04.11.1982
Sameinað þing: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

1. mál, fjárlög 1983

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Mér finnst viðkunnanlegra að einhverjir úr hæstv. ríkisstj. séu viðstaddir þegar umræður fara fram um fjárlög. Að vísu eru hæstv. ráðherrar ekki nema tíu, en einhver þessara tíu hlýtur að geta verið við. Ég vildi gjarnan biðja hæstv.forseta að athuga hvort það hefur kannske farið fyrir þeim eins og negrastrákunum að þeir séu allir horfnir. (Forseti JH: Ég hef óskað eftir að hæstv. fjmrh. komi.) Mér er svo sem sama um hina níu, það er í lagi ef hæstv. fjmrh. gæti komið.

Í upphafi ræðu sinnar fjallaði hæstv. ráðh. nokkuð um almenn efnahagsmál í framhaldi af ræðu hæstv. forsrh. um stefnu ríkisstj. Ég ætla ekki að fara út í þá sálma, þó að full ástæða væri til, heldur einvörðungu að láta mér nægja að koma að þeim þætti í málflutningi hæstv. ráðh. beggja þar sem látið er í það skína að sú öfugþróun, eins og þeir kalla það, sem orðið hefur í þjóðarbúskap okkar á því ári sem nú er að líða, hafi komið mjög á óvart seinnipart sumars, eftir þeirra málflutningi að dæma, ekki hafi verið nein ástæða til að ætla að þannig mundi fara eða gæti farið. Sjálfur forsrh. hefur sérstaklega tekið fram í þessu sambandi að sú áætlun, sem hæstv. ríkisstj. hafi reist efnahagsstefnu sína á og lögð var fram á s.l. hausti, hafi reynst gróflega röng. Þar á hann við þjóðhagsáætlun ríkisstj. fyrir árið 1982. Hæstv. forsrh. hefur sagt opinberlega að sú áætlun sé Þjóðhagsstofnunar og hafi gefið mjög ranga mynd af því árferði sem síðan hafi reynst á árinu 1982. Ég vil aðeins nota þetta tækifæri til að leiðrétta þessar upplýsingar. Þjóðhagsáætlunin sem lögð var fram haustið 1982 er ekki áætlun Þjóðhagsstofnunar. Þjóðhagsáætlun þessi var upphaflega samin af Þjóðhagsstofnun, en hæstv. forsrh. breytti áætluninni sem kom frá Þjóðhagsstofnun svo mikið að Þjóðhagsstofnun óskaði eftir því að hún yrði ekki við þá áætlun kennd. Þess vegna var Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1982 dreift hér til okkar þingmanna ekki sem áætlun Þjóðhagsstofnunar heldur sem áætlun hæstv. ríkisstj. og forsrh. Það kom m.a. fram í þessari áætlun að undir öllum töflum, sem þar voru birtar, stóð: „Heimild Þjóðhagsstofnunar“. Það var m.ö.o. hið eina í þessari áætlun sem Þjóðhