03.03.1983
Sameinað þing: 60. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)
Umræður utan dagskrár
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Aðeins út af þeim orðum sem hv. l. þm. Vesturl. hafði um vinnubrögð okkar í flugráði og kom þá með fyrirspurn um hvort við hefðum ekki gefið umsögn um alla umsækjendur.
Tilætlun samkvæmt lögum er sú, að við gerum tillögu um hvern skuli ráða. Við eigum ekki að raða mönnum upp í röð eða flokka í gæðaflokka. Ég held að áður en að hv. 1. þm. Vesturlands tekur sig til og heldur að hann sé að veita flokksbróður sínum í ráðherrastól einhvern stuðning með svona fyrirspurnum ætti hann frekar að kynna sér hvert er starfssvið flugráðs.