15.02.1983
Sameinað þing: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2009 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)

192. mál, langtímaáætlun í vegagerð

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Vorið 1981 samþykkti hið háa Alþingi till. til þál. um langtímaáætlun í vegagerð. Þykir mér rétt að lesa efni hennar. Þar segir með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta Vegagerð ríkisins gera í samráði við fulltrúa þingflokkanna langtímaáætlun um framkvæmdir í nýbyggingum vega og brúa á stofnbrautum og þjóðbrautum.

Fjárhagslegar forsendur áætlunarinnar séu þær, að 2.2% af vergri þjóðarframleiðslu sé að meðaltali varið til vegagerðar samkv. vegáætlun. Hlutfall þetta ber að skoða sem lágmark, en það skal aukið í 2.4% innan þriggja ára, og skal áætlunin þannig úr garði gerð að auka megi framkvæmdahraða ef meira fjármagn kemur til en hér er gert ráð fyrir. Skal það m. a. gert með því að taka fyrir langa og heillega vegarkafla.

Áætlunartíminn skal vera 12 ár og skal framkvæmdum skipt niður í þrjú tímabil, 4 ár hvert. Jafnframt skal gerð grein fyrir því í áætluninni hverjar framkvæmdir eru eftir til að koma vegakerfinu í viðunandi horf, eins og það er metið á hverjum tíma. Langtímaáætlun þessi skal endurskoðuð fjórða hvert ár og þá bætt við nýju fjögurra ára tímabili í stað þess er lauk.

Við gerð áætlunarinnar skal stefnt að eftirfarandi jafngildum markmiðum:

1. Vegir hafi fullt burðarþol (10 tonn) allt árið.

2. Vegir séu byggðir upp úr snjó eftir því sem unnt er.

3. Bundið slittag sé lagt á vegi, þar sem gera má ráð fyrir að umferð verði meiri en 100 bílar á dag allt árið, þegar viðkomandi vegur hefur verið fullgerður. Ennfremur skal leggja slitlög á vegarkafla næst þéttbýliskjörnum, þó að umferð sé minni, og á vegarkafla sem yrðu óhóflega dýrir í viðhaldi sem malarvegir vegna skorts á hentugu malarefni. Stefnt skal að því að bundið slitlag verði lagt á a. m. k. 1/4 hluta stofnbrauta í hverju kjördæmi og samfelldir kaflar í vegakerfinu verði lagðir bundnu slitlagi.

4. Tekið sé tillit til umferðaröryggis við uppbyggingu vega.

Áætlun þessi skal lögð fyrir Alþingi eigi síðar en vorið 1982.“

Eins og ég hef áður greint frá var slík áætlun lögð fyrir Alþingi vorið 1982. Sú áætlun var unnin af Vegagerð ríkisins í samvinnu við samgrn., samgrh. og nefnd, sem í áttu sæti fulltrúar þingflokkanna, eftirtaldir hv. þm.: Guðmundur Bjarnason, Magnús H. Magnússon, Matthías Bjarnason og Skúli Alexandersson. Þessir hv. þm. áttu mjög marga fundi með Vegagerðinni. Vil ég lýsa sérstakri ánægju með það mikla starf sem þeir inntu af hendi, sem var ákaflega mikilvægt til þess að samræma hin ýmsu sjónarmið, sem að sjálfsögðu eru breytileg, kannske ekki svo mikið á milli þingflokka, en fremur innan allra þingflokka milli þéttbýlis og dreifbýlis o. s. frv. Þessir hv. þm. urðu tengiliðir við þingflokkana og er það von mín að m. a. af þeirri ástæðu eigi sú langtímaáætlun, sem ég nú mæli fyrir, greiðan gang í gegnum þingið.

Fljótlega varð ljóst að þetta verkefni er viðamikið.

Var því ákveðið að leggja áherslu á stofnbrautir. Stofnbrautir í landinu eru áætlaðar 3 750 km um það bit. Ein ástæðan fyrir því að þetta var gert er sú, að Vegagerð ríkisins hafði þegar á árinu 1978 hafið mjög ítarlega úttekt á stofnbrautum landsins. Því var sá flokkur þjóðvegakerfisins stórum aðgengilegri en þjóðvegakerfið í heild sinni, enda satt að segja um mjög stóran þátt þess að ræða. Í þeirri úttekt sem hófst 1978 var ástand vega metið og hverjum vegarkafla gefin stig. Þyngst á metunum eru þar burðarþol, snjóþyngsli og slys, sem samtals gefa 20 stig af 32 mögulegum. Með þessari úttekt er þá unnt að vinna áætlun um gerð þessara vega eða fullkomnun þessara vega miklu nákvæmar og áreiðanlegar en áður hefur verið gert. M. a. er unnt að tölvuvinna slíka áætlun. En samtímis þessu hefur verið unnið að úttekt á ástandi þjóðbrauta og þörfum þeirra fyrir úrbætur. Í þessari áætlun er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að töluvert verði unnið á þjóðbrautum.

