef nú rakið, bæði frá því í jan. í fyrra og í þeim hugmyndum sem lagðar voru fyrir hagsmunaaðila. Ástæður fyrir þessu eru raktar í grg. með frv. Eðlilegt er, þegar þjóðin gerir stórt átak á sviði orkumála, að þjóðin leggi meira eigið fjármagn til slíkra framkvæmda, ef ég má orða það svo, en verið hefur og verður þegar allt slíkt framlag leiðir til meiri verðbólgu í gegnum meiri launahækkanir. En ég vek jafnframt athygli á að nýi vísitölugrundvöllurinn dregur verulega úr áhrifum búvöruverðs eða úr þeim frádrætti sem felst í breytingum á búvöruverði, þannig að samtals verða áhrif búvöruverðs, áfengis- og tóbaksverðs og gjaldskráa raf- og hitaveitna mjög svipuð og eru í núverandi kerfi. Hér er því ekki um viðbótarfrádrátt í heild sinni að ræða. Ákaflega mikilvægt er jafnframt, að gert er ráð fyrir því í 4. gr. að breytingar á óbeinum sköttum og gjöldum og breytingar á niðurgreiðslu vöruverðs hafi ekki áhrif á útreikning verðbótavísitölu.

Ég endurtek: Hér er fylgt þeirri till. sem fram kom hjá fulltrúa Alþb. í vísitölunefndinni og má segja að þjóni svipuðum tilgangi og lífskjaravísitalan. Ég leyfi mér að fullyrða að launþegar séu á engan hátt hlunnfarnir með þessari ákvörðun. Ég held að mönnum hljóti að vera ljóst að skattar og gjöld renna til þjónustu við þegna landsins. Hér er um jöfnun að ræða, sem við viljum hafa um leið og við ákveðum að tryggja öllum þegnum þessa þjóðfélags sem líkust lífskjör með aðgangi að ýmiss konar þjónustu í heilsugæslu, menntun o. fl. Til slíks er þessum sköttum og gjöldum fyrst og fremst varið.

Þá er gert ráð fyrir að viðskiptakjarafrádráttur verði með sama hætti og nú er.

Hæstv. félmrh. rakti nokkuð áhrif þessara breytinga. Ég hef einnig slíka útreikninga frá Þjóðhagsstofnun. Það er rétt, sem hæstv. félmrh. upplýsti, að Þjóðhagsstofnun telur að áhrifin af þessu nýja viðmiðunarkerfi, þessu frv. ef að lögum verður, séu um það bil 5–6 prósentustigum minni verðbólga á ári. Ég geri ekki lítið úr þessum áhrifum. Ég tel allt það sem dregur eitthvað úr verðbólgunni ákaflega mikilvægt.

Það er einnig rétt, að Þjóðhagsstofnun hefur áætlað að kaupmáttarskerðing af þessum áhrifum geti orðið 1%. Ég vil hins vegar leyfa mér að fullyrða, að slíkur útreikningur er ákaflega mörgum fyrirvörum háður satt að segja. T. d. er ljóst að með lengingu verðbótatímabilsins koma hækkanir á t. d. opinberri þjónustu sem ákveðnar eru í lok tímabilsins síðar, og njóta launþegar þess að sjálfsögðu. Ég vil einnig leyfa mér að fullyrða, að það eitt að draga úr verðbólgu sé veruleg kjarabót. Og ég vek athygli á því, að árangursríkar aðgerðir ríkisstj. á árinu 1981 til að draga úr verðbólgu, þegar úr verðbólgu var dregið úr 60% í 40%, leiddu ekki til kaupmáttarskerðingar, þvert á móti, kaupmátturinn jókst, og var það vafalaust að þakka hagkvæmum áhrifum minni verðbólgu.

Ég vil svo segja það, að það veldur mér miklum vonbrigðum að Alþb. hefur ekki séð sér fært að standa að þessu frv., sem haft hefur svo mikla og ítarlega umfjöllun í okkar samstarfi. Ég get sagt að ég gerði mér ákveðnar vonir um að samkomulag næðist. Við framsóknarmenn höfum verið tilbúnir að teygja okkur langt til að svo gæti farið og höfum reyndar gert það t. d. með styttingu verðbótatímabilsins. Ég vil hins vegar leggja á það áherslu, að hér er um einn þátt í heildarsamkomulagi að ræða og vitanlega útilokað annað en við hann væri staðið. Því var ekki um annað að ræða að okkar mati en láta reyna á það á hinu háa Alþingi hvort slík breyting fæst samþykkt.

