03.11.1982
Efri deild: 7. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
42. mál, almannatryggingar
Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt þm. Salome Þorkelsdóttur, Agli Jónssyni og Lárusi Jónssyni að flytja það frv. sem hér er til umr. um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum. Þetta frv. felur í sér félagslegar ráðstafanir, sem ætlað er að bæta úr þeim félagslegu ástæðum, sem nú heimila samkv. lögum fóstureyðingu. Með frv. þessu er lagt til, að bætt sé úr þessum félagslegu ástæðum með því að gera breytingar á lögum um almannatryggingar. Her er um að ræða verulega aukna aðstoð við einstæðar mæður og heimildarákvæði um slíkt hið sama til hjálpar konum, sem eru í hjúskap eða í sambúð, en eru hjálpar þurfi.
Ég skal nú gera grein fyrir einstökum greinum þessa frv.
1. gr. fjallar um mæðralaun. Þar er kveðið svo á, að mæðralaun skuli vera árlega sem þar segir með einu barni 9 þús. kr., með tveim börnum 22 500 kr. og með þrem börnum eða fleiri 36 þús. kr. Hér er um að ræða verulega breytingu frá gildandi lögum og það er með tvennum hætti. í fyrsta lagi eru mæðralaunin stórlega hækkuð frá því sem nú er. Auk þess er breytt hlutföllum á mæðralaunum milli konu með eitt barn og konu með tvö börn og svo konu með þrjú börn eða fleiri, þ.e. hækkunin er mest þegar um eitt barn er að ræða og það er einnig veruleg hækkun þegar um tvö börn er að ræða.
Til glöggvunar skal þess getið, að samkv. lögunum eru mæðralaun nú með einu barni 2340 kr. á ári. Hér er lagt til, að þau verði 9000 kr. Með tveim börnum eru mæðralaun nú samkv. gildandi lögum 12 720 á ári, en hér er lagt til að þau verði 22 500. Samkv. gildandi lögum eru mæðralaun með þrem börnum eða fleiri nú 25 452 kr., en hér er gert ráð fyrir að þau verði 36 þús. kr. Ástæður til þess að gerð er tillaga um þessar breytingar eru augljóslega þær, að ekki verður með neinum hætti talið að það sé nóg að gert í þessum efnum samkv. gildandi lögum. Það sjá menn best með því að líta á þær tölur sem ég hef hér gert grein fyrir, upphæð mæðralauna eins og þau eru.
Ég kem þá að 2. gr. frv. Ég vil segja um hana, sem reyndar á við 3. gr. frv. líka, að samkv. þeim greinum báðum eru teknar upp nýjar bætur til einstæðra mæðra, sem nú er ekki fyrir að fara í íslenskri löggjöf. Litið er á að einstæð móðir verður við fæðingu barns oft eða oftast fyrir ákveðinni röskun á stöðu og högum. Ekki er óeðlilegt að hin einstæða móðir njóti aðstoðar til að mæta þessu. Við gerum slíkt í öðrum tilfellum. Við höfum t.d. sérstakan ekkjulífeyri þegar kona missir maka sinn. Það er hugsað til þess að aðstoða konuna vegna þeirrar röskunar á stöðu og högum sem það hefur fyrir hana að missa eiginmanninn. Af svipuðum ástæðum þykir mér rétt og okkur flm. að veita aðstoð til einstæðrar móður til þess að bæta henni upp röskun á stöðu og högum, sem hún verður fyrir og getur orðið með margvíslegum hætti við barnsfæðingu.
Samkv. 2. gr. frv. er gert ráð fyrir að þær bætur, sem gert er ráð fyrir af þessum ástæðum til einstæðrar móður, séu jafnháar og ekkjubætur samkv. 1. mgr. 17. gr. almannatryggingalaga. Þessum bótum á ekkjan rétt á í sex mánuði. Við gerum ráð fyrir að hin einstæða móðir hafi rétt til bóta í jafnlangan tíma.
Í 17. gr. almannatryggingalaga er svo í framhaldi af ákvæðum um ekkjubætur, sem ég hef hér vikið að, ákvæði um að ef bótaþegi eigi barn yngra en 17 ára á framfæri sínu eigi hann rétt á bótum í 12 mánuði til viðbótar.