Í áætluninni er framkvæmdum raðað á tímabil. Hafa þm. einstakra kjördæma annast þá röðun innan sinna kjördæma ásamt starfsmönnum Vegagerðarinnar. Má segja að nokkur forvinna sé þegar orðin af þeirri vinnu sem venjulega fer fram hér á Alþingi í sambandi við vegáætlun, sem ég reyndar minntist á áðan. Við vinnu nefndarinnar kom í ljós að nokkrar lagabreytingar eru nauðsynlegar, þ. e. tvær á vegalögum. Ég nefndi þær áðan og skal því ekki lengja tímann með því að fjalla ítarlega um þær. Þar er um að ræða breytingu á ákvæðum vegalaga um fjármagn til þjóðvega í þéttbýli og hins vegar um skilgreiningu á stofnbrautum. Hvort tveggja rakti ég áðan.

Í grg. með langtímaáætlun er að finna margvíslegar upplýsingar, m. a. um ástand stofnbrauta, sem hér er rakið í töflu og byggt er á í þeirri úttekt sem ég nefndi áðan og þeirri stigagjöf sem ég drap lauslega á. Hér kemur einnig fram að kostnaður við úrbætur þær á stofnbrautum sem áætlunin gerir ráð fyrir á verðlagi 1983 er 6 milljarðar 697 millj. kr. Til frádráttar því eru framkvæmdir upp á 784 millj. kr., sem falla innan þessarar langtímaáætlunar, þ. e. eru framkvæmdar eftir þá úttekt sem fór fram á árunum 1978–1979, þannig að sé þetta dregið frá, þá er gert ráð fyrir að ráðstafa hér 5 milljörðum 913 millj. kr. til þess að koma vegakerfi landsins í það horf sem langtímaáætlunin gerir ráð fyrir og byggt er á fyrrnefndri úttekt á vegakerfinu 1978/1979.

Hér er einnig fjallað um arðsemi framkvæmda, sem ég vil segja fyrir mitt leyti að er alltaf nokkrum efasemdum háð. Það er ákaflega erfitt að meta nákvæmlega nauðsyn vegarkafla. Meta má arðsemi eftir umferðarþunga o. s. frv., en vegur kann að vera nauðsynlegur byggð þótt um hann fari örfáar bifreiðar og arðsemin þannig reiknist mjög lítil. Þess vegna fagnaði ég því þegar nefndin varð ásátt um að líta einnig á félagslegar þarfir og vega þær og meta nokkuð í þessari langtímaáætlun, eins og fram kemur.

Í áætluninni er, eins og fyrr segir, öllum framkvæmdum skipt á þrjú tímabil. Þar fá að sjálfsögðu ekki allir sitt á fyrsta ári. Hér er um að ræða mjög vandasamt mat, eins og reyndar kom fram í ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals hér áðan. Hv. þm. telur að ákveðinn vegur sé tekinn of seint. En það er nú einu sinni svo að ekki komast allir á fyrsta tímabil, þegar um miklar framkvæmdir er að ræða, og tímabilin eru þrjú. Ég hef ekki haft afskipti af þessari skiptingu. Eins og fyrr kom fram í mínum orðum hafa þm. kjördæma fjallað um þetta. Í mínu kjördæmi áttum við sannarlega í miklum erfiðleikum með niðurröðun og mér er ljóst að þm. annarra kjördæma hafa átt það ekki síður. Ég vil hins vegar endurtaka að á tiltölulega skömmum tíma, á nokkrum erfiðum fundum komu þm. kjördæma sér saman um þessa niðurröðun framkvæmda, og það er vitanlega ákaflega mikilvægt að hún riðlist ekki. Með þessu eru framkvæmdirnar bundnar og nauðsynlegt að á hverju tímabili sé unnið innan þeirra marka sem þar eru sett.

