02.11.1982
Sameinað þing: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
263. mál, lögmannskostnaður og ríkisábyrgð á launum
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Eins og hv. þm. gat um í inngangsræðu sinni eru lögin um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot upphaflega frá 28. mars 1974, en þeim var síðan breytt með lögum nr. 8 frá 1979. Veigamesta breytingin var í 2. mgr. 2. gr., en þar segir:
„Hafi launþegi krafist gjaldþrotaskipta eða hafið innheimtuaðgerðir vegna vanskila á greiðslum þeim, sem um ræðir í 1. mgr. þessarar greinar, tekur ábyrgðin til alls nauðsynlegs kostnaðar, sem honum er skylt að greiða í því sambandi.“
Þegar lögunum var breytt 1979 var skotið inn orðunum „eða hafið innheimtuaðgerðir vegna vanskila á greiðslum.“ Þetta er ákaflega mikilvægt atriði, sem um nokkurra ára skeið hafði verið krafa uppi um af hálfu alþýðusamtakanna, að lögunum yrði breytt á þennan veg, vegna þess að það gerðist aftur og aftur að þegar launamenn þurftu að leita til dómstóla með launakröfur og höfðu af því mikinn kostnað vegna gjaldþrots atvinnurekandans, þá fengu þeir ekki málskostnað greiddan; en í mörgum tilfellum var hann allt að því jafnhár og höfuðstóll kröfunnar. Af þessum ástæðum var lögunum breytt 1979, eins og fram kemur í framsöguræðu hæstv. þáv. félmrh. þegar hann greindi frá lagabreytingunni á sínum tíma. Undan þessu var sem sagt mjög mikið kvartað og stéttarfélög höfðu lengi haft það á óskalista sínum að þessu væri breytt, enda kom þetta hreinlega í veg fyrir að menn legðu út í aðgerðir, jafnvel kostnaðarsama málsókn, til þess að fá rétt sinn dæmdan gagnvart gjaldþrota atvinnurekanda. Þetta vildi ég segja í tilefni af orðum hv. þm. um að hann vildi ganga úr skugga um hvort rn. hefði haldið sig við lög í þessu efni. Ég vænti þess að svo sé og það sé í rauninni hvergi hægt að finna dæmi þess að rn. hafi farið út fyrir þann lagaramma sem markaður er, enda ætti slíkt ekki að geta gerst.
Hins vegar vil ég taka það fram vegna orða hv. þm., að þann tíma sem ég hef verið þarna í rn. hefur mér verið það ljóst og mér finnst að lögin skilgreini ekki nægilega vel sjálf hvað eru vinnulaun og hvað er kostnaður. Þess vegna skipaði ég fyrr á þessu ári nefnd til að endurskoða lögin um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot. Formaður þeirrar nefndar var Hólmfríður Snæbjörnsdóttir lögfræðingur í félmrn. Nefndin hefur nú nýlega skilað áliti til mín. Það er svo skammt um liðið síðan hún skilaði því áliti að það er ekki komið enn á borð ríkisstj., en ég vænti þess að það verði fljótlega og að hv. alþm. fái tækifæri til þess að fjalla um málið í þinginu í vetur og þar með að glöggva sig á því hvort þarna hefur eitthvað misfarist og hvort einhverju má þá breyta. Það er ástæða til þess að breyta lögunum ef þau eru enn þá of óskýr, því að það skiptir auðvitað öllu að lög af þessum toga séu sem gleggst og skýrust til þess að embættismenn geti farið eftir þeim.
Vík ég þá að fsp. hv. þm. og þá er það fyrst: „Hve háum fjárhæðum varvarið árin 1980 og 1981 til greiðslu launakrafna samkv. lögum um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot?“
Á árinu 1980 voru greiddar 314 218 nýkr. og á árinu 1981 1 millj. 365 þús. 781 kr.
Í öðru lagi er spurt: „Hve háar fjárhæðir voru á hvoru ári fyrir sig greiddar vegna gjaldþrots aðila í Reykjavík annars vegar og utan Reykjavíkur hins vegar?“
Svarið er: Vegna gjaldþrots aðila utan Reykjavíkur voru greiddar 32 600 kr. á árinu 1980, en árið 1981 var þessi upphæð 286 227 kr.
Í þriðja lagi er spurt: „Hvernig ákvarðar félmrn. greiðslur vaxta og innheimtukostnaðar, t.d. lögmannskostnaðar, við greiðslu þessara krafna? Eru sömu kröfur gerðar varðandi þessa liði og gerðar eru til sjálfrar launakröfunnar, t.d. að viðurkenndur sé forgangsréttur kröfuliða í viðkomandi þrotabúi?“
Svarið við spurningunni er á þessa leið: Vextir eru greiddir samkv. 3. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 302/1975, um greiðslu á launum úr ríkissjóði við gjaldþrot, sbr. reglugerð nr. 128 frá 14. mars 1979, þ.e. almennir sparisjóðsvextir, sem voru til síðustu mánaðamóta 34% frá greiðsludegi allt að 18 mánuði aftur í tímann. Þessi reglugerð, sem er stofnreglugerð í þessu sambandi, er gefin út 1. júlí 1975 og undirrituð fyrir hönd ráðh. af Hallgrími Dalberg og Guðmundi Karli Jónssyni, en viðauki við hana var gefinn út 14. mars 1979 og undirritaður af Magnúsi H. Magnússyni og Hólmfríði Snæbjörnsdóttur. Kostnaður er greiddur samkv. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 31/1974, sbr. 1. gr. laga nr. 8/1979. Ef launamaður hefur krafist gjaldþrotaskipta eða hafið innheimtuaðgerðir vegna vangreiðslu vinnulauna tekur ábyrgðin til alls nauðsynlegs kostnaðar sem honum er skylt að greiða í þessu sambandi. Nauðsynlegur kostnaður er ef launamaður hefur leitað til lögfræðings vegna vangreiðslu launa áður en atvinnurekandi hefur verið úrskurðaður gjaldþrota og lögfræðingurinn hefur hafið innheimtuaðgerðir, þ.e. skrifað innheimtubréf. Þá kemur innheimtukostnaður á kröfuna samkv. lágmarksgjaldskrá Lögmannafélags Íslands, sem er 250 kr. í grunngjald. Við bætast 25% af fyrstu 3 416 kr., 10% af næstu 23 045 kr., 5 % af næstu 230 600 kr., 3 % af næstu 515 230 kr. og 2% af því sem fram yfir er. Ef innheimtutilraunir takast aftur á móti ekki áður en atvinnurekandi er úrskurðaður gjaldþrota, ef innheimtutilraunir takast ekki áður en úrskurður er kveðinn upp og lögmaður höfðar mál til innheimtu kröfunnar, bætist við stefnubirtingarkostnaður, sem nú er 74 kr. Þar við bætist ferðakostnaður og þingfesting, 211 kr. Þá telst til þessa kostnaðar kröfulýsing í þrotabúið, nú 349 kr., og annað eins vegna kröfu á rn. um að krafan verði greidd úr ríkissjóði.
Í fjórða lagi er spurt: „Hvernig sundurliðast þessar greiðslur árin 1980 og 1981 í a) launakröfur launþega, b) lögmannskostnað, c) vexti?“
Á árinu 1980 voru greiddar 305 360 nýkr. til launamanna sem laun, orlofsfé og vextir og 8858 nýkr. í lögmannskostnað. Á árinu 1981 voru greiddar 1 millj. 278 þús. 360 kr. til launamanna, sem laun, orlofsfé og vextir og 128 þús. og 12 kr. í lögmannskostnað. Endurgreiðsla í ríkissjóð á árinu frá þrotabúum nam 40 543 kr.
Þá er spurt: „Hvaða lögmannsskrifstofur hafa á umræddu tímabili fengið greiddar hæstar fjárhæðir vegna innheimtukostnaðar í sambandi við þessar kröfur og hve háar fjárhæðir er þar um að ræða til hverrar um sig, f. d. þriggja hinna stærstu?“
Tveir lögfræðingar á lögfræðiskrifstofu Arnmundar Backmans hafa fengið greitt sem hér segir: Viðar Már Matthíasson vegna tveggja launamanna 2 646 kr. bæði árin, 1980 og 1981, og Sveinn Skúlason lögmaður vegna um það bil 50 launamanna á árunum 1980–1981 63 559 kr. Í annan stað hafa verið greiddar til lögmannsskrifstofu Arnar Höskuldssonar 51 562 kr. og til lögmannsskrifstofu Ingólfs Hjartarsonar 8400 kr. Ég hygg að þetta séu stærstu skrifstofurnar sem þarna er um að ræða.
Í sjötta lagi er spurt: „Hver er hæsta fjárhæð sem einstökum launþega hefur verið greidd samkv. þessum lögum?“
Starfsmenn rn. fóru í gegnum þær kvittanir sem gefnar hafa verið út og samkv. því sem okkur sýnist við þann yfirlestur er hæsta fjárhæð, sem greidd hefur verið, sennilega — ég tel það nokkuð öruggt — 86 þúsund kr.
Ég vænti þess, herra forseti, að ég hafi svarað svo skýrt sem verða má þessari fsp. hv. þm.