01.03.1983
Sameinað þing: 59. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2383 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

185. mál, fíkniefnafræðsla

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég leyfi mér að mæla fyrir till. til þál. um undirbúning og skipulag fíkniefnafræðslu. 1. flm. þessarar till. er Sigurlaug Bjarnadóttir, en hún átti sæti á Alþingi nú fyrir skömmu í veikindaforföllum hv. 1. þm. Vestf. Henni vannst ekki tími áður en hún hvarf af þingi að mæla fyrir þessari till. og því kem ég hér í hennar stað, en ég er 2. flm. Aðrir flm. till. eru hv. þm. Árni Gunnarsson, Ólafur Þ. Þórðarson. Guðrún Helgadóttir og Pétur Sigurðsson. Till. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj., að nú þegar verði hafinn á vegum menntmrn. skipulegur undirbúningur að fræðslu í grunnskólum landsins um áfengi. ávana- og fíkniefni.

Í upphafi verði sérstök áhersla lögð á:

a) átak í grunnmenntun og endurmenntun kennara varðandi þessa fræðslu.

b) útgáfu námsgagna á þessu sviði.

Jafnframt verði tryggt við afgreiðslu næstu fjárlaga nægilegt fjármagn til þessara verkefna.“

Í grg. segir:

„Þessi till. til þál. er borin fram í tengslum við annað mál, sem nú liggur fyrir Alþingi, þ. e. lagafrv. sem felur í sér ákvæði er fellt skuli inn í 42. gr. grunnskólalaga um áfengis- og fíkniefnafræðslu. Frv. hefur verið afgreitt ágreiningslaust frá menntmn. Nd. og má vænta þess, að Ed. afgreiði málið jákvætt innan skamms.“

Það má upplýsa hér nú að menntmn. Ed. hefur afgreitt þetta mál á fundi sínum í dag.

„Fram að þessu hefur sú litla fræðsla, sem farið hefur fram innan skólanna á sviði áfengis- og fíkniefna, verið framkvæmd samkv, reglugerð með áfengislögum frá árinu 1954. Reglugerðin tekur einungis til bindindisfræðslu að því er varðar áfengi. en ekki tóbak eða önnur fíkniefni, sem komið hafa hér til sögunnar á síðari árum. Framkvæmd reglugerðarinnar innan skólanna hefur þar að auki verið ærið brotakennd, að mestu komin undir áhuga einstakra kennara og skólastjóra. Það er mjög svo óeðlilegt, að lagaákvæði um skólastarf séu aðeins í áfengislöggjöf, en ekki jafnframt í fræðslulöggjöf, og athyglisvert er, að í viðamikilli skýrslu, sem fyrir nokkru er komin fram frá sérstakri nefnd, sem falið var að endurskoða grunnskólalögin, er hvergi að finna tillögu um að ákvæði um áfengis- og fíkniefnafræðslu verði fellt inn í lögin. Áðurnefnt lagafrv., ef að lögum verður, er í sjálfu sér nokkur áfangi og er þessari þáltill. ætlað að fylgja nú málinu frekar eftir.

Svo margþætt og vandasamt verkefni sem hér er annars vegar þarf vandlegan undirbúning. Beinist þessi till. fyrst og fremst að þeim þætti. Ýmsir aðilar, einstaklingar og starfshópar á vegum menntmrn. hafa að undanförnu unnið að því að móta hugmyndir og stefnu í þessum málum og hafa verið flm. þessarar till. hjálplegir um ýmis gögn og upplýsingar. Sitthvað hefur þannig verið gert nú þegar til athugunar og undirbúnings, en heildstæð stefnumörkun varðandi þessa fræðslu, innan skóla sem utan, vantar. Hún þyrfti m. a. að fela í sér aukið samstarf allra þeirra aðila, sem að þessum málum vinna, og jafnframt gleggri verkaskiptingu. Niðurstöður viðamikilla erlendra rannsókna, m. a. á vegum UNESCO, eru tiltækar og koma okkur að sjálfsögðu að miklu gagni.

Þeir aðilar, sem að þessum málum vinna hér heima, leggja megináherslu á að við verðum að byrja á að gera stórátak í grunnmenntun og endurmenntun kennara, sbr. a-lið þessarar till., í samráði og samvinnu við Kennaraháskóla Íslands. Það er talið í alla staði eðlilegra og æskilegra, að hinn almenni kennari fái menntun og starfsþjálfun til að inna þessa fræðslu af hendi innan skólans fremur en fá til þess utanaðkomandi sérfróða aðila. Fræðslan á að falla sem eðlilegast inn í daglegt skólastarf og beinast að einstaklingnum sjálfum og umhverfi hans fremur en að fíkniefnin sjálf verði miðpunktur fræðslunnar. Að byggja upp ábyrgðartilfinningu nemandans, dómgreind og sjálfstæði gagnvart áhrifum ríkjandi tískuviðhorfa er talið mikilvægt markmið.

Útgáfa námsgagna á sviði fíkniefnafræðslu, sbr. b-lið till., er annað meginatriði hennar. Gert er ráð fyrir að fræðslan verði felld inn í ýmsar almennar námsgreinar, fyrst og fremst samfétagsfræði og líffræði. Engu að síður er nauðsynlegt að til sé sérstakt námsefni og námsgögn um einstaka þætti. Vandað erlent námsefni, þýtt á íslensku og staðfært, kemur þar vissulega til greina.

Hér þarf að ganga beint til verks, svo að unnt sé að taka myndarlega á þessari fræðslu og skipulagi hennar í framtíðinni. Til hennar þarf að vanda í hvívetna svo sem framast er kostur, ella kynni að vera verr af stað farið en heima setið. Ljóst er að til þess þarf bæði mannafla og fjármagn. Því er í niðurlagi till. farið fram á að tryggt verði við afgreiðslu næstu fjárlaga nægilegt fjármagn til þeirra verkefna sem í till. felast. Engum blandast hugur um hve mikilvægt það er og viðurhlutamikið að okkur takist að bægja frá íslenskum ungmennum því mikla böli sem áfengis- og fíkniefnaneysla er orðin meðal ýmissa grannþjóða okkar. Í þeim efnum má einskis láta ófreistað, og óhæfa er að íslenskir skólar fyrir sitt leyti leiði lengur hjá sér að takast á við þennan vanda. Það væri hins vegar óraunhæft að ætla að skólarnir einir geti valdið þeim vanda. Skal í því sambandi vitnað í sjónvarpsviðtal fyrr í vetur við Sigurð Pálsson, sem starfar í skólarannsóknadeild menntmrn. að fíkniefnamálum:

„Mér finnst rétt að leggja áherslu á að ég tel óvarlegt að binda of miklar og þá óraunhæfar vonir við skólann í þessum efnum. Hér er við flókinn vanda að etja og allir þeir, sem hafa með börn og ungmenni að gera, verða að leggjast á eitt; heimilin, æskulýðsleiðtogar, fjölmiðlar o. s. frv. Skólinn er aðeins einn hlekkur í þessari keðju. “"

Ég vil svo mælast til þess, herra forseti, að eftir að þessari umr. er frestað verði málinu vísað til allshn.