Hér kom fram áðan í ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals við værum vanir því að áætlanir riðlist. Því miður er þetta satt að mörgu leyti og má enn einu sinni kenna þar verðbólgu um. Mönnum hættir til að áætla verðlagsbreytingar minni en þær svo verða. Í þessari langtímaáætlun er reynt að sjá við þessu með því að hafa óráðstafað 20% fjármagn. Gert er ráð fyrir því að þetta verði, eins og ég orðaði áður í sambandi við vegáætlun, stuðpúði gegn verðhækkunum. Og eins og ég vakti einnig athygli á áðan tel ég að í þeirri vegáætlun, sem afgreidd var til nefndar nú, hafi það sýnt sig að þessi stuðpúði er mikilvægur. Að vísu varð að draga úr óráðstöfuðu fjármagni úr 20% í 8%, en á þennan máta telur Vegagerðin að takast megi að standa við þær framkvæmdir sem á áætluninni eru.

Ég vek athygli á því að með þessari áætlun hef ég látið prenta nokkur kort, sem gefa allgóða yfirsýn yfir þær framkvæmdir sem hér um ræðir, í fyrsta lagi um bundið slitlag. Kemur þar fram á mynd 2 að bundið slitlag í árslok 1982 er um það bil 650 km. Jafnframt eru sýndir þar í bláum lit uppbyggðir malarvegir. Ég hygg að mönnum muni satt að segja þykja nokkuð undarlegt hvað bláu strikin eru fá. En staðreyndin er sú, að fullundirbúnir og uppbyggðir malarvegir eru satt að segja mjög af skornum skammti og það m. a. hefur valdið því, að kostnaður við lagningu bundins slitlags hefur reynst meiri en menn hafa gert ráð fyrir. Undirbúningur er meiri. Á mynd 3 kemur fram að í árslok 1986 er áætlað að bundið slitlag verði orðið um 1 140 km. Sömuleiðis hafa uppbyggðir malarvegir þá aukist verulega. Nú vil ég geta þess í framhaldi af því sem ég sagði um uppbyggða malarvegi, að hér er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að þeir fullnægi þá ákvæðum þál. um langtímaáætlun með slitlag, burðarþol o. s. frv. eins og þar kemur fram.

Á mynd 4 er sýnt bundið slitlag í árslok 1990. Þar kemur í ljós að bundið slitlag samkv. þessari áætlun er áætlað 1 750 km og yrði orðið næstum því samfellt í Skagafjörð og síðan samfellt um Norðurland eystra og um Suðurland ásamt verulegum vegarköflum bæði á Austfjörðum og Vestfjörðum, sem þó eru meira í kringum þéttbýliskjarnana. Loks er sýnt á mynd 5 bundið slitlag á stofnbrautum og þjóðbrautum. Áætlað er að þá verði bundið slittag orðið 3 140 km. Mynd 1, sem hér er fremst, sýnir hins vegar þessar framkvæmdir í lok tímabilsins á stofnbrautum einum, bæði bundið slitlag 2 520 km og uppbyggða malarvegi, miðað við að náð verði þeim áfanga sem þáltill. gerir ráð fyrir, bæði varðandi bundið slitlag og stofnbrautir að öðru leyti.

Ég tel fyrir mitt leyti að samþykkt Alþingis frá vorinu 1981 marki mjög mikil tímamót í vegagerð. Það hefur sýnt sig að þær stóru framkvæmdir sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum taka lengri tíma en ein vegáætlun og því nauðsynlegt að líta til lengri tíma. Einnig eru kröfur allar um betri vegi stöðugt háværari með meiri bifreiðaeign landsmanna og því eðlilegt að menn vilji sjá hvenær röðin kemur að þeim, ef ég má orða það svo, og það verður vitanlega stórum betur gert í 12 ára áætlun heldur en fjögurra ára áætlun. Ég tel einnig að okkur beri skylda til að koma vegakerfinu í viðunandi horf. Við höfum á ýmsan máta stuðlað að því að bifreiðaeignin er svona mikil. Þeirri miklu eign verður að halda við og það verður best gert með góðum vegum. Ég vil leyfa mér að vona að þessi langtímaáætlun í vegagerð geti fylgt þeirri vegáætlun sem ég mælti fyrir áðan og vísað var til hv. fjvn., þannig að vegamálunum sé þá markaður mjög ákveðinn farvegur á næstu árum, ekki aðeins til fjögurra ára heldur einnig til 12 ára.

Að þessum orðum loknum vil ég leggja til að að lokinni þessari umr. verði till. til þál. um langtímaáætlun í vegagerð vísað til 2. umr. og hv. fjvn.