02.03.1983
Neðri deild: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2414 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)
201. mál, vegalög
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Hér er lögð til breyting sem þýðir að sýsluvegasjóðir tapa um 31 millj. kr. á ári. Það hlýtur að vera spurning, hvort það er yfir höfuð réttlætanlegt að leggja þá kvöð á sveitarfélög að mikil bílaumferð sé um þeirra sýsluvegi án þess að viðkomandi bílar greiði gjald til sveitarfélagsins. Mér sýnist að það ákvæði að taka orlofshúsin út sé nánast út í hött nema sýsluvegasjóðum sé þá bættur sá fjármissir sem þarna er verið að leggja til.