17.02.1983
Sameinað þing: 54. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

186. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir hönd ríkisstj. fyrir þáltill. um stefnu í rannsóknum og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna.

Þetta er í annað sinn sem flutt er þáltill. um þetta efni. Vorið 1979 fluttu þm., sem áttu sæti í Rannsóknaráði ríkisins þá, kosnir af Alþingi till. um að beina því til ríkisstj. að mörkuð yrði langtímastefna á þessu sviði og að langtímaáætlun Rannsóknaráðs, sem þá hafði nýlega verið kynnt, skyldi lögð til grundvallar þessari langtímastefnu. Alþingi samþykkti umrædda þáltill. með öllum greiddum atkv. og í framhaldi af því fjallaði ríkisstj. um málið. Með hliðsjón af því, að hér er um mjög margþætt mál að ræða, sem snertir hagsmuni margra aðila, atvinnuvega og samtaka atvinnulífsins, ráðuneyta og stofnana, fól ríkisstj. Rannsóknaráði ríkisins að samræma eftir föngum sjónarmið þessara aðila og leita skynsamlegra leiða til að bæta umfjöllun um málefni rannsókna og þróunarstarfsemi í landinu, ekki síst ákvarðanir um fjárveitingar og mannahald rannsóknastofnana við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni. Jafnframt var Rannsóknaráði falið að endurskoða áætlunina reglulega í samvinnu við hlutaðeigandi aðila.

Nú liggur fyrir endurskoðuð langtímaáætlun Rannsóknaráðs um rannsóknir í þágu atvinnuveganna fyrir tímabilið 1982–1987 og hafa allir hv. alþm. fengið eintak af áætluninni fyrir nokkru, en ágrip af henni fylgir í grg. Rannsóknaráðs ríkisins, sem prentuð er hér í þessu þskj.

Eins og fram kemur í þskj. 314 og áætluninni sem fylgir á langtímaáætlunin sér nokkuð langan aðdraganda eða allt frá því að gerð var úttekt á stöðu vísinda- og rannsóknastarfsemi á Íslandi við byrjun síðasta áratugar. Á þeim tíma var deilt hart um stöðu og skipan rannsóknamála, þar sem mjög skiptar skoðanir voru um lögin um rannsóknir í þágu atvinnuveganna frá 1965 og hlutverk og starfshætti Rannsóknaráðs innan þeirra laga. Niðurstaða úttektarinnar, sem gerð var af sérfræðingum á vegum vísindanefndar OECD, varð þó sú, að skipulagi og lögum um rannsóknastarfsemina væri í litlu áfátt, en hins vegar væri mikil þörf á að bæta stjórnun, verkefnaval og starfshætti stofnananna og efla rannsóknastarfsemina með auknu fjármagni og starfsliði. Þetta varð til þess, að hugmyndir um skipulagsbreytingar voru lagðar á hilluna í bili, en þess í stað reynt að bæta starfsemina verklega að ráðum þeirra OECD-manna.

Mikilvægur þáttur í því starfi var gerð langtímaáætlunar, sem hafist var handa um þegar árið 1973 eða fyrir nærri 10 árum. Sú áætlanagerð mætti í fyrstu nokkurri tortryggni um afskiptasemi Rannsóknaráðs ríkisins af málefnum stofnananna og það tók fimm ár að ljúka henni. Undirbúningurinn hafði þó hins vegar sín áhrif.

Nauðsynlegt var að gera spár um þróunarhorfur í öllum megingreinum atvinnulífsins, sem stofnanirnar þjóna og þær voru kynntar og ræddar opinberlega. Sumar þeirra komu af stað miklum umræðum um málefni atvinnuveganna og hafa átt þátt í skoðanamótun og þá stefnumótun á síðari árum. Þá var tekið upp verkefnaskipulag á mörgum stofnunum og samhliða því bætt starfs- og fjárhagsáætlunargerð, sem hefur verulega lagfært stjórnun og samskiptamál innan stofnana. Endurskoðun langtímaáætlunarinnar nú hefur svo gengið mun auðveldar með góðri samvinnu við stofnanirnar.

Tilgangurinn með gerð langtímaáætlunarinnar er að auka virkni rannsóknastarfseminnar og það gagn sem má hafa af vísindalegri þekkingu og vinnubrögðum til að efla atvinnuvegina og búa landsmönnum betri lífsskilyrði í landinu. Þetta gerist með margvíslegum hætti í áætluninni.

Í fyrsta lagi er reynt að tengja rannsóknir sem best við ríkjandi þjóðfélagsmarkmið, reynt að skilgreina sem best þau viðfangsefni sem rannsóknarstarfsemi þarf að fást við, þau vandamál og þau tækifæri sem upp á er að bjóða, og það er reynt að leggja grundvöll að efnislegri athugun fjárveitingavaldsins á tillögum rannsóknastofnananna um fjárveitingar þannig að ákvarðanir byggist á efnislegum forsendum eftir föngum. Þá er leitast við að bæta nýtingu fjármagns og starfsliðs með betri tengslum starfs við sjálf markmiðin, betri skilgreiningu verkefnanna og skýrara mati á árangri þess sem við er fengist. Reynt er að efla og auka rannsóknir fyrst og fremst á þeim sviðum sem talin eru þjóðfélagslega hagkvæmust. Reynt er að bæta stjórnunaraðferðir innan rannsóknastarfseminnar og auka samstarf innan stofnana og milli stofnana. Loks er með þessari áætlun stuðlað að bættu upplýsingastreymi milli rannsóknastarfseminnar og þeirra sem um málefni hennar fjalla eða eiga að njóta ávaxta hennar, þ. e. atvinnuvega þjóðarinnar.

Enginn vafi er á að mikilvægur árangur hefur náðst nú þegar í þessum efnum. Auk þeirra umbóta í innri málefnum stofnananna, sem áður er getið um, hefur tekist gott samstarf með fjvn. og fjárlaga- og hagsýslustofnun í fjmrn. annars vegar, Rannsóknaráði, stofnununum og viðkomandi nefnd hins vegar. Rannsóknastarfsemin hefur verið aukin nokkuð umfram þjóðarframleiðslu á tímabili 1976–1981 eða rúmlega 5% á ári, hvort sem miðað er við fjármagn eða starfslið. Stofnanirnar hafa verið hvattar til að auka eigin tekjur sínar eftir öðrum leiðum en opinberum fjárveitingum og fengið meira svigrúm til að ráða starfsmenn til verkefna, sem fjármagnast utan fjárlaga, t. d. með framlögum fyrirtækja eða stofnana til ákveðinna verkefna eða af sölu á þjónustu og ráðgjöf.

Sú langtímaáætlun, sem hér er kynnt, byggir á reynslu af fyrri áætlun og stefnir að áframhaldandi uppbyggingu og eflingu rannsóknastarfseminnar í landinu. Áætlunin náði áður eingöngu til þeirra stofnana sem féllu undir lögin um rannsóknir í þágu atvinnuveganna frá 1965, en þessi áætlun, sem hér liggur fyrir, tekur til mun fleiri stofnana, svo sem Orkustofnunar, Tilraunastöðvarinnar á Keldum, Veiðimálastofnunar, auk Iðntæknistofnunar Íslands, og nær þannig yfir meginþorra hagnýtra rannsókna í landinu.

Við undirbúning áætlunarinnar hefur verið vandað vel til verka og haft víðtækt samráð um greiningu á forsendum og markmiðum áætlunargerðarinnar og leitað umsagnar allra helstu hagsmunaaðila um sjálfa áætlunina áður en henni var endanlega lokið. Starfshópar gerðu úttekt á þróunarhorfum hvers atvinnuvegar og síðan voru haldnar ráðstefnur um niðurstöður þeirra til að tryggja sem best jafnvægi í mati á aðstæðum.

Áætlunin er svo unnin undir sérstakri stjórn ráðgjafarnefndar sem framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs fékk til verksins. Í nefndinni sátu átta menn sérfróðir um málefni atvinnuveganna, efnahagsmál og rannsóknastarfsemi. Þetta voru þeir dr. Sigmundur Guðbjarnason prófessor sem var formaður nefndarinnar, Árni Benediktsson framkvæmdastjóri, Björn Björnsson viðskiptafræðingur hjá ASÍ, Gunnar S. Björnsson framkvæmdastjóri, Guðmundur Sigþórsson deildarstjóri í landbrn., dr. Ingjaldur Hannibalsson iðnverkfræðingur, Jakob Gíslason fyrrv. orkumálastjóri og Jónas Haralz bankastjóri. Ritari ráðgjafarnefndarinnar og milligöngumaður við rannsóknastofnanirnar og aðra aðila, sem leitað var til, var dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins.

Við undirbúning áætlunarinnar fór fram víðtæk athugun á stöðu rannsóknastarfseminnar í landinu. Vísindanefnd OECD var enn beðin að aðstoða við mat á skipulagi og stöðu íslenskrar rannsóknastarfsemi. Sérfróðir menn þaðan komu hingað til lands á árunum 1981 og reyndar 1980 og sömdu álitsgerð, sem síðan var kynnt og rædd á sérstökum fundi vísindanefndar OECD, sem haldinn var á Hótel Loftleiðum haustið 1981 að viðstöddu fjölmenni innlendra og erlendra fulltrúa úr ýmsum áttum. Ég tel niðurstöður þessarar úttektar vera þess eðlis, að rétt sé að drepa á nokkrar þeirra.

Í áliti sérfræðinga OECD kemur fram, að íslenska rannsóknakerfið er talið svara vel til hagnýtra þarfa lítillar þjóðar, og takmarkað fjármagn og starfslið virðist hafa verið allvel nýtt og hvergi um bruðl að ræða. Íslendingar verja hins vegar hlutfallslega of litlu fé og mannafla til rannsókna miðað við aðrar þjóðir. Þannig verja Íslendingar um 0.8% af þjóðarframleiðslu til rannsókna þegar flestar nágrannaþjóðirnar verja 1.5–2%. Eigi að síður höfum við nálgast aðrar þjóðir á allra síðustu árum, þar sem hlutfallið var um 0.4% við byrjun 7. áratugarins. Bilið gæti þó aftur breikkað með aukinni áherslu sem nú er lögð á vísindi og tækni annars staðar. Mörg helstu vandamál rannsóknastarfseminnar starfa af þeirri takmörkun sem smæð og skortur á nauðsynlegri sérþekkingu á ýmsum sviðum veldur.

Í álitinu er talin veruleg hætta á að skammtímaþarfir núverandi aðalatvinnuvega yfirgnæfi viðleitni til þróunar með langtímamarkmið að leiðarljósi. Aðaláherslan í rannsóknum varðar frumgreinar atvinnulífsins eða landbúnað, fiskveiðar og orkuvinnslu, en í mun minna mæli iðnað og þjónustu, sem þó hafa meiri vaxtarmöguleika.

Bent er á að ekki verði séð að Íslendingar leitist við að búa sig tæknilega undir nýtingu orkulindanna, sem fyrirsjáanlega verði undirstaða efnahagslegra framfara á komandi árum. Spurt er hvort nægilega sé tekið tillit til þessa í opinberri áætlanagerð, þar á meðal langtímaáætlun Rannsóknaráðs.

Þá er bent á, að fjármögnun rannsóknastarfseminnar sé einhæf, fyrst og fremst með beinum fjárveitingum, og bent er á að fjölþættari leiðir til fjármögnunarrannsókna gætu myndað mótvægi við þau skammtímasjónarmið sem svo miklu ráða við núverandi aðstæður.

Þá sé æskilegt að auka hlut atvinnuveganna við fjármögnun rannsókna. Sá hlutur er nú um 13% af fjármagninu, en er að jafnaði um 50% hjá öðrum þjóðum.

Fjármögnun háskólarannsókna er talin allsendis ófullnægjandi. Hún tengist ekki verkefnum og fjármagnið sem til þeirra er ætlað er of lítið. Starfslið Háskólans nýtist ekki eins og skyldi til rannsókna.

Lögð er áhersla á að komið verði á skynsamlegri og faglegri gagnrýni á val verkefna og vinnubrögð innan rannsóknastarfseminnar með þátttöku erlendra umsagnaraðila, þar sem nauðsyn þykir bera til. Látnar eru í ljós efasemdir um að Íslendingar gæti nægilega vel að langtímauppbyggingu tækniþekkingar til að geta sjálfir stýrt þeirri tækniþróun sem nýting orkulindanna byggir á.

Rafeindaiðnaður og annar þekkingariðnaður virðist í fæðingu á Íslandi, en þó hefur þessu sviði verið of lítill gaumur gefinn hingað til að mati sérfræðinganna frá OECD.

Bent er á nauðsyn þess að sjá fyrir fjármögnun á þýðingarmiklum, en áhættusömum þróunarverkefnum, sem séu utan við núverandi heimildir og getu íslenskra banka og sjóða. Í þessu efni verði Íslendingar að fylgja fordæmi annarra eða missa ella af mikilvægum tækifærum sem í þessari tækni felast.

Ég hygg, herra forseti, að þessi lýsing á stöðu íslenskrar rannsóknastarfsemi sé í flestu rétt, og hefur verið tekið tillit til hennar við gerð langtímaáætlunarinnar. Þannig er í áætluninni boðuð stefna sem miðar að breytingum á ýmsum þeim atriðum sem bent er á í skýrslu OECD. Stefnuatriði þessi koma fram á bls. 5 í þskj. 314, og leyfi ég mér að lesa þau og fara um þau örfáum orðum:

„1. Rannsóknastofnanir leiti í auknum mæli eftir eigin tekjum utan fjárlaga til að fjármagna starfsemi sína án þess að fjárveitingar verði rýrðar. Komið verði upp rannsóknasjóði til að styrkja einstök verkefni.

2. Atvinnufyrirtæki taki aukinn þátt í framkvæmd og fjármögnun rannsókna. Umbótasjóðir atvinnuveganna verði efldir til að styðja og hvetja fyrirtækin í þessu efni.

3. Tengsl rannsóknastofnana við atvinnuvegi og atvinnufyrirtæki verði efld.

4. Sjálfstæði og ábyrgð stofnananna í rekstrarlegum efnum verði aukið, m. a. í ráðningu starfsliðs, og stefnt verði að því að gera nokkrar rannsóknastofnananna að sjálfseignarstofnunum undir sameiginlegri stjórn ríkis og samtaka atvinnuveganna.

5. Aukin verði áhrif og virkni stjórna stofnananna í stefnumótun og í því að bæta tengsl við atvinnuvegi og ráðuneyti.

6. Meiri gaumur verði gefinn að öllum grundvallarþekkingar og hæfni vegna framtíðarþarfa.

7. Vaxandi áhersla verði lögð á rannsóknir í þágu úrvinnslugreina atvinnulífsins.“

Svo sem áður segir er einn helsti annmarkinn á skipulagi íslenskrar rannsóknastarfsemi, samanborið við það sem tíðkast í öðrum löndum, sá, að mikill meiri hluti rannsókna er kostaður með fjárveitingum á fjárlögum án þess að fram fari mat á verkefnum og án þess að áhrif frá notendum rannsóknaniðurstöðunnar komi nægilega vel til greina. Fyrstu þrjú stefnuatriðin lúta að því að breyta þessu. Í áætlun Rannsóknaráðs er lagt til að þetta verði gert með eftirgreindum hætti:

„1. Atvinnufyrirtæki verði hvött til að leggja meira til rannsókna og þróunar, bæði á eigin vegum og með því að kosta verkefni sem unnin eru á opinberum stofnunum eða taka þátt í þeim með öðrum hætti, m. a. með skattaívilnunum og stefnu um innkaup fyrir hið opinbera.

2. Efldir verði opinberir sjóðir sem styrkt geti einstök rannsóknaverkefni í samræmi við mat á gagnsemi og faglegum forsendum þeirra. Um þrenns konar sjóði verði að ræða:

Vísindasjóður er styrki grundvallarrannsóknir og byggi mat sitt á vísindalegu gildi og eðli verkefna, hæfni rannsóknamanna og mikilvægi verkefna fyrir þekkingaröflum í landinu og líkindum fyrir árangri.

Rannsóknasjóður (tæknisjóður), sem styrki hagnýt rannsóknaverkefni og þróunarstarf og byggi mat sitt á gagnsemi verkefnis, gildi fyrir framvindu tækniþekkingar og möguleika á hagkvæmri nýtingu á niðurstöðum, auk hæfni rannsóknamanna og líkindum fyrir árangri.

Atvinnuvegasjóðir (Iðnrekstrarsjóður, Iðnþróunarsjóður, Fiskimálasjóður og Framleiðnisjóður landbúnaðarins), sem fyrst og fremst styrki þróunarverkefni og umbótastarf í atvinnuvegunum innan einstakra fyrirtækja eða greina og byggi mat sitt á hagkvæmni og líkindum fyrir meiri og betri framleiðslu eða sterkari samkeppnisaðstöðu.

