03.03.1983
Neðri deild: 49. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2456 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

227. mál, happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er flutt að beiðni stjórnar sjómannadagsráðs og Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna og er efni þess að framlengja heimild þessara aðila til rekstrar happdrættis um 10 ár eða til ársloka 1994.

Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna var komið á fót með lögum á árinu 1954. Gilti sú heimild í 10 ár, en hefur tvívegis verið framlengd í 10 ár í senn, síðast til ársloka 1984. Vegna framtíðaráætlana er nú sótt um framlengingu í 10 ár, þótt enn sé rúmt ár eftir af heimildinni.

Ágóði af happdrættinu rennur lögum samkvæmt í Byggingarsjóð aldraðs fólks. 60% ágóðans skal varið til byggingar Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Heimilt er stjórn Dvalarheimilis aldraðra sjómanna þó að veita styrk eða lán til annarra dvalarheimila aldraðs fólks.

Ég tel eigi þörf á að rekja hér framkvæmdir þær sem unnið hefur verið að fyrir fé Happdrættis Dvalar heimilis aldraðra sjómanna. Hv. alþm. eru þær kunnar, byggingarnar að Hrafnistu í Reykjavík og í Hafnarfirði. Á Hrafnistu í Reykjavík dvelja nú 380 manns, á vistdeild, hjúkrunardeild, sjúkradeild og hjónagörðum. Á Hrafnistu í Hafnarfirði eru 188 manns, í almennri deild og í hjúkrunardeild. Á báðum stöðum er fjöldi manns á biðlista.

Enn er ólokið ýmsum framkvæmdum við Hrafnistu í Hafnarfirði, svo sem um aðstöðu til endurhæfingar, sundlaug. lóð o. fl. Þar eru og fyrirhugaðar byggingar smáhúsa með litlum íbúðum, sem byggðar verða í samvinnu við ýmsa aðila, verkalýðsfélög, góðgerðarfélög og sveitarfélög. Einnig er þar fyrirhuguð þriðja stóra byggingin, ætluð fyrir almenna vist og aldraða með geðræn vandamál.

Ég tel ekki ástæðu til að rekja hér frekar fyrirætlanir sjómannadagsráðs. Allar eru þessar áætlanir byggðar á því að samtökin njóti áfram þess stuðnings sem leiðir af rekstri Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.

Vegna undirbúningsframkvæmda og fjárskuldbindinga er stjórn Sjómannadagsráðs brýnt að fá afgreiðslu á þessu erindi og vænti ég þess, að unnt verði að afgreiða frv. þetta nú á þinginu, þótt liðið sé mjög á þingtímann.

Ég tek fram að stjórnir sjómannadagsráðs og happdrættisins hafa látið ráðuneytinu í té nokkru gleggri greinargerð en ég hef hér rakið, og er hún að sjálfsögðu til reiðu fyrir þá nefnd sem fær málið til meðferðar. Þá er sjómannadagsráð án efa reiðubúið að láta í té allar nauðsynlegar upplýsingar.

Ég vil að lokum leggja til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og til fjh.- og viðskn.