03.03.1983
Sameinað þing: 60. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2486 í B-deild Alþingistíðinda. (2287)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um flestar þær ræður sem hér hafa verið haldnar. Þær hafa verið málefnalegar flestar, allar nema ein. En út af síðustu ræðu vil ég segja það, að hv. þm. skipaði flugráð það sem nú situr og það voru ýmsir sem undruðust þá skipun. Ég held að sumir hafi talið að þá væri gengið fram hjá hæfileikamanni. Ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það.

Ég vil segja það vegna orða hv. þm. Árna Gunnarssonar að hann er fyrsti maðurinn sem vefengir að þessi skipan hafi verið lögmæt. Það er sjálfsagt að láta á það reyna. Ég hef ekkert við það að athuga. Ég fullyrði að hún er að öllu leyti lögmæt. Ef hún er ekki lögmæt ber að sjálfsögðu að afturkalla hana.

Ég vil taka það fram að ég skal svo sannarlega láta hæfileikamenn njóta sín og tel mig hafa gert það. Ég hef hvað eftir annað sagt að Pétur Einarsson hefur gegnt þessu starfi með ágætum. Hér var gert lítið úr reynslu hans og menntun. Það gerði hv. þm. Garðar Sigurðsson á sinn máta. Hann tók sem sérgrein í lögfræðinni flugmál. Það tel ég út af fyrir sig einnig vera kost. Ég tel það heldur engan ókost að hann hefur unnið mörg störf til lands og sjávar. Kom það úr hörðustu átt að heyra það gagnrýnt á þennan máta.

Það er mikill misskilningur að með nýju frv. sé gert ráð fyrir því að leggja flugráð niður og sæmir ekki að flytja mál þannig úr þessum fundarstól. Þetta mál liggur fyrir Ed. Þar er sérstakur kafli um flugráð, þar sem sérstaklega er getið um mikil verkefni flugráðs. Það er náttúrlega alrangt, og ég held að það hafi nú bara verið mismæli hjá hv. þm., að flugráð ætti með því að leggja niður. Staðreyndin er sú, að með þessu frv. er verið að reyna að setja lög um flugráð í þeim anda nánast sem flugráð hefur starfað. Flugráð fer núna með þau verkefni sem ráðh. felur því. Flugráð á að mínu mati ekki að fjalla um daglegt amstur í flugmálastjórn og hefur ekki gert það nema að litlu leyti, svo að þetta er mikill misskilningur. Að verkfræðimenntun hafi verið eðlilegri í þessu sambandi, um það má lengi deila. Fyrrverandi flugmálastjóri, sem allir báru að sjálfsögðu hina mestu virðingu fyrir og treystu, var ekki verkfræðingur. Ég heyrði engan efast um hans hæfileika. Lögin gera ekki þá kröfu að þarna sé um verkfræðimenntun að ræða. Ég er almennt heldur á móti því að í lögum sé sett slík krafa. Ég er á móti því og tel einmitt að þar eigi hæfileikar fremur að ráða en krafa í lögum um ákveðna menntun.

Hv. þm. Skúli Alexandersson talaði hér málefnalega og ég hef út af fyrir sig ekkert við það að athuga sem hann sagði. Við erum ekki á sama máli um þessa skipun og ég geri að sjálfsögðu enga athugasemd við það. Hv. þm. sagði að ég hefði leitað til annarra eftir umsögnum — en leiðrétti sig svo einhvern veginn á þann máta að ég hefði farið eftir öðrum umsögnum. Ég leitaði ekki til annarra eftir umsögnum, ég vil láta það koma skýrt fram. Hins vegar hefur þeim sem mjög oft eru kallaðir hagsmunaaðilar, hv. þm. Albert Guðmundsson kallaði þá þrýstihópa, verið talið frjálst að láta sínar skoðanir í ljós, og ég tel alveg sjálfsagt að skoða slíkt einnig þó að lögum samkvæmt hafi þeir ekki tillögurétt. Ég tel t. d. ákaflega mikilvægt að gott samstarf sé með flugmalastjóra og umdæmisstjórum um landið. Þeir hafa, eins og allir vita, mjög mikið saman að sælda og æskilegt að þar sé góð samstaða, engu síður en á milli flugmálastjóra og flugráðs. Ég vil sérstaklega taka fram út af því sem hv. þm. sagði um störf flugráðs að ég gæti í mörgu hælt flugráði, sem nú situr, fyrir góð störf. Flugráð hefur haldið reglulega fundi, skilað af sér ítarlegum tillögum í fjölmörgum málum og góðum fundargerðum. Þær hafa verið glöggar og ég hef verið mjög ánægður með það. Ég get að sjálfsögðu nefnt hér fjölmörg mál, þar sem ég hef farið eftir tillögum flugráðs, en ég hef ekki gert það í öllum tilfellum. Og ef ég sit í þessu embætti áfram vil ég alls ekki lofa því að ég muni gera það í öllum tilfellum.

Það var gert töluvert úr því að ég hefði sagt í blaðaviðtali að menn hafi verið látnir skrifa undir. Það má vel vera að það sé ofmælt að menn hafi verið látnir skrifa undir. En var það ekki líka ofmælt að menn eða allir a. m. k. — hefðu boðist til að skrifa undir? Vill ekki hv. þm. segja mér hvort allir hafi boðist til að skrifa undir? Ég hef nefnilega óljósan grun um að það sé ekki alveg 100% . (Gripið fram í: Allir.) Allir aðalmenn, já. En ekki meir um það.

Um ræðu hv. þm. Alberts Guðmundssonar get ég því miður ekki sagt það sama og ég hef sagt um aðrar ræður. Ég get notað þau orð sem hann notaði um mig. Hún var dæmalaus. Hins vegar vakti hún enga undrun hjá mér, því ég hef löngu vanist þessum stóryrðum hans og ræðum, sem byggðar eru vægast sagt á hálum ís eins og þessi ræða hans.

Hann hneykslaðist á því að ég léti undan þrýstihópum og fullyrti að ég hefði borið fram þá skýringu helsta að aðrir hefðu mælt með Pétri Einarssyni. Hins vegar las hann svo seinna í ræðunni ummæli mín úr blöðum, sem ég skrifaði hér niður, að ég hefði sagt: Hins vegar vegur þyngst hjá mér að Pétur Einarsson hefur staðið sig vel í starfi og við erum ánægðir með hann í ráðuneytinu og ég tel ódrengilegt að ganga fram hjá manni sem hefur sinnt þessu starfi aðfinnslulaust þennan tíma. Ég hef hvað eftir annað tekið það fram að þetta réði fyrst og fremst minni ákvörðun. Menn hafa talað hér um flokksskírteini og fullyrt að það hafi ráðið. Ég hef sagt áður: Að öðru jöfnu þá mun sannarlega ekki framsóknarmaðurinn gjalda þess, og gæti þar reyndar vísað í aðra stjórnmálamenn sem hafa látið sér svipuð orð um munn fara. En það sem réði minni ákvörðun var sú staðreynd, sem er staðfest hér af manni eftir mann, að Pétur Einarsson hefur staðið sig vel í starfi. Og þegar hv. þm. var að hneykslast á því að ég hefði sagt að hann hefði gegnt starfi flugmálastjóra, þá las ég upp ummæli hans úr Dagblaðinu, þar sem hann sjálfur talar um það að hann hafi fyrst sem varaflugmálastjóri og svo sem flugmálastjóri sinnt sínu starfi vel.

Mér er að sjálfsögðu ljóst að Pétur Einarsson hefur ekki sinnt starfi flugmálastjóra nema skamman tíma. Hins vegar er það alrangt hjá hv. þm. að hann hafi ekki sinnt starfi varaflugmálastjóra nema í tvo mánuði. Hann var skipaður varaflugmálastjóri í ágúst 1980, ef ég man rétt, eins og reyndar kemur fram í þeim gögnum sem flugráð hefur sent frá sér. Hann hefur því sinnt starfi varaflugmálstjóra í tvö ár og 4–5 mánuði. Fyrirgefið, ég held að það hafi ekki verið í ágúst, það var í lok ársins 1980. Hins vegar hefur Pétur Einarsson verið starfandi hjá flugmálastjórn í 41/2 ár. Hann var skipaður fulltrúi í ágúst 1978 svo að hann hefur starfað hjá flugmálastjórn lengur en þann tíma sem hann hefur verið þar varaflugmálastjóri.

Ég sagði aldrei að flugráðsmenn hefðu ekki skoðað gögnin. Hér flutti hv. þm. langt mál um það að ég heimtaði að menn kæmu óundirbúnir á fund. Ég hef að vísu setið í flugráði með hv. þm., og hann kom sjaldan undirbúinn á fund og hljóp venjulega af fundi áður en hann var hálfnaður, en ég var einmitt að segja að ég gerði fastlega ráð fyrir því að menn hefðu skoðað þessi gögn, því að þeir fengu þau send heim allir daginn áður, eða á sína skrifstofu. Ég gerði fastlega ráð fyrir því. Ég endurtek hins vegar að ég hefði talið eðlilegt að einhverjar umræður hefðu orðið í flugráði og þeirra hefði þá verið getið í fundargerð. Menn hefðu tjáð sig um hinar ýmsu umsóknir, sem þarna komu fram. en það er ekki.

Ég verð að segja það að ég hef óljósan grun um ýmislegt í þessu máli — svo ég noti einnig þau orð sem hv. þm. notaði um mig — ég hef óljósan grun um ýmislegt, en ætla ekki að fara að rekja það hér. Ég endurtek að það sem ráðið hefur mínum gerðum í þessu er það — ég undirstrika og legg áherslu á það — að enginn hefur vefengt það, heldur ekki nú, að Pétur Einarsson hefur sinnt þessu starfi með ágætum þann tíma sem hann hefur verið varaflugmálastjóri, sem er á þriðja ár. Það hefur enginn vefengt það. Það hefur meira að segja komið fram að hann hefur starfað vel með flugráði. Það hefur komið greinilega fram, meira að segja hjá hv. þm. Albert Guðmundssyni. Ég tel ódrengilegt að ganga fram hjá manni, sem sinnt hefur starfinu vel, oft við erfiðar aðstæður, á þriðja ár og starfað hjá flugmálastjórn á fimmta ár.