03.11.1982
Neðri deild: 7. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (211)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. svörin, en mín skoðun er sú, að að hika í aðgerðum og samþykkt sé að lyfta undir aðgerðir þrýstihópa, m.a. í Bandaríkjunum. Ég tel að við Íslendingar höfum stundað þessar veiðar um langt árabil undir vísindalegu eftirliti og alltaf farið eftir ákvörðun vísindanefndar Alþjóðalivalveiðiráðsins. Því höfum við gætt mikillar hófsemi og varfærni við þessar veiðar og því getum við líka staðið frammi fyrir hverjum sem er og skýrt okkar álit. Ef við hefðum gengið mjög harkalega fram og brotið allar reglur og aðvaranir vísindamanna væri málstaður okkar mjög slæmur í Bandaríkjunum og víðar.
Við metum að vissu marki störf friðunarmanna og þá einnig þeirra Greenpeace-manna, en ekki þegar gengið er út í öfgar. Við skiljum vel baráttu þeirra fyrir því að leyfa ekki og sporna við að hættulegum úrgangsefnum sé kastað í sjóinn og þannig sé verið að eyðileggja framtíð sjávarins. En við getum ekki skilið að það sé gengið of nærri þessum dýrastofni eins og við höfum hagað okkar veiðum og okkar framleiðslu í þessum efnum.
Ég held að það muni seint ske að Bandaríkjastjórn fari að beita Íslendinga refsingum í viðskiptum fyrir að vilja bjarga sér og veiða. Við erum veiðiþjóðfélag og við höfum tekið upp — ekki á þessu eina sviði heldur á öllum öðrum sviðum — miklu strangari kröfur við allar veiðar og að ganga hvergi of nærri nokkrum stofni í hafinu. Við getum verið ákaflega stoltir af því að hafa tekið þessa stefnu. Við notum stærsta möskva í botnvörpuveiðarfærum sem þekkist í löndunum í kringum okkur og hvar sem er. Því höfum við verið framarlega í verndun þeirra afurða sem við sækjum í sjóinn og því getum við haldið áfram veiðum.
Ég held að það sé hættulegt fyrir okkur að láta álit þrýstihópa og móðursýkistal í þessum efnum hafa áhrif á gerðir okkar. Því eigum við að hraða því að taka ákvörðun um að mótmæla samþykki Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þetta kemur, eins og hæstv. ráðh. sagði, illa við fleiri en þetta eina fyrirtæki, Hval hf. í Hafnarfirði, sem er auðvitað langstærsti aðilinn. Það kemur líka mjög illa við þá sem hrefnuveiðar stunda og vinnslu á þeirri afurð.
Norðmenn tóku skýra og afmarkaða afstöðu fyrir örfáum dögum. Færeyingar hafa gert það líka. Mótmæli hafa að vísu átt sér stað. Tveir Greenpeace-menn hafa látið hlekkja sig við skáp eða hurð á tveimur stöðum í Kaupmannahöfn. En ég held að þó að þeir láti hlekkja sig við tröppur sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn verði að hafa það. Þeir gera það þá svo lengi sem þeir vilja og síðan opna þeir hlekkina og ganga burtu þegar þeir hafa fengið nóg. Við verðum að taka okkar eigin ákvarðanir og við verðum líka að taka tillit til þess hvernig ástand er í atvinnumálum, hvernig ástand er hvað varðar þjóðarframleiðslu og samdrátt og versnandi lífskjör fólksins í landinu.