13.10.1982
Sameinað þing: 2. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (18)
Embættisfærsla sýslumanns á Höfn í Hornafirði
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Fram hefur komið af hálfu forseta Sþ. að hann hafi boðið hv. 4. þm. Reykv. að umorða fsp. sína þannig að hún geti orðið þingleg. Þessu hafnaði hv. 4. þm. Reykv. og velur það heldur að baða sig hér í sviðsljósinu. Ég harma þetta og segi nei.