28.02.1983
Efri deild: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2354 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)
184. mál, kosningar til Alþingis
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Ég hef alla tíð verið fylgjandi öllum breytingum á lögum um kosningar til Alþingis sem leiða til þess að auðvelda mönnum að kjósa. Hér er greinilega eitt slíkt frv. á ferðinni og þess vegna vil ég lýsa ánægju minni með það og stuðningi við þetta frv.
Varðandi stimplana, sem hæstv. ráðh. minntist hér á, þá má vel vera að rétt sé að láta reyna enn frekar á notkun þeirra áður en það er lögfest að eingöngu skuli nota stimpla utan kjörfundar. Þess vegna mun ég styðja það atriði einnig, þó að mitt frv. á sínum tíma hafi verið um það að eingöngu skuli nota stimplana. Ég vil sem sagt lýsa stuðningi mínum við frv. af þeim ástæðum sem ég gat um hér áðan. Það væri samt sem áður æskilegt að fá þær upplýsingar sem hæstv. ráðh. gat um að nefndin gæti fengið varðandi árangur af notkun stimplanna við sveitarstjórnarkosningarnar á s. l. ári.