Með þessum hætti gætu fjármögnunarleiðir rannsókna og þróunarstarfsemi færst í auknum mæli yfir á styrki og samninga um einstök verkefni, en opinberar fjárveitingar gætu þá greitt almennan rekstrarkostnað, yfirstjórn og grunnfjárfestingu og eigin þekkingaröflun stofnananna.“

Í áætlun Rannsóknaráðs er bent á, að aukinn hlutur eigin tekna hafi á hinn bóginn í för með sér ný vandamál fyrir rekstur stofnananna, bæði vegna sveiflna í eftirspurn eftir þjónustu þeirra og vegna breytinga á fjármagnsflæði þeirra þar sem greiðslur fyrir unnin verk innheimtast ekki eins reglubundið og fjárveiting úr ríkissjóði. Ekki er talið heldur ráðlegt að hlutur eigin tekna fari almennt mikið yfir 40–45% af rekstrarkostnaði stofnananna, en bæði Iðntæknistofnun Íslands og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins eru nú við þetta mark; í kringum 40–45% af rekstrarkostnaði þessara stofnana koma af þeim tekjum.

Með fyrri langtímaáætlun var lögð mikil áhersla á að bæta stjórnun og starfshætti rannsóknastarfseminnar og þá tekin upp ný vinnubrögð af hálfu fjárveitingavaldsins við umfjöllun um málefni þeirra. Eins og áður sagði hefur þessi stefna þegar borið verulegan árangur, þótt langt sé frá því að nýir starfshættir séu orðnir rótgrónir eða fullmótaðir. Einn af þeim þáttum, sem enn ber að styrkja, er hlutverk stjórna og ráðgjafanefnda stofnananna, sem oft hafa ekki verið eins virkar og efni standa til. Leggja þarf áherslu á að stjórnir beri ábyrgð á heildarstefnumótun stofnana, samþykki endanlegt verkefnaval og fjárhags- og starfsáætlanir ásamt reikningum stofnananna, en ráðgjafanefndir geri tillögur um verkefni og láti í ljós álit sitt á verkefnum sem eru í undirbúningi og fjalli um niðurstöður meiri háttar verkefna sem lokið er. Með þessum hætti mætti bæta tengsl stofnananna við atvinnuvegi og ráðuneyti og samræma stefnu í rannsóknarmálum við stefnu í atvinnu- og efnahagsmálum í hverri grein.

Rannsóknastarfsemi á Íslandi hefur hingað til fyrst og fremst beinst að aðkallandi vandamálum, sem atvinnuvegirnir hafa átt við að glíma á hverjum tíma. Hafa rannsóknir þessar ásamt aðhæfingu á innfluttri tækni gert kleift að nýta innlendar náttúruauðlindir og stuðlað að miklum efnahagsframförum og stórbættum lífskjörum á undanförnum áratugum. Líklegt er að á komandi árum verði skjóttekinn fengur af nýtingu auðlinda ekki eins sterkur þáttur í efnahagsvexti og verið hefur, en þáttur hugvits, þekkingar og mannlegrar færni verði mikilvægari. Því er nauðsynlegt að unnið verði markvissara en verið hefur að öflun færni og vaxandi starfshæfni á ýmsum sviðum, sem þörf er fyrir í framtíðinni. Af þeim tæknisviðum sem í áætlun Rannsóknaráðs eru talin líkleg til að verða mikilvæg má m. a. nefna: raf- og rafeindatækni, tölvu- og upplýsingatækni, orkunýtingartækni, lífefnatækni, vatns- og sjávareldistækni og fóður- og matvælatækni.

Rannsóknaráð hefur raunar þegar látið fara fram könnun á þróun raf- og rafeindaiðnaðar og gert tillögur til iðnrn. um stefnumótun á því sviði, sem nú er ötullega fylgt eftir af fyrirtækjum og stofnunum. Þá standa yfir athuganir á fóðuriðnaði, matvælaiðnaði og vatns- og sjávareldi, og önnur svið mun ráðið að líkindum taka til athugunar á næstu árum.

Við gerð þessarar langtímaáætlunar hafa markmið þjóðfélagsins verið skilgreind með eftirgreindum hætti: Heildarmarkmið þjóðfélagsstarfseminnar er að auka farsæld og hagsæld með þjóðinni og möguleika hennar til lífsfyllingar. Í hugtökunum farsæld og hagsæld eiga að rúmast öll þau tækifæri til að njóta efnislegra, félagslegra og huglægra gæða sem einstaklingarnir kunna að óska sér. Þessar einstaklingsbundnu óskir má síðan setja fram sem markmið fyrir þjóðfélagið að vinna að, og má orða þau eitthvað á þessa leið:

1. Styrkja efnahag þjóðarinnar, en í því felst m. a. að auka þjóðartekjur og neyslu á mann, tryggja fullnægjandi atvinnutækifæri, fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og jafnvægi í efnahagsmálum og tryggja sambærilega hagsæld við það sem gerist í nágrannalöndum. 2. Stuðla að jafnvægi í þróun byggðar og búsetu í landinu með því að fjölga tækifærum til arðbærrar atvinnu, bæta samgöngur og efla þjónustu sem víðast og sporna gegn óeðlilegri röskun og misvægi á högum fólks í efnahagslegu, félagslegu eða menningarlegu tilliti. 3. Bæta sambúð lands og þjóðar með verndun og viðhaldi óspillts náttúrlegs umhverfis, fegrun þess umhverfis sem maðurinn sjálfur mótar og fjölþættri og skipulegri nýtingu íslenskra auðlinda. 4. Efla félagslega samhjálp og jafnrétti til viðbúnaðar gegn hvers konar áföllum og erfiðleikum, til aukinnar heilbrigðisgæslu og bættrar menntunar og til jafnræðis meðal þjóðfélagsþegna. 5. Auka og efla almennt menningarlíf í landinu með varðveislu íslenskrar tungu, ástundun lista, vísinda og mennta og þátttöku í alþjóðlegum menningarsamskiptum. 6. Vernda sjálfstæði og öryggi þjóðarinnar með þátttöku í alþjóðaviðskiptum og alþjóðasamstarfi á grundvelli viðskiptafrelsis, alþjóðlegrar verkaskiptingar, þjóðlegs fullveldis og fullra yfirráða yfir loft- og landhelgi og auðlindalögsögu í sjó.

