01.03.1983
Sameinað þing: 59. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2363 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
Umræður utan dagskrár
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég þakka fyrir að fá tækifæri til að segja hér örfá orð utan dagskrár. Það skal taka mjög skamman tíma.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur það gerst að hæstv. samgrh. hefur farið á svig við niðurstöðu flugráðs um ráðningu flugmálastjóra. Af þessu tilefni talaði ég við hæstv. samgrh. í gærkvöld á þingfundi og óskaði eftir því að hann tæki þátt í umr. þar sem ég færi fram á að hann segði hv. Alþingi frá því hvaða sjónarmið hefðu ráðið ráðningu flugmálastjóra og við hvað hæstv. ráðh. ætti þegar hann sakar flugráð um óviðeigandi vinnubrögð. Stuttu síðar kom hæstv. ráðh. að máli við mig og kvaðst ekki geta fjallað um þetta mál snemma á þessum fundi í dag, eins og okkur hafði farið á milli, enda þyrfti hann ásamt öðrum hæstv. ráðh. að mæta í afmælisveislu hjá hæstv. utanrrh. kl. 3. Í morgun hafði ég samband við hæstv. forseta og fékk leyfi hans til þess að taka þetta mál upp utan dagskrár síðar í dag. Hæstv. ráðh. treysti sér ekki til þess að ræða málið þá, en benti mér á að hægt væri að taka málið upp n. k. fimmtudag, en hann mun ekki vera tiltækur eftir kl. 3 á morgun og milli 2 og 3 hyggst hæstv. ráðh. mæla fyrir hafnalögum í hv. Ed. Ég sagði hæstv. ráðh. að ég vildi fá tækifæri til þess utan dagskrár á þessum fundi í dag að taka það fram að um þetta hefði verið beðið. Það hefur verið fylgst með þessu máli af athygli og þess vegna taldi ég nauðsynlegt að fram kæmi hér á þessum fundi í dag og að um það hefði verið samið að málið væri rætt á fundi Sþ. næsta fimmtudag.
Ég sé ekki ástæðu til, enda engin ástæða til, að ræða þetta mál efnislega að svo komnu máli. Ég þakka, herra forseti, fyrir að fá tækifæri til að segja frá þessu hér.