Ég skal ekki lengja þessar umr. með langri ræðu um efnahagsmálin. Hæstv. félmrh. kom nokkuð inn á þau og ég get fyrir mitt leyti tekið undir margt sem hann sagði. Ég get t. d. tekið undir að leggja verður mjög mikla áherslu á aukna framleiðslu. Það eru þar margir kostir góðir. Ég get fullyrt að innan sjávarútvegsins, t. d. með betri meðferð afla, betri gæðum og meiri gæðum o. s. frv., má ná verulegri framleiðsluverðmætisaukningu, og ég gæti einnig talið upp ýmsar iðngreinar, bæði orkufrekar og aðrar, sem byggðar eru meira á hugviti, sem áreiðanlega mundu stuðla að auknum hagvexti. Ég get einnig tekið undir það með hæstv. félmrh. að vinna þarf að sparnaði í opinberum rekstri. Sumt af því sem hann nefndi er svo sannarlega íhugunarvert og hefur verið til meðferðar, m. a. er Framkvæmdastofnun til athugunar hjá nefnd sem sett var á laggirnar fyrir alllöngu til að fjalla um hana.

En af því að Framkvæmdastofnun er sérstaklega nefnd vil ég þó leggja á það ríka áherslu að við getum ekki fylgt því að byggðastarfsemi eða starfsemi Framkvæmdastofnunar á sviði byggðamála verði lögð niður. Ég er sannfærður um að í þeim erfiðleikum sem nú eru munu byggðamálin verða ákaflega nauðsynleg. Ég er sannfærður um að þar má hvergi slaka á ef alvarleg byggðaröskun á ekki að verða. Ég er því á þeirri skoðun að efla þurfi byggðaþátt Framkvæmdastofnunar fremur en leggja stofnunina niður. Ég gæti kannske sagt, að byggðaþáttur þeirrar starfsemi þurfi að verða markvissari en hann hefur verið nú allra síðustu árin. Það hefur margt gott verið gert, en markvissari þarf hann að verða.

En ég vek einnig athygli á því, að um leið og við tölum um sparnað í ríkisrekstri verðum við að gæta okkur á því að þenja ekki út ýmsa þætti hans, sem taka stöðugt til sín meira og meira fjármagn. Ég veit að hæstv. heilbr.- og trmrh. hefur miklar áhyggjur af mikilli útþenslu þess kerfis, þ. e. heilbrigðis- og tryggingakerfisins, og hefur birt ýmsar upplýsingar um það. Áreiðanlega er mjög nauðsynlegt að sporna þar gegn um leið og nauðsynleg þjónusta og trygging er veitt öllum þegnum þessa lands í veikindum og slysatilfellum.

Um þetta allt mætti hafa langt mál, en ég stytti mitt mál. Ég legg á það áherslu að ég er sannfærður um að öll slík viðleitni er nánast til einskis ef okkur tekst ekki að draga úr verðbólgunni. Því miður verður engri hagræðingu svo vel sé komið við eða nýjar atvinnugreinar settar á fót nema mjög takist að draga úr verðbólgu á næstu mánuðum. Því er ég sannfærður um að það hlýtur að verða forgangsverkefni þeirra sem taka við stjórn að draga úr verðbólgu. Ég ætla ekki að kenna einum eða neinum um að okkur hefur ekki tekist að draga meira úr verðbólgu en raun ber vitni. Það er staðreynd að verðbólga er allt of mikil, margt stuðlar að því. Ég vil þó vekja athygli á því, að mjög vel tókst 1981 og ég vil leggja á það áherslu að við áttum að halda áfram á þeirri braut. Ég tel reyndar, að eitt hið alvarlegasta sem nefna má og telja má ástæðu fyrir því að ekki hefur tekist að draga meira úr verðbólgu nú sé sá langi dráttur sem varð á því að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum ráðstöfunum í efnahagsmálum á s. l. ári, eftir að ljóst var hvert stefndi vegna aflabrests og fleira.

Ég er tilbúinn að ræða þau mál síðar og er mjög nauðsynlegt að þau mál séu rædd, en legg áherslu á að úr verðbólgunni verður að draga, og það frv. sem hér er til meðferðar stuðlar að því og er að því leyti mikilvægt. Hér er ekki um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, heldur varanlega ráðstöfun sem jafnt og þétt mun draga úr víxlverkun verðlags og launa og þar með úr verðbólgunni.