03.03.1983
Neðri deild: 49. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2452 í B-deild Alþingistíðinda. (2240)
14. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Á síðasta Alþingi lagði ég fram frv. sem fól í sér 20% þátttöku almannatrygginga í tannlækningum. Þá var ekki fyrir því fylgi að samþykkja slíkt. Nú virðist það vera breytt og það sé fylgi fyrir að samþykkja slíkt. Það er ekki sama hvort þm. flytja mál eða ríkisstj., virðist vera. Ég mun þegar í dag leggja fram þetta frv., fyrst það virðist fá stuðning hér á hv. Alþingi. Þegar ég ræddi um það mál í fyrra ráðlagði hæstv. heilbrrh. mér og taldi að það væri eðlilegra að fara skattaleiðina en greiða úr almannatryggingum. Þessu er hægt að fletta upp í Alþingistíðindum. Ég fór eftir því sem hæstv. heilbrrh. sagði þá og lagði fram þetta frv., og ég segi já við þessu frv., en ítreka að ég mun leggja fram frv, um almannatryggingar strax í dag.