Svo sem vænta má eru þessi þjóðfélagslegu markmið ekki alltaf samræmanleg. Þannig getur sókn að hagvexti ef til vill rekist á markmið byggðaeflingar, umhverfisverndar eða aukinnar félagslegrar þjónustu. Óhjákvæmilega hlýtur að koma til mat á innbyrðis mikilvægi markmiða á hverjum tíma. Bæði hér og erlendis hefur farið fram umræða, sem annars vegar mótast af eindregnum óskum um örar efnahagsframfarir og bætt lífskjör, en hins vegar af breyttum hugmyndum um gildismat og forsendur lífsfyllingar og lífshamingju. Hér á landi, þar sem ókostir tæknivædds iðnaðarsamfélags hafa lítil áhrif haft á lífsskilyrði fólksins, virðast hin hagrænu sjónarmið sitja í fyrirrúmi.

Það er álit Rannsóknaráðs og kemur fram í þessari skýrslu, sem fylgir þáltill., að megináherslan á næstu árum verði lögð á að styrkja efnahag þjóðarinnar, en einnig verði jafnvægi í byggðaþróun og aukin félagsleg þjónusta og jafnrétti til að njóta hennar ofarlega á baugi.

Í áætlun ráðsins er gerð ítarleg grein fyrir þeim aðstæðum sem móta þróunarhorfur hjá hverjum atvinnuvegi um sig. Ég fer ekki nánar út í þau atriði, enda flest vel kunn, held ég. Líklega eru flestir sammála þeirri meginniðurstöðu, að nú geti horft til verulegra breytinga í atvinnulífi hjá okkur. Takmarkanir á auðlindum sjávar, markaðsvandi landbúnaðar og hörð alþjóðleg samkeppni í iðnaðarframleiðslu leiðir óhjákvæmilega til leitar að nýjum leiðum til að tryggja landsmönnum áframhaldandi hagsæld og farsæld. Í því efni eigum við sem betur fer ýmsa kosti. Orkulindir okkar eru ekki nema að litlu leyti nýttar enn. Fram undan eru stór átök að beisla vatnsföll og jarðhitasvæði, ekki síst háhitasvæðin. Á síðari árum höfum við verið að tileinka okkur nýja þekkingu og reynslu á ýmsum sviðum, ekki síst í markaðsmálum, iðnhönnun, alþjóðlegum flutningum og fleira, sem munu koma okkur til góða á næstu árum. Fjöldi sérmenntaðs fólks í stjórnunarstörfum hjá atvinnuvegunum og aukin tækniþekking þeirra, sem framleiðslunni stjórna, opna margvíslega möguleika til vaxtar í nýjum greinum, þótt e. t. v. þrengist hjá þeim eldri. Með aukinni þekkingu og flóknari og fullkomnari tækni á öllum sviðum verða rannsóknir og þróunarstarfsemi æ ríkari þáttur í þeirri aðlögun og endurnýjun sem sífellt þarf að vera til að atvinnuvegirnir haldi samkeppnisstöðu sinni.

Í áætluninni hefur verið tekið tillit til þessara viðhorfa innan þeirra marka sem mögulegt er að vænta á fimm ára tímabili. Heildarfjöldi ársverka, sem unnin voru á þeim stofnunum sem áætlunin nær til, var um 537 árið 1982. Reiknað er með því að starfsliði fjölgi í 676 eða um 26% fram til 1987 eða 4.7% að jafnaði á ári. Þetta er svipuð aukning og varð í reynd á fyrra áætlunartímabilinu, sem náði yfir árin 1976–1982. Í þeirri áætlun hafði hins vegar verið gert ráð fyrir um 50% fjölgun starfsliðs á tímabilinu eða tvöfalt meiri en reyndin varð. Þannig er nú tekið mið af fyrri reynslu og áformum um ný verkefni stillt í hóf, en hins vegar lögð áhersla á að aukinn starfskraftur komi í mikilvægustu nýju verkefnin sem takast þarf á hendur. Jafnframt er í mörgum tilvikum gert ráð fyrir endurskipulagningu á núverandi starfsemi til að einbeita henni að verkefnum sem aðkallandi eru vegna breyttra aðstæðna í atvinnuvegunum.

Fjármagn til rannsókna vex nokkuð í hlutfalli við starfslið að frátöldu því fjármagni sem ætlað er til rannsókna á háhitasvæðum samkv. till. Orkustofnunar.

Þar er um mjög dýrar rannsóknir að ræða, sem innifela boranir á háhitasvæðunum. Ljóst er að ekki verður ráðist í þær án undangenginnar sérstakrar umfjöllunar Alþingis og ríkisstj.

Samkv. áætluninni verður hlutfallslega mestur vöxtur hjá stofnunum, sem þjóna úrvinnslugreinum, þ. e. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Iðntæknistofnun Íslands og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Hægari vöxtur er fyrirhugaður hjá stofnunum, sem þjóna frumframleiðslugreinum, Hafrannsóknastofnun og Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Tilraunastöð Háskólans á Keldum og Orkustofnun. Áherslumunurinn er þó ekki meiri en svo, að enn verður veruleg aukning hjá frumvinnslugreinunum eftir sem áður, og kann að þykja álitamál þar sem mikil þörf er á að auka rannsóknir og skylda starfsemi í þágu úrvinnslugreinanna. Rannsóknaráð telur að úr þessu megi að nokkru leyti bæta með eflingu rannsókna á vegum Háskólans, svo og auknum rannsóknum fyrirtækjanna sjálfra.

