16.02.1983
Efri deild: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (1778)
198. mál, fjáröflun til vegagerðar
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. fjmrh. er frv. þetta byggt á tillögum nefndar sem skilaði áliti í nóv. 1981. Ég skipaði þá nefnd fulltrúum frá m. a. fjmrn., samgrn., vegagerð o. fl. Nefndin varð sammála um að leggja til að tilfærsla yrði frá ríkissjóði í það sem við höfum nú venjulega nefnt Vegasjóð, sem að vísu er ekki til á lögum, sem sagt beint í vegagerð. Um þetta náðist samkomulag og varð til þess, að á s. l. ári voru tollar lækkaðir, eins og kom fram hjá hæstv. fjmrh., í tvígang á bifreiðum. Nú er hér lögð til tekjuöflun í fullu samræmi við það, þ. e. að sama upphæð, 120 millj. kr., eins og segir í 1. gr., á að renna óskipt til vegagerðar. Ég stóð fyrst og fremst upp til að undirstrika það.
Það kom fram hjá hv. 5. landsk. þm. að oft hefði slíku verið lofað, en ekki alltaf staðið við það. Skal ég út af fyrir sig ekkert um það segja. En ég vona að í 1. gr. sé það dyggilega frá þessum málum gengið að það verði ekki rofið, hverjir sem verða við stjórnvöl. Ég vildi sem sagt standa hér upp til að undirstrika að þetta fjármagn á að renna óskipt til vegagerðar. Það var fullt samkomulag um það við hæstv. fjmrh. og í ríkisstj. að standa þannig að tilfærslu á tekjum ríkissjóðs til vegagerðar.
Nú vil ég segja það út af því sem hv. 5. þm. Vesturl. sagði hér áðan, að ég tel að hann hafi gefið réttmætar ábendingar og nauðsynlegt sé að nefndin skoði þær. Ég vil leggja til að nefndin kveðji til sín þá menn sem hafa nú unnið mest í þessu máli og sátu í þeirri nefnd sem hér hefur verið tilgreind. Ég veit að þm. fengu í fyrra skýrslur nefndarinnar, en ég get að sjálfsögðu útvegað þær að nýju. Ég held að það væri æskilegt að ræða um svona atriði við þá menn. Þetta eru tæknimenn á þessu sviði.
Ég skal ekki fara að eiga orðaskipti hér aftur við hv. 11. landsk. þm. Við ræddum þessi mál í gær í Sþ. Ég vil hins vegar lýsa furðu minni á því þegar hann segir að ég hafi sagt að langtímaáætlun í vegagerð væri í raun og veru 20 ára áætlun. Það er ekki. Það er 12 ára áætlun. Ég nefndi það í gær að bæði nefndin og aðrir sem að þessari langtímaáætlun unnu voru sammála um að því yrði ekki komið við að ljúka framkvæmdum við stofnbrautir og þjóðbrautir á 10–12 árum, eins og menn kannske gerðu sér vonir um á sínum tíma, nema með miklu meiri fjáröflun. Undirbúningi undir slíka áætlanagerð fyrir þjóðbrautirnar er ekki heldur það langt á veg komið, því miður. Það er allt annað með stofnbrautir. Úttekt á stofnbrautum hófst 1978 og var unnið að henni 1978, 1979 og árin þar á eftir. Þess vegna er unnt að leggja fram langtímaáætlun um stofnbrautir. Úttekt fyrir þjóðbrautir er nú í gangi, en er því miður miklu skemmra á veg komin. Þar eru kílómetrarnir miklu fleiri og þar eru vegir lakari og langtum erfiðara að áætla, eins og gert er með stofnbrautirnar, án þess að afla betri upplýsinga á staðnum. Ég held að menn verði að skilja þetta.
Það stendur ekki á mér að auka enn meira fjármagn til vegagerðar. Ég vil hins vegar vekja athygli á því, að 2.2% þjóðarframleiðslu nú, 2.3% á árinu 1984 og svo 2.4% eru ekki litið þegar litið er á það sem farið hefur til vegagerðar í tíð ýmissa ríkisstjórna á undanförnum áratugum. T. d. var meðaltalið á 10 árum fram til 1982 1.85% þjóðarframleiðslu. Hæst komst þessi tala þegar brúin yfir Skeiðará og vegurinn yfir sandana voru gerð. Þá komst hlutfallið upp í 2.35% af þjóðarframleiðslu, en það var aðeins eitt ár og meðaltalið samt ekki hærra en 1.85%. Og ég ætla ekkert að fara að kenna einni ríkisstjórn eða annarri um. Þetta fór niður í 1.55% af þjóðarframleiðslu. Hv. þm. mætti athuga hverjir voru þá við stjórn.
Hér er verið að gera myndarlegt átak, sem menn hafa orðið sammála um, og ég fullyrði að þjóðbrautir eru alls ekki látnar verða út undan. Það er kafli í langtímaáætluninni um þjóðbrautir, ekki sundurliðaður eins og stofnbrautir af því að það er beinlínis ekki hægt, en þar kemur fram að ætlað er að verja verulegu fjármagni í þjóðbrautirnar.
Það var undarlegt, sem ég heyrði áðan, að það stríði gegn byggðastefnunni að gera stofnbrautirnar góðar. Óvíða a. m. k. eru lengri stofnbrautir en í Austfjarðakjördæmi og ég vænti þess að þeir sem það kjördæmi byggja noti þær brautir allmikið. Ég verð a. m. k. að segja það fyrir mitt leyti að ég fagna því að í mínu kjördæmi fá stofnbrautir þá meðferð sem langtímaáætlunin gerir ráð fyrir. Ég benti líka á það í gær, að Alþingi hefur sjálft ákveðið í gegnum árin að stofnbrautir skuli hafa vissan forgang af því að umferðin er þar meiri.
Af því að þetta bar á góma þykir mér rétt að taka fram, að ég tel að með langtímaáætlun sé lagt til að Alþingi staðfesti raunhæfa áætlun sem hægt er að standa við, en ekki áætlun byggða á draumsýn eða kannske fagurri hugsjón.
Ef hv. þm. vill hins vegar leggja til að auka þetta veggjald og afla meiri tekna hugsa ég að ég mundi greiða því atkvæði. Ég vil gjarnan leggja meira í vegi.