03.03.1983
Neðri deild: 50. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (2269)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég held að ég hljóti að hefja mál mitt eftir ræðu hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar, sem mælti hér af miklum tilfinningahita fyrir því frv. sem hann hefur flutt ásamt öðrum þm. hér, á því að spyrja hv. Nd. hvert sé hlutverk þm. Það er nokkuð skýrt kveðið á um það í stjórnarskrá landsins hvernig menn skuli greiða atkvæði á Alþingi Íslendinga og síðan undirritum við eið að því að fara að stjórnarskránni þegar við gerumst þm. Þess vegna — þó að það séu að koma kosningar — hlýt ég að greiða atkvæði áfram, eins og ég hef gert hingað til, samkvæmt sannfæringu minni. Sú sannfæring er ekki endilega fólgin í því, vona ég, að leita eftir vinsældum, og eflaust getur þetta frv. verið vinsælt. En ég tel þetta rangt frv. og ég tel öll vinnubrögð í sambandi við það röng líka. Þetta er 208. mál þingsins, það er nýlagt fram. Ég leyfi mér að efast um, hv. þm., að margir ykkar hafi farið nákvæmlega ofan í þetta frv. Síðan kemur það út úr nefnd á örfáum dögum, reyndar að formanni fjh.- og viðskn. fjarverandi. (GJG: Þú hefur ekki alltaf saknað hans.) Ekki veit ég hvaðan hv. þm. hefur vitneskju um hvenær ég sakna hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar. Ég hef reynt að geyma það með mér.

Þegar nál. er skilað í deildinni í gær sátu hér inni svona 4–5 þm., og þetta var ekkert venjulegt nál. Það voru umfangsmiklar brtt. í tveim liðum, sem eru líklega einar 15 prentaðar línur. Sjálft var frv. tvær línur. Þetta er ætlast til þess að við afgreiðum hér í deildinni án þess að skoða í hverju þessar brtt. felast nákvæmlega. Ég tel að svona vinnubrögð við löggjöf þjóðarinnar séu algjörlega forkastanleg.

Efnislega vil ég segja það um þetta frv., að í fyrsta lagi er það óþarfi vegna þess að í núverandi skattalögum eru heimildarákvæði sem undantekningarlaust eru nýtt hjá öllum sveitarfélögum og hjá ríkisskattstjóraembættinu. Að fólk viti hugsanlega ekki um heimildina til að fá lægri skatta þegar tekjur minnka er annað mál, og það er mál framkvæmdavaldsins að upplýsa þjóðfélagsþegnana um ákvæði í lögum. Mér er hins vegar verulega til efs að þeir séu margir sem vita ekki um þetta, og það væru þá hæg heimatökin fyrir skrifstofur stéttarfélaganna að upplýsa sína öldnu starfsmenn um þennan rétt. Ég get sjálf vitnað um það, að ég hygg að ég hafi skrifað fyrir viðskiptavini Tryggingastofnunar ríkisins fyrstu 500 bréfin til skattyfirvalda og ég veit aldrei til annars en að þau hafi verið afgreidd umyrðalaust, fljótt og vel.

Í öðru lagi erum við hér að setja mjög sérkennilegt ákvæði í núverandi skattalög. Sú skattalöggjöf byggist á því, að menn skuli greiða skatta eftir gjaldþoli, eftir efnum og ástæðum, við skulum a. m. k. segja að svo eigi að vera. Löggjöfin er alla vega byggð þannig upp. Hér er hins vegar ákveðnum hópi þjóðfélagsþegna gefinn sjálfkrafa eftir helmingur tekna sinna til skatts án þess að gjaldþol sannarlega þurfi að lækka, og það er þetta sem ég er að gera athugasemd við. Ég tel að þessi löggjöf sé röng, hún hafi verið fljótfærnislega unnin hvað sem öllum vinsældum málsins kann að líða. Ég get ekki staðið hér að löggjöf sem mér finnst röng og illa unnin.

Alþingi Íslendinga á að setja lög sem skipta máli. Vandræðum einstakra þjóðfélagsþegna, sem vera kann að viti ekki um núgildandi heimildarákvæði, má breyta með því að hæstv. fjmrh. drífi sig nú í það, sem hann lofaði þegar núverandi ríkisstjórn tók til starfa, að koma á staðgreiðslukerfi skatta. Þá er þetta mál og þessi vandræði úr sögunni.

Ég sé hins vegar ekki, hvorki pólitískt, siðferðilega né lagalega, nokkra ástæðu til að menn sem hætta störfum og hækka kannske verulega í tekjum, því það er til og það eru ekki bara hæstaréttardómarar, fái sjálfkrafa skattalækkun. Fólk sem hefur unnið 8 stunda vinnudag hækkar í sumum tilvikum í launum, þegar það hættir störfum, þegar saman koma bætur almannatrygginga og lífeyrissjóðsgreiðslur.

Ég tel ekki ástæðu til að taka þessar tekjur allar út úr skattakerfinu. Ég hygg líka að það geti orkað meira en tvímælis, og ég veit ekki einu sinni hvort flm. þessa frv. gera sér alveg ljóst að allar bætur almannatrygginga, lífeyrir, tekjutrygging. eru skattskyldar tekjur. Hins vegar koma sjaldnast skattar á þær einar, vegna þess að ef fólk hefur ekki aðrar tekjur nær það ekki skattstiga og þar af leiðandi koma ekki skattar á slíkar tekjur. Mér er það stórlega til efs að hægt sé með frv. sem þessu að strika þessar tekjur út úr skattalöggjöfinni.

Ég geri mér fullkomlega ljóst að ég á ekki eftir að græða á þessari afstöðu minni, síst rétt fyrir kosningar. Ég treysti því hins vegar vegna annarra starfa minna hér á Alþingi að aldrað verkafólk í landinu viti að cg er ekki höfuðfjandi þess. Ég ætlast til þess að fólki sé það ljóst og treysti því að þessi afstaða mín verði skilin. Ég geri náttúrlega ráð fyrir að fjölmiðlar snúi út úr henni eins og vant er og einhverjar fyrirsagnir komi um hversu vond ég sé við gamla fólkið. (HBl: Þú hefur nú reynslu fyrir því.) Svoleiðis leik er hægt að leika. Ég neita að taka þátt í honum.

Ég er ábyrg fyrir þeim lögum sem fara héðan út úr deildinni. Þessi lög eru fljótfærnisleg, þau eru röng, þau eru illa unnin og ég hlýt að hafna því að greiða atkvæði með þeim. Mér þykir leitt að við skulum þurfa að standa hér upp í hárinu hvort á öðru, hv. félagi minn Guðmundur J. Guðmundsson og ég og hv. 1. þm. Reykv., en ég vænti þess að þeir skilji þessa afstöðu mína og meti hana sem slíka. Ég geri ekki ráð fyrir að þeir hafi mín góðu ráð að neinu. Þau góðu ráð, sem gefin eru hér í hinu háa Alþingi, þjóna sjaldnast nokkrum tilgangi ef menn eru nógu staffírugir að standa á málum sem þessu. En ég hlýt að segja enn og aftur að ég mun ekki greiða þessu frv. atkvæði.