02.03.1983
Neðri deild: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2436 í B-deild Alþingistíðinda. (2197)
213. mál, almannatryggingar
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég hlýddi á mál hæstv. heilbr.- og trmrh., þar sem hann ræddi um þetta frv., og því miður varð mér ekki ljóst hvort hann er stuðningsmaður þess eða hvort hann ætlar að leggjast gegn því. og mæltist hann þó sérstaklega til þess að mál hans yrði ekki misskilið. Ég vænti þess því eindregið að hann tali það skýrt um málið að það liggi ljóst fyrir. Þetta mál er mikið réttlætismál, og það vekur undrun ef það er tilfellið að heilbrmrh. hikar við að veita því stuðning.