16.02.1983
Neðri deild: 41. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2078 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)

193. mál, Vestfjarðaskip

Flm. (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af því sem hv. síðasti ræðumaður sagði.

Mér sýnist að það sé eðlilegt til hvaða nefndar málið fer. Ég bar mig saman við hæstv. forseta um til hvaða nefndar væri eðlilegast þinglega séð að vísa málinu. Það var fjh.- og viðskn. því að hér er vissulega um fjárhagsmál að ræða, peningamál, það er ekki spurning um það. — Það er ekki í fyrsta skiptið sem hæstv. forseta og skrifara hans greinir á í málum.

Varðandi annað það sem kom fram hjá hv. þm.

Ég túlka hans mál svo, að hann sé hlynntur meginefni þessa umrædda máls. Menn getur greint á um hvort það á að vera sérstakt skip eða leysa málið í öðru formi, en eigi að síður undirstrikaði hann þörfina á því að hér áttu úrbætur sér stað.

Það er nú svo um jákvæðar samgöngur á sjó með tilkomu Skipaútgerðar ríkisins. Það er vissulega afmarkað hversu jákvætt það er að því er varðar farþegaflutninga. Það eru svo til engin farþegarými til flutninga á farþegum með Skipaútgerð ríkisins. Það hefur sannast hvað best á yfirstandandi vetri hversu brýn nauðsyn er að það sé í ferðum skip sem jafnframt getur tekið farþega eins og vörur.

Að því er varðar Skipaútgerð ríkisins skal það viðurkennt að þar hefur lagast ástand frá því sem áður var, enda mátti það vissulega gera það. Eins og málum var komið hjá Skipaútgerð ríkisins og varðandi flutninga á Vestfjarðahafnir t. d. liðu allt upp í þrjár vikur milli ferða. Það sér hver maður að slíkt ástand var óþolandi.

En ég veit ekki hvers vegna hv. þm. hefur komist að þeirri niðurstöðu að með sérstöku Vestfjarðaskipi verði Norðurfjörður á Ströndum skilinn eftir. Það er a. m. k. ekki í mínum huga að sú höfn yrði eftir skilin, hvort sem um væri að ræða sérstakt Vestfjarðaskip eða málið yrði leyst með einhverjum öðrum hætti. Hún er vissulega í mínum huga innan þess ramma, sem hér er verið um að tala, og ætti kannske síst allra staða að vera skilinn eftir eins og þar háttar til um aðstæður allar.

Ég skal ekki, herra forseti, hafa öllu fleiri orð um málið. Ég ítreka þetta: Þó að hv. þm. hafi ekki viljað vera meðflm. að þessu frv. skil ég hans afstöðu til málsins jákvæða. Hann hefði þó kannske viljað fara aðra leið en hér er lagt til.