01.03.1983
Neðri deild: 47. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2358 í B-deild Alþingistíðinda. (2090)

Um þingsköp

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég harma þetta upphlaup hv. 4. þm. Reykv. Það er orðið reglulegur dagskrárliður að hann hleypur hér upp í stólinn og þá sérstaklega áður en blaðamenn hverfa af fundum. Eftir að þeir hverfa af fundum og þingstörf halda eðlilega áfram hefur hann yfirleitt lítinn áhuga fyrir því að taka til máls. Það er kominn tími til þess að þm. almennt fari að koma hér upp í pontuna og svara hv. þm. Hann kemur hér inn til starfa á Alþingi eftir virkilegt jakahlaup úti í þjóðfélaginu með neikvæðum skrifum um menn og málefni. Það er kominn tími til þess að rifja upp hans pólitísku sögu.

Síðan hv. þm. kom hingað til starfa á hv. Alþingi hefur hann haldið áfram þessum neikvæða málflutningi og jakahlaupi sínu um flokka og það stjórnkerfi sem við höfum búið við og oft borið það saman við það einræðiskerfi sem víða annars staðar er við lýði. Forsendur þær sem hv. 4. þm. Reykv. notaði í máli sínu til þess að óska eftir útvarpsumr. er að gefa í skyn að fjölmiðlar séu misnotaðir af ríkisvaldinu. Ég vil mótmæla þessu. Ég hef ekki orðið var við það að stjórnvöld hefðu bein afskipti af fréttaflutningi fjölmiðla. Ég hef sama rétt til að mótmæla þessu eins og hann hefur til að bera slíkt fram fyrir alþjóð. Ég hef ekki undan neinu að kvarta í starfi fréttamanna hér og er ég þó þm. með sama rétti og virðulegur 4. þm. Reykv. Ég held að fréttamenn eigi annað skilið af þm. en að þeir séu vændir um að gera upp á milli manna. Og síst ætti það að koma frá hv. 4. þm. Reykv. vegna þess að hann er svo til daglega í blöðunum sem fréttaefni. Forsendurnar eru því falskar.

Hitt er svo annað mál, að það stjórnlagafrv. sem hér er um rætt er þess eðlis að það er ekkert óeðlilegt að útvarpað verði frá þeim fundum sem hér eiga eftir að verða um það mál og kjördæmamálið. En ég tel eðlilegt að útvarpað sé frá fundinum öllum svo að allir þeir sem taka til máls tali til þjóðarinnar, því að það er svo sannarlega þörf á að alþm. almennt geti þá svarað á sama vettvangi þeim áróðri sem frá hv. 4. þm. Reykv. kemur fyrir hans nýja bandalagi. Ég vil minna hann og alþjóð á það, að hv. 4. þm. Reykv. er 4. þm. Reykv. fyrir Alþfl. Hann hefur ekki verið kjörinn á þing fyrir neitt sem heitir bandalag úti í bæ. Það á kannske eftir að ske. Og hann situr í þingnefndum sem Alþfl.-maður.

Virðulegi forseti. Ég tek undir þá ósk að frá umr. verði útvarpað. En það verði þá almennar útvarpsumr. sem eiga sér stað og útvarpið standi opið allan þann tíma sem þingfundur stendur.