17.02.1983
Sameinað þing: 53. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2079 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
169. mál, hljóðvarpsskilyrði eystra
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 260 hef ég borið fram svohljóðandi fsp. til hæstv. menntmrh.:
„Hvað veldur þeim afleitu hljóðvarpsskilyrðum, sem hvað tilfinnanlegust eru á suðurfjörðum Austfjarða? Hverjar úrbætur eru fyrirhugaðar í þessum efnum. og hvenær er þeirra að vænta?“
Þetta mál er býsna einfalt og kannske ekki ástæða til að flytja það hér inn í þingsali þó að margir vildu gjarnan heyra það hvað þessu ylli, en einmitt á ferðalögum eystra í byrjun þessa árs var mjög um þetta spurt og sjálfur heyrði ég það glögglega að það var ekki að ástæðulausu sem menn spurðu um þetta. FM-bylgjan var hreinlega með öllu óhæf á stundum til allrar hlustunar. Menn höfðu að vísu spurst fyrir um þetta hjá þeim aðila sem þarna er framkvæmdaaðili, þ. e. Pósti og síma, en þær skýringar sem þar hafa fengist eru tæpast haldbærar, svo að ekki sé meira sagt. Miðað við svör þaðan og sögusagnir einnig um það, að þarna væri kannske eitthvert smáræði sem á stæði til að þessu yrði kippt í lag, taldi ég best að fá hæstv, menntmrh., æðsta yfirmann hljóðvarpsins til beinna svara um það, hvað væri til úrbóta og hvort ekki mætti vænta þeirra alveg á næstunni.