3. gr. þessa frv. mælir svo fyrir, að hin einstæða móðir skuli undir þessum kringumstæðum, þ.e. ef barn innan 17 ára er fyrir á framfæri hennar, eiga rétt á hinum sérstöku bótum í 12 mánuði til viðbótar eins og ekkjan. Í þessu sambandi er rétt að víkja að því hve ekkjulífeyrir getur numið hárri upphæð, en það er mismunandi. Það lægsta er 1114 kr. á mánuði núna, en það getur farið a.m.k. upp í 2227 kr. á mánuði. Gert er ráð fyrir að hin einstæða móðir geti notið hliðstæðrar aðstoðar, eins og ég hef þegar gert grein fyrir.
Í 4. gr. frv. er gert ráð fyrir að ný grein komi inn í lög um almannatryggingar, þar sem verði tekin upp sérstök heimildarákvæði til aðstoðar í fyrsta lagi við einstæða móður og í öðru lagi við konu í hjúskap eða í sambúð undir vissum kringumstæðum. Hvað varðar konu sem er einstæð móðir er svo kveðið á í 1. mgr. 4. gr. frv., að þegar niður falli bætur þær, sem ég var að gera grein fyrir og eru samkv. 2. og 3. gr. frv., sé tryggingaráði heimilt að greiða einstæðri móður allt að fullum lífeyri einstaklings samkv. 11. gr. almannatryggingalaga ásamt tekjutryggingu samkv. 19. gr. Hér er sett inn heimildarákvæði, sem að sjálfsögðu er ekki gert ráð fyrir að verði notað nema undir vissum aðstæðum, þ.e. það sé nauðsynlegt til aðstoðar við hina einstæðu móður.
Hér er vitnað til lífeyris einstaklings samkv. 11. gr. laga um almannatryggingar, þ.e. eins og segir í skýringum með frv. að gert er ráð fyrir að upphæð þessara bóta sé sem svarar til þess sem segir í 11. gr., en þar eru ákvæði um ellilífeyri. En ellilífeyririnn er mismunandi, svo sem kunnugt er, eftir því hvort hann er fyrst tekinn við 67 ára aldur eða 72 ára aldur eða einhvers staðar þar á milli. Það er ekki ástæða, að mínu viti, til að kveða nánar á um hve upphæðin á að vera há. Samkv. heimildarákvæðinu í 1. mgr. 4. gr. frv. hefur tryggingaráð í hendi sér að meta það. En þó þykir mér líklegt, þar sem er um heimildarákvæði að ræða, að þetta muni ekki fara yfir lægsta flokk ellilauna, þ.e. ef miðað er við að ellilaunin séu fyrst tekin við 67 ára aldur, en það er veruleg upphæð samt á ári eða a.m.k. um 2227 kr. á mánuði og til viðbótar því kemur svo tekjutryggingin, sem nemur í dag 2481 kr. á mánuði. En með því að þetta er heimildarákvæði er að sjálfsögðu í valdi tryggingaráðs að meta hve upphæð þessi yrði há í einstöku tilfelli.
Allt sem ég hef sagt fram að þessu varðar bætta aðstoð við einstæðar mæður. En frv. þetta gerir ráð fyrir að það geti verið að fleiri séu aðstoðar þurfi í þessu efni en einstæðar mæður. Það getur verið að svo sé ástatt um konu í hjúskap eða í sambúð. Þess vegna gerir 2. mgr. 4. gr. frv. ráð fyrir að tryggingaráð fái heimild til að ákveða greiðslur til kvenna í hjúskap eða í sambúð, sams konar greiðslur og gert er ráð fyrir til einstæðra mæðra, en ekki skilyrðislaust. Þetta verði bundið því skilyrði að tekjur hjónanna eða sambúðarfólksins fari ekki fram úr ákveðnu marki og auk þess að ástand á heimilum þessara mæðra sé það slæmt að það jafngildi þeim ástæðum sem samkv. gildandi lögum heimila fóstureyðingu. Þetta er tekið skýrt fram í 4. gr. frv., því að þar segir að þessar bætur komi aðeins til að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
1. Hafi konan alið mörg börn með stuttu millibili og skammt er liðið frá síðasta barnsburði.
2. Eigi konan við að búa bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu.
3. Vegna annarra ástæðna, sem eru sambærilegar við ofangreindar ástæður.
Þetta ákvæði er orðrétt upp úr gildandi lögum, orðrétt tilteknar þær ástæður sem geta heimilað fóstureyðingu. Þetta frv. er raunar byggt á þeirri forsendu að ekki sé eðlilegt að fóstri sé eytt af félagslegum ástæðum, það eitt sé eðlilegt að leysa og bæta úr hinum félagslega vanda.
