13.10.1982
Sameinað þing: 2. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

Um þingsköp

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hefur komið fram hjá fjölmörgum þm., að það er mikið alvörumál þegar ákveðið er hvort takmarka eigi rétt þm. til þess að bera fram fyrirspurnir. Þjóðþingið er opinn vettvangur fyrir umr. Í stjórnarskránni er lögverndaður réttur hvers þm. til þess að bera sjálfur ábyrgð á gerðum sínum og vera ekki skuldbundinn neinum í því efni nema samvisku sinni. Þess vegna er það ákvörðun sem er alveg rétt hjá fyrirspyrjanda að getur haft alvarlegar afleiðingar, ef meiri hluti þings tekur sér fyrir hendur að ákveða fyrir hvern og einn þm. hvað er rétt gagnvart hans eigin samvisku eða ekki og, draga þær markalínur sem eiga að gilda í þessum efnum. Ég tel að við meðferð þessa máls hafi orðið á mistök, sem ég skal ekkert um seg;a hverjum eru að kenna, hvort það er fyrirspyrjanda eða forseta þingsins. En þegar þingið tekur afstöðu í máli eins og þessu te! ég nauðsynlegt að fsp. liggi fyrir skriflega og einstakir þm. og þingflokkar hafi haft tíma og tækifæri til þess að fjalla um málið á lengri tíma heldur en þeim fáeinu mínútum sem hér voru notaðar til að knýja fram endanlega niðurstöðu í þessu máli.

Fjölmörg önnur atriði, sem koma á dagskrá þingsins, eru sett á prentaða dagskrá og tekin afstaða til hvort leyfa skuli og hvernig skuli ræða. Það var ekki gert í þessu tilviki. Það var ekkert á dagskrá fundarins sem gaf til kynna að þetta mál ætti að taka hér fyrir. Málið lá ekki fyrir í skriflegu formi og þm. höfðu ekki aðstöðu og tóm til þess að vega og meta með eðlilegum hætti, líkt og um önnur mál, hvaða afstöðu þeir taka. Ég vil beina því til hæstv. forseta og þm. allra, að ef önnur tilefni af þessu tagi koma upp verði farið með það líkt og öll önnur þingmál, að það liggi fyrir með eðlilegum hætti og í tæka tíð þannig að þm. og þingflokkar hafi sama tíma og gagnvart öðrum þingmálum, sem tekin eru á dagskrá með fyrirvara um hvernig með skuli fara og hvort leyfa skuli. Það sé ekki farið með málið með þeim hætti sem hér hefur verið gert.