Það er ljóst að fjárveitingar og aukning starfsliðs mótast af ákvörðunum sem teknar eru að mestu við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni. Með þáltill. þessari er ekki ætlast til þess að Alþingi geri bindandi samþykkt um fjármagn og starfslið viðkomandi stofnana, en hins vegar er vonast til að gott samstarf takist milli fjárveitingavalds, rannsóknavalds og viðkomandi stofnana um að fylgja áætluninni eftir og skapa forsendur til að ná markmiðum hennar.

Áætlunin hefur, eins og áður sagði, verið send til umsagnar margra aðila og fengið jákvæðar viðtökur. Rannsóknaráð ríkisins fjallaði um þessa áætlun á fundi sínum 5. nóv. s. l. 1982 og gerði um hana þannig ályktun til ríkisstjórnar Íslands:

„Rannsóknaráð ríkisins samþykkir meðfylgjandi langtímaáætlun um rannsóknir á þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna fyrir tímabilið 1982–1987. Jafnframt mælir Rannsóknaráð ríkisins með því að ríkisstjórn Íslands staðfesti áætlunina og leggi hana til grundvallar við ákvarðanir um málefni rannsóknastarfseminnar á næstu árum, m. a. um fjárveitingar og starfsmannáhald.

Ráðið telur mikilvægt að haldið verði þeirri stefnu um aukningu á rannsóknastarfsemi, sem fram kemur í áætluninni og þeirri áherslu sem lögð er á rannsóknir í þágu úrvinnslugreina.

Rannsóknaráð telur nauðsynlegt að atvinnufyrirtæki taki aukinn þátt í framkvæmd og fjármögnun rannsóknaverkefna. Stuðlað verði að því m. a. með eftirgreindum hætti:

1. Rannsóknastofnanir auki eigin tekjur sínar með verkefnum sem viðskiptavinir greiði fyrir, enda verði framlög í fjárlögum ekki rýrð að sama skapi.

2. Með auknum eigin tekjum fái stofnanirnar aukið sjálfstæði og ábyrgð í rekstrarlegum efnum, m. a. í ráðningu starfsliðs.

3. Mótuð verði starfsskilyrði fyrir atvinnuvegina er hvetji til nýjunga og umbóta í atvinnulífinu.

4. Aukinn verði fjárhagslegur stuðningur opinberra sjóða við rannsóknir, vöru- og aðferðaþróun á vegum fyrirtækja og stofnana.

Ráðið vekur athygli á því, að knýjandi nauðsyn er að leggja grundvöll að nýjum vaxtarskilyrðum fyrir atvinnu- og efnahagsframfarir og jafnframt aðlaga eldri atvinnugreinar breyttum skilyrðum. Meginhlutverk rannsóknastarfseminnar er að greiða götu slíkra umbóta og leggur ráðið því áherslu á að mikilvægi starfseminnar fari vaxandi þegar erfiðleikar steðji að í þjóðarbúskapnum.“

Þannig endar ályktun Rannsóknaráðs um langtímaáætlunina eins og hún var samþykkt til ríkisstj. á fundi ráðsins 5. nóv. s. l.

Svo sem eðlilegt er spyrja menn gjarnan að því, hvaða arður og gagn fáist af því fé sem lagt er til hinna ýmsu og sífjölgandi málaflokka, sem krafist er að samfélagið haldi uppi. Rannsóknir og þróunarstarfsemi eru einn af þeim flokkum sem reynist erfitt að meta vegna þess að árangur og arður af tilteknu rannsóknarverkefni kemur oft ekki fram fyrr en eftir langan tíma og gjarnan eftir óbeinum leiðum. Því hafa margar og ítarlegar athuganir verið gerðar á því, hvernig rannsóknir og þróunarstarfsemi leiði til umbóta og hvaða aðstæður þurfa að vera fyrir hendi til þess að sem bestur árangur náist. Öllum athugunum ber saman um að mjög stóran hlut efnahagslegra og félagslegra framfara megi rekja beint og óbeint til tækninýjunga og aukinnar þekkingar, sem er ávöxtur rannsókna- og þróunarstarfsemi.

Í frægri skýrslu OECD, sem kom út árið 1980, er fjallað um vísindi og tækni í ljósi hinna nýju viðhorfa sem sköpuðust í efnahags og þjóðfélagsmálum OECD-landanna á 8. áratugnum. Í niðurstöðum skýrslunnar segir; að vanda iðnríkja megi rekja til margvíslegra breytinga á félagslegum og efnahagslegum forsendum, sem einungis verði hægt að bregðast við með árangri þannig að lagt verði kapp á rannsóknir og þróun hvers kyns nýjunga sem geti hjálpað til að aðlaga hina gömlu atvinnuvegi og skapa nýja. Lönd eins og Japan, sem hafa gert sér grein fyrir þessu og lagt mikla áherslu á rannsóknir, hafa haldið stöðugum hagvexti þegar á heildina er litið þrátt fyrir að fáar þjóðir hafi orðið meira fyrir barðinu á hækkuðu olíuverði en Japanir. Hafa Japanir orðið að leggja niður ýmsar orkufrekar iðngreinar, en hafa lagt þeim mun meira kapp á iðnað, sem byggist á þekkingu og háþróaðri tækni, og þannig meira en vegið upp áhrif hækkaðs olíuverðs í innflutningi til landsins með auknum útflutningi á tæknivörum.

Í sömu skýrslu er ítarlega fjallað um rannsóknir í þágu félagslegra markmiða á sviði heilbrigðismála, umhverfismála og þjónustugreina og sýnt fram á nauðsyn þess að gefa gaum að afleiðingum nýrrar tækni til að forðast margvísleg félagsleg og hagræn vandamál, sem fylgt geta í kjölfar breytinga.

