02.03.1983
Neðri deild: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)
158. mál, bann við ofbeldiskvikmyndum
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. menntmn. fyrir góða og skjóta afgreiðslu þessa máls og vænti þess að hv. þd. geti orðið við þeirri till. n. að málið verði samþykkt hér í Nd. og gangi sína leið.
Ég vil taka það fram, eins og ég gerði þegar ég flutti framsöguræðu fyrir þessu máli, að vissulega er hér um mjög alvarlegt mál að ræða, þegar til þess ráðs er gripið að hvetja til ákveðins banns á slíkum kvikmyndum, vegna þess að það er nokkurn veginn sannað mál að þessar kvikmyndir, sem hér er um að ræða, hafa mjög ill uppeldisleg áhrif á börn og jafnvel eldra fólk sem þær sér. Ég held því að það sé mikil nauðsyn að grípa inn í þetta.
Hitt vil ég reyndar taka fram, að það er mjög alvarlegt í sjálfu sér að þurfa að grípa til slíkrar ritskoðunar, ef svo má til orða taka. Vissulega er þetta „sensúr“, eins og það heitir á útlendum málum, en eigi að síður kann það stundum að vera eðlilegt að beita slíkri hörku í lagaframkvæmd. En ég vil taka það fram, að með þetta vald verður vissulega að fara af mikilli gát, og það má alls ekki líta svo á, að hér sé verið að fara út í að ritskoða kvikmyndir af engu tilefni. Ég vil að það komi mjög skýrt fram, enda veit ég að hv. menntmn. er mér sammála um það. Ég hef lagt á það mikla áherslu að hér hlýtur að vera um undantekningaratriði að ræða, en eigi að síður hef ég fallist á þau rök, sem fram hafa komið í ítarlegum viðræðum margra áhugaaðila og uppalenda hér í landinu þar sem ég hef verið viðstaddur, að það sé nauðsynlegt að grípa til kvikmyndaskoðunar með þessum hætti.
Ég vil minna á að kvikmyndaskoðun er engan veginn nýtt fyrirbæri í okkar landi né í öðrum löndum. Það má segja, að hér sé aðeins um nýja útfærslu á beitingu slíkra ákvæða að ræða í raun og veru. Við höfum haft hér um margra áratuga skeið eftirlit með kvikmyndum, en hins vegar er það eftirlit með þeim hætti að það nær aðeins til ákveðinna kvikmynda í raun. Má segja að það nái eingöngu til þeirra kvikmynda eða bíómynda sem sýndar eru almennt í kvikmyndahúsum, en ekki nær þetta til sjónvarpskvikmynda, því að sjónvarpið hefur sjálft verið talið hafa vald á því hvaða myndir eru þar sýndar eða á þess vegum. En það sem þetta snertir fyrst og fremst er vídeóefnið, sem farið er að berast í stríðum straumum til landsins. Mjög mikið af því efni er óneitanlega menningarsnautt efni og greinilega verið að leitast við að sýna myndir sem eingöngu eru framleiddar og sýndar til að ala á ofbeldishneigð eða þar sem eingöngu er sóst eftir því að sýna ofbeldið ofbeldisins vegna. Ég fagna því að sjálfsögðu að hv. nefnd hefur tekið vel í þetta frv. og leggur til að það verði samþykki hér í Nd. og það megi halda áfram allt til enda og verða að lögum.