01.03.1983
Sameinað þing: 59. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2364 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)
Umræður utan dagskrár
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Ég vil láta það koma hér fram að í gærkvöld kynnti hv. þm. Friðrik Sophusson mér og nokkrum öðrum þm. Alþb. að hann hygðist fara hér upp utan dagskrár til að ræða um veitingu hæstv. samgrh. á embætti flugmálastjóra. Það kom fram að þm. Alþb. — þeir sem talað var við — studdu eindregið að þetta mál yrði tafarlaust tekið hér til umr. í sérstöku tilefni af ummælum samgrh. bæði í dagblöðum og eins í sjónvarpi í gær.
Í þessari umr. ætluðu nokkrir þm. Alþb. að taka þátt og höfðu búið sig undir að sú umr. færi fram hér í dag. Þegar við komum í þinghúsið fréttum við að ráðh. hefði gripið til þeirrar afsökunar, að vegna þess að afmælisveisla væri haldin hjá Ólafi Jóhannessyni, sem hann þyrfti að sitja, hefði hann ekki tíma til að verja gerðir sínar á Alþingi. Ég tel að þessi fyrirsláttur hæstv. ráðh. sé tilbúningur einn til þess að tefja málið, til þess að drepa umr. á dreif og til að koma í veg fyrir að hægt sé, jafnskjótt og ummæli hans koma fram, að kalla hann ábyrgan fyrir þeim hér á hv. Alþingi.
Ef afmæli Ólafs Jóhannessonar, hæstv, utanrrh., er svona nauðsynlegur verknaður, hvernig stendur þá á því að rúmlega helmingur af þingflokki Framsfl. er staddur hér í þingsalnum og virðist vera það svo lítið kappsmál að sitja þetta afmæli að þeir sitja frekar hér? Það verður að segja þessum hv. þm. Framsfl. til hróss að þeir meta meira að gegna þingstöfum sínum en sitja væntanlegar afmælisveislur hjá hv. þm. og ráðh. Ólafi Jóhannessyni. Hæstv. ráðh. Ingvar Gíslason er t. d. hér í salnum og virðist ekki þurfa að gegna nauðsynlegum skyldustörfum sínum í þessum afmælisfagnaði. Það er því alveg ljóst að núv. formaður Framsfl. hefur gripið það sem hálmstrá, til að þurfa ekki í dag að standa reikningsskap gerða sinna hér á Alþingi, að Ólafur Jóhannesson á afmæli.
Vissulega tel ég rétt að sérhver sem vill hylla Ólaf Jóhannesson á þessum degi fái til þess tækifæri. Það er sjálfsagt og eðlilegt. En vera rúmlega helmings þingflokks Framsfl. hér í salnum þegar þessi umr. átti að fara fram gefur það hins vegar rækilega til kynna að tímasetning afmælisfagnaðarins er ekki með þeim hætti að hún komi í veg fyrir eðlilegar umr. hér. Þess vegna tel ég það fyrir neðan allar hellur að hæstv. samgrh. skuli leggjast svo lágt í þessu máli að notfæra sér 70 ára afmæli Ólafs Jóhannessonar til þess að þurfa ekki að standa reikningsskap hér á Alþingi þessarar umdeildu embættisveitingar — embættisveitingar sem flugráð hefur farið um mjög hörðum orðum og sem hv. Alþingi vill gjarnan fá tækifæri til að ræða við hæstv. ráðh. um. Þess vegna væri það náttúrlega æskilegast að hæstv. forseti mundi láta sækja hæstv. samgrh. og draga hann inn í þingsalinn svo að þessi umr. gæti farið fram því að eins og ég hef vakið hér rækilega athygli á hefur þorra af þingflokki Framsfl. ekki verið boðið í þetta afmæli á þessari stundu, þótt væntanlega kunni þm. að vera boðið síðar.
Það má hins vegar kannske leiða að því einhverjar líkur að það séu viss hugsanatengsl milli þessarar embættaveitingar og framsóknarhátíðar af því tagi sem fram fer í dag, en ég ætla ekki að ræða það nánar hér. Ég óska eftir því við hæstv. forseta Sþ. að hann tryggi að hæstv. samgrh. verði hér á fimmtudaginn og í upphafi fundar verði þetta mál tekið hér fyrir ítarlega og rækilega og hæstv, ráðh. verði ekki látið haldast það uppi að nota afsakanir af þessu tagi.