Í mars 1981 var haldinn ráðherrafundur vísindanefndar OECD, sem íslensk sendinefnd sótti undir forustu iðnrh., en dr. Sigmundur Guðbjarnason prófessor var sérstakur fulltrúi Íslands á þessari ráðstefnu auk framkvæmdastjóra Rannsóknaráðs ríkisins, dr. Vilhjálms Lúðvíkssonar, og Þórðar Friðjónssonar hagfræðings, sem var fulltrúi forsrn. Á þessum fundi var staðfest yfirlýsing um framtíðarstefnu á sviði vísinda og tækni, sem endurspeglar skilning forustumanna á gildi þessarar starfsemi fyrir framþróun mannkynsins. Yfirlýsing þessi birtist í íslenskri þýðingu sem viðauki við langtímaáætlun Rannsóknaráðs, sem er bók sem allir þm. hafa fengið senda.

Í þessari yfirlýsingu segir m. a., að nauðsynlegt sé að samhæfa stefnumótun á sviði vísinda og tækni öðrum þáttum í opinberri stefnumótun, sérstaklega á sviði efnahags- og félagsmála, iðnaðar- og orkumála, mennta- og atvinnumála. Er síðan rakið í hverju slík samhæfing sé fólgin.

Ályktunin byggist á þeirri almennu skoðun, að vísinda- og tæknistefna eigi að vera órjúfanlegur þáttur í stefnumörkun á öðrum sviðum þjóðmála. Þar verði hins vegar að gæta að hagsmunum til lengri tíma, ekki síður en leita að skammtímaávinningi. Líklega þekkjum við Íslendingar best nauðsyn slíkrar samþáttunar, þar sem vísindaleg stjórnun fiskveiða er hornsteinn íslensks efnahagskerfis.

Þá er hlutur háskólarannsókna í uppbyggingu þekkingar til langs tíma undirstrikaður í ályktuninni og bent á nauðsyn þess að taka tillit til félagslegra og hagrænna, menningarlegra og stjórnmálalegra afleiðinga tæknibreytinga.

Að lokum er lögð rík áhersla á alþjóðlegt samstarf á sviði vísinda til að stuðla að útbreiðslu þekkingar og tækni til að nýta sem best mannlega hæfileika, dýra rannsóknaaðstöðu og til að bæta grundvöll opinbers eftirlits og aðgerða á sviði heilbrigðismála og öryggis- og umhverfismála.

Á Norðurlöndum hefur vísindasamstarf verið sérstaklega mikið til umfjöllunar á síðari árum. Á fundi hér í Reykjavík 1978 samþykktu forsrh. Norðurlanda að beina þeirri ósk til ráðherranefndar Norðurlandaráðs að nefndin gengist fyrir auknu samstarfi landanna í rannsóknum, bæði í grundvallarrannsóknum og hagnýtum rannsóknum. Þessi ósk hefur leitt til margvíslegra athugana á möguleikum til aukins samstarfs á ýmsum sviðum vísinda.

Nú í lok þessarar viku kemur saman til fyrsta fundar síns norrænt rannsóknaráð, sem samþykkt var að stofna á fundi Norðurlandaráðs í Helsingfors á síðasta ári. Er þessu ráði ætlað að hafa frumkvæði um og samræma aukið norrænt samstarf í vísindum. Norrænt rannsóknasamstarf er þó engan veginn nýtilkomið, því að rannsóknaráðin og vísindaakademíurnar á Norðurlöndum stofnuðu þegar árið 1947 með sér samtök, sem kölluð eru Nordforsk, sem staðið hafa fyrir umfangsmiklum rannsóknarverkefnum í samskiptum vísinda- og tæknimanna í áratugi. Norræni iðnaðarsjóðurinn eða Nordisk industrifond, sem stofnaður var 1973, hefur stutt samvinnu um tækni- og iðnþróun á Norðurlöndum með vaxandi umsvifum og árangri á síðari árum. Á sviði náttúruvísinda og ekki síst í landbúnaðarvísindum hefur einnig verið mikil samvinna um alllangt skeið, þannig að alþjóðlegt vísindastarf er mikilvægur þáttur í stefnumótun þeirri sem hér er fjallað um.

Mörkun vísindastefnu er enn nýlegt viðfangsefni íslenskrar stjórnsýslu og enn er ekki almennur skilningur á þeim forsendum sem ráða árangri rannsókna og þróunarstarfsemi. Allir skilja að vísu gildi fiskileitar og jarðhitaleitar, en ekki skilja menn eins auðveldlega nauðsyn þeirra rannsókna sem fela í sér leit að nýrri vitneskju, þekkingu á náttúrunni og lögmálum hennar án tillits til notagildis. Í hagnýtum rannsóknum skilja fáir nauðsyn þess, að náið samband þurfi að vera milli þess sem rannsakar og þess sem á að njóta niðurstöðunnar. Ekki er öllum heldur ljóst að það getur haft mikil áhrif á gang rannsókna, afköst rannsóknastarfseminnar og gæði niðurstöðunnar hvaða aðferð er viðhöfð til að veita fé til rannsóknaverkefnis.

Vísindastefna fjallar um markmið og skipulag, starfshætti, verkefnaval og fjármögnun rannsókna og þróunarstarfsemi með hliðsjón af þörfum þjóðfélagsins. Rannsóknaráð ríkisins hefur með margvíslegum hætti reynt að varpa ljósi á stöðu okkar og stefnu í þessum málum, m. a. með yfirgripsmiklum ársskýrslum um rannsóknastarfsemina, ítarlegum athugunum á fjármagni og mannafla eftir greinum og þjóðfélagsmarkmiðum, ársfundum þar sem mikilvæg verkefni í rannsóknum eru kynnt og úttekt á einstökum viðfangsefnum þar sem rannsóknir þarf að efla.

Langtímaáætlun Rannsóknaráðs ríkisins er tilraun til að skýra þetta heildarsamhengi fyrir rannsóknir í þágu atvinnuveganna og skapa grundvöll til að byggja starfsemina upp með samræmdum hætti, sérstaklega þátt opinberra rannsóknastofnana í því efni. Þá er drepið á mikilvægi þróunarstarfsemi á vegum fyrirtækja eða þátttöku þeirra í rannsóknum opinberra stofnana. Hvatt er til opinbers stuðnings við fyrirtæki í þessu efni og að rannsóknastofnanirnar leitist við að koma sem nánustu sambandi á við fyrirtæki. Í undirbúningi er áætlun um rannsóknir í Háskóla Íslands á sviði verkfræði og raunvísinda og verður þá væntanlega fjallað um þátt grundvallarrannsókna. Þar með væri fengin allgóð heildaryfirsýn yfir tækni og náttúruvísindi í landinu.

Herra forseti. Ríkisstj. vill nú staðfesta vilja sinn til þess að fylgja þessu starfi eftir með því að leggja þá till. til þál. fram sem hér er til umr. Ég sé ekki ástæðu til að lesa till. í heild, en með þessari till. er annars vegar staðfestur vilji ríkisstj. til að efla rannsóknir og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna í þeim fjórþætta tilgangi sem í till. greinir og hins vegar til að leggja langtímaáætlun Rannsóknaráðs til grundvallar langtímastefnu í því efni. Þetta þýðir að í öllum megindráttum styður ríkisstj. markmið langtímaáætlunarinnar og þær leiðir sem gert er ráð fyrir að stofnanirnar þróist eftir. Einstök atriði, þ. á m. árlegar fjárveitingar, koma til kasta stjórnvalda og metast þá eftir aðstæðum hverju sinni, en nauðsynlegt er að skilningur ríki um að leitast við að fylgja markaðri stefnu.

Ég vil varpa því fram hér, hvort ekki sé tímabært að taka málefni vísinda og tækni til sérstakrar meðferðar á Alþingi með þá heildarsýn í huga sem hér hefur verið lýst. Víða um lönd starfa sérstakar nefndir á vegum þjóðþinganna, sem fjalla um málefni vísinda, tækni og rannsókna. Hugsanlega mætti fá fulltrúum Alþingis í Rannsóknaráði ríkisins þetta hlutverk með formlegum hætti og styrkja þannig þau samskipti sem um er að ræða milli Alþingis og vísindastarfseminnar í landinu. Það er ekki ólíklegt að Rannsóknaráð ríkisins í núverandi skipan yrði þar með virkari aðili en verið hefur frá setningu rannsóknaráðslaganna árið 1965 til þessa.

Í stefnutill. langtímaáætlunarinnar eru boðaðar tillögur um breyttar fjármögnunarleiðir, þar á meðal stofnun tæknisjóðs eða rannsóknasjóðs og eflingu Vísindasjóðs. Ennfremur er lagt til að stofnanirnar fái aukið sjálfstæði og um leið ábyrgð á eigin málum. Þessi stefna þykir hafa gefist vel víða, t. d. í Danmörku þar sem slíku kerfi var komið á fyrir rúmlega 10 árum. Norðmenn og Finnar eru nú að fikra sig áfram í þessa sömu átt. Ég tel að við þurfum vissulega að kanna þetta mál nánar.

Hjá menntmrn. eru nú til athugunar tillögur nefnda sem endurskoðað hafa lögin um Vísindasjóð og um Rannsóknaráð ríkisins. Frv.-drög þessi verða til sérstakrar umræðu á næsta fundi Rannsóknaráðs ríkisins í marsmánuði næstkomandi.

Eitt af þeim málum, sem oft er rætt meðal vísindamanna og Rannsóknaráð hefur vakið athygli á, eru hin háu aðflutningsgjöld af vísindatækjum hérlendis. Í sáttmála UNESCO um menningar-, vísinda- og menntamál frá árinu 1950, svokölluðum Flórens-sáttmála, er kveðið á um niðurfellingu aðflutningsgjalda og frjáls viðskipti með vörur til menningar-, vísinda- og menntamála þ. á m. tæki og búnað til vísindarannsókna. Ísland er eitt örfárra landa sem ekki hafa staðfest þennan sáttmála, sem nú er orðinn 33 ára gamall, og er það varla vansalaust, ekki síst þar sem engin sérstök rök eru fyrir því að leggja þessi gjöld á, en þau eru í reynd veruleg hindrun fyrir eðlilegri uppbyggingu nauðsynlegs tækjabúnaðar hjá íslenskum vísindastofnunum. Menntmrn. hefur alloft, bæði í minni tíð og fyrr á árum, hreyft þessu við fjmrn., en málið hefur ekki verið leitt til lykta.

Að lokum, herra forseti, vil ég láta í ljós þá von, að þáltill. sú, sem hér hefur verið kynnt, verði eitt þeirra mála sem þm. geti sameinast um með þeim skilningi sem ég hef verið að reyna að boða hér. Með því yrði stigið mikilvægt spor til mörkunar á íslenskri vísindastefnu er ég vona að sé til heilla fyrir atvinnuvegi landsmanna á næstu árum. Jafnframt yrði það hvatning til frekari viðleitni af hálfu íslenskra vísindastofnana til að skýra áform sín og hugmyndir fyrir almenningi og stjórnvöldum í von um að fá skilning og samkomulag um framkvæmdir.

Herra forseti. Þetta er orðið alllangt mál, en hér er einnig um mjög víðtækt mál að ræða og að ýmsu leyti erfitt að útskýra nema í alllöngu og viðamiklu máli. Ég hef kosið þann háttinn að hafa þessa framsöguræðu allítarlega, en ég vænti þess að eftir að umr. er lokið hér í dag verði umr. frestað og málinu vísað til fjvn. Ég held að það sé heppileg till. í þessu sambandi.