Frv. þetta er flutt í framhaldi, ef svo mætti segja, af öðru frv., sem við sömu flm. höfum flutt, um breytingar á lögum sem fjalla um fóstureyðingar. Í því frv. er lagt til að félagslegar ástæður geti ekki heimilað fóstureyðingar. Ég flutti allítarlega framsögu fyrir því máli og lagði áherslu á það sjónarmið, að þjóðfélaginu bæri að leysa þessar þjóðfélagslegu ástæður með öðrum hætti en að gripið væri til fóstureyðinga. Þetta frv. er flutt í framhaldi af hinu fyrra frv., um fóstureyðingar, og til að árétta þetta sjónarmið.
Þetta frv. sem felur í sér tilteknar breytingar á tryggingalöggjöfinni, er að mínu viti um það sem mest er um vert að gert sé og á heima í lögum um almannatryggingar. Ég veit að það geta verið ýmsir aðrir erfiðleikar fyrir hendi, sem þetta frv. nær ekki til.
Ég tel að þetta frv. geti verið þýðingarmikið spor í þá átt að þjóðfélagið taki á sig þá skyldu að aðstoða hinar einstæðu mæður í staðinn fyrir að hlaupa frá þessum skyldum með því að heimila fóstureyðingu af félagslegum ástæðum. Við munum aldrei — já, ég segi óhikað aldrei, þó að mér kæmi til hugar að segja seint — hafa það ástand í þessu landi í félagslegum málefnum að ekki sé alltaf hægt að finna einhverja erfiðleika sem ekki verður séð við í löggjöf. En við erum á mikilli framfaraleið í þessum efnum. Við höfum verið það á síðustu árum og síðustu áratugum. Við erum alltaf að bæta okkur í þessu efni, en það yrði ennþá aukin hvatning ef nú yrði fellt úr lögum að félagslegar ástæður gætu heimilað fóstureyðingu. Og samkv. því sem ég hef lagt til ásamt meðflm. í því frv., sem við höfum hér áður flutt, á að afnema félagslegar ástæður sem heimild fyrir fóstureyðingum skilyrðislaust.
Þrátt fyrir mikilvægi hinna félagslegu ástæðna, sem ég legg mikla áherslu á að bæta úr, er ástæðan fyrir því að ekki eigi að leyfa fóstureyðingar af félagslegum ástæðum fyrst og fremst siðferðileg. Við skulum og hafa það í huga, að umhyggja fyrir barni sem fæðist í þennan heim fer ekki alltaf eftir ríkidæmi eða því hve félagsmálalöggjöfin er fullkomin. Það hafa margir orðið góðir þegnar, sem alist hafa upp við þröngan kost, á sama hátt sem jafnvel ríkidæmi er engin trygging í þessu efni. Ég vil, þó að ég leggi mikla áherslu á hinar félagslegu umbætur, einnig leggja áherslu á þessi víðtækari sjónarmið, sem við verðum einnig að hafa í huga.
Ég leyfi mér að vænta þess, herra forseti, að bæði frv. um fóstureyðingar, það sem við höfum áður rætt um og frv. sem við nú ræðum um, fái afgreiðslu á þessu þingi. Ég þarf ekki að leggja frekari áherslu en ég hef þegar gert, bæði í þessum umr. og umr. um hið fyrra frv. varðandi fóstureyðingar, á mikilvægi þessa máls. Og ég vænti þess að þessi hv. deild beri gæfu til að afgreiða þetta frv. á jákvæðan hátt.
Að lokinni þessari umr. vil ég leyfa mér, herra forseti, að óska að frv. þessu verði vísað til heilbr.- og trn.