16.02.1983
Sameinað þing: 52. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1770)
Umræður utan dagskrár
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Hér hafa mörg orð fallið frá því að ég lauk máli mínu áðan. Þyrfti drjúgan tíma til þess að víkja að því, ef gera ætti því skil, svara þeim sjónarmiðum sem svaraverð eru og leiðrétta ýmsar rangfærslur. Lítill tími er því miður til þess.
Hv. 12. þm. Reykv. tel ég út af fyrir sig ekki mikla þörf á að eiga langar orðræður við. Við höfum þegar gert okkar mál upp í orði nokkuð skýrt og þjóðin getur dæmt um okkar málstað. Ég vek þó athygli á því að þessi hv. þm., sem er að reikna það fyrir sjálfan sig og inn í dagblöð að það kosti milljón á mánuði að ég skuli sinna þessu máli, það væri hægt að fá millj. á mánuði meir með 15 mill í orkuverð, sami hv. þm. vill setjast að samningaborði skilyrðislaust við Alusuisse. Hann segir það hér alveg ákveðið að það sé auðvitað algerlega óvíst um hvaða niðurstaða yrði. Það sé svo langt frá því að það sé þrautreynt með samninga að hans mati. Hann hefur nógan tíma til þess að þæfa þetta mál ef hann fengi að ráða og þá geta menn haldið áfram að gera reikningsdæmi hv. þm. upp.
Ég vil nefna það vegna orða hæstv. sjútvrh. hér áðan, að ákvörðun um uppgjör skatta, endurákvörðun framleiðslugjalds hafi komið ríkisstj. á óvart eða í opna skjöldu, að það getur ekki verið. Á ríkisstjórnarfundi þann 3. febr., ríkisstjórnarfundinum þar sem hæstv. sjútvrh. og aðrir ráðh. Framsfl. höfnuðu tillögum mínum um einhliða aðgerðir með lagasetningu hér á Alþingi til hækkunar á raforkuverði, á þeim sama fundi greindi ég frá því að ég teldi eðlilegt og sjálfsagt, í þeirri stöðu sem málið væri nú, að skattar yrðu endurákvarðaðir varðandi þau ár sem óuppgerð væru og ég mundi gera tillögur þar að lútandi, sem ég síðan gerði með bréfi til fjmrn., sem tók málið til ákvörðunar með þeim hætti sem hér hefur verið greint frá.
Í þessum umr. hefur það komið mjög skýrt fram, hversu ólíkt mat þeirra sem hér hafa talað er á málinu og stöðu okkar Íslendinga. Það hefur t. d. komið fram hjá hæstv. sjútvrh. og hv. 12. þm. Reykv. að þeir vilji bara ganga beint inn á þann grundvöll sem Alusuisse lagði hér fyrir íslensk stjórnvöld 10. nóv. s. l. Það er ekkert annað. Þeir eru bara reiðubúnir til að ganga inn á þennan grundvöll. (Gripið fram í: Það er ekki rétt.) Því hafa þeir lýst hér æ ofan í æ í þessum umr. að það séu þeir reiðubúnir til að gera. Það hljóta að vakna hjá hv. alþm. spurningar um það, hvernig þessi grundvöllur Alusuisse sé til orðinn.
Ég vil líka minna á það, af því að hæstv. sjútvrh. talaði um að ekki hefði verið ráðherranefnd starfandi nema fram á vor 1981, að við ráðh., forsrh., sjútvrh. og ég, bárum okkur oft og ítrekað saman um þetta mál á liðnum mánuðum, í nóvembermánuði, í desembermánuði 1982, í janúarmánuði 1983, en hæstv. sjútvrh. metur það ekki vera ráðherranefnd nema hann fái að tala öðrum tungum en ég í beinum viðræðum við Alusuisse. Það er hins vegar ekki vænleg málsmeðferð og með henni hef ég, ekki mælt.
Ég vil svo segja það að lokum, herra forseti, að hér er hafður uppi hræðsluáróður Alusuisse í vil til þess að styrkja stöðu Alusuisse, hræðsluáróður um það hvað gerast mundi ef íslensk stjórnvöld, ef íslenskt löggjafarvald mundi sækja sinn rétt gagnvart fyrirtækinu. Það er verið að mála upp myndir af því hvað muni gerast. Þeir muni lýsa sig óbundna af samningum. Þeir muni jafnvel loka álverinu, 700 manns muni missa atvinnuna. Ég held að það sé kannske ekki þörf á því fyrir mig að taka það fram hér, en ég geri það samt, að til slíks mundi að sjálfsögðu aldrei verða látið koma. Viðbrögð af því tagi sem hæstv. ráðh. og aðrir talsmenn sýndu hér, þ. á m. hv. 2. þm. Reykn., og ég get út af fyrir sig skilið áhyggjur hans, þau sjónarmið eru ástæðulaus vegna þess að iðnrn. hefur að sjálfsögðu tekið þessi mál til athugunar við undirbúning sinn um einhliða ákvarðanir, einnig varðandi raforkuverð, og hefur tryggingu fyrir því að hvorki þarf að koma til stöðvunar á rekstri álversins né menn þar að missa atvinnu, né heldur Íslendingar að verða fyrir tjóni af því, þó að sá rekstur yrði á okkar hendi á meðan verið er að gera málin upp. Þetta tel ég rétt að hér komi fram vegna þess sem menn hafa sagt í þessa átt.
Ég læt, herra forseti, þetta nægja. Hér hefur margt mjög athyglisvert komið fram. Eflaust verður tækifæri til að ræða það nánar hér á hv. Alþingi. Ég tel að sú ákvörðun sem nú hefur verið tekin af fjmrn. :um endurákvörðun framleiðslugjalds, hækkun þess um 80.5% miðað við tímabilið 1975–1980, hafi verið eðlilegt skref, skref til þess fallið að styrkja stöðu Íslands í málinu, enda tekið að fengnum ráðum færustu manna á þessu sviði, innlendra manna og erlendra ráðgjafa, sem meta það svo, að þetta skref sé eðlilegt þegar það liggur fyrir að Alusuisse hefur ekki áhuga á því að verða við sanngirniskröfum Íslendinga.