03.03.1983
Sameinað þing: 60. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2492 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)
Umræður utan dagskrár
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Þetta hafa verið nokkuð fróðlegar umr. og margt hægt að lesa út úr þeim um ýmislegt. En að gefnu tilefni, af því að menn voru að tala um vönduð vinnubrögð o. s. frv., langar mig til að bera upp þá fyrirspurn til hæstv. ráðh. hvort flugráð hafi í sínum vönduðu vinnubrögðum gefið honum umsögn um allar umsóknir um embætti flugmálastjóra eða umsögn um alla umsækjendur. Þetta finnst mér mjög mikilvægt að fá fram í umr., vegna þess að það er talað mikið um að það hafi verið vönduð vinnubrögð og úr vöndu að ráða. Þetta er mikilvægt embætti og margir hæfir menn, eins og hér hefur komið fram. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að fá að vita um hvort flugráð hafi gefið umsögn um alla umsækjendur.