03.11.1982
Neðri deild: 7. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (214)

Um þingsköp

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég vænti þess að hæstv. forseti beiti sér af sínum alkunna dugnaði og réttsýni fyrir því á væntanlegum fundi, sem hér var minnst á, að þetta stórmál, sem ég tel vera, þokist framar á dagskrána til umr. Ég vil benda á að ég sé ekki betur en fimm mál sem síðar komu fram séu ofar á dagskrá en þetta tiltekna. Það er ástæða til að vekja athygli hæstv. forseta á því, að þó að hér sé um að ræða frv. stjórnarandstöðu þm., þ.e. Alþflþm., er þetta það stórt mál að ég tel að full ástæða sé til þess að reynt sé að koma því þannig fyrir að málið komi hið allra fyrsta til umr. Þetta er ekki síst mælt í ljósi þess að ég sé ekki betur, ef engin sinnaskipti eiga sér stað hér á næstunni, en yfirgnæfandi meiri hl. þingmanna sé efnislega samþykkur því sem hér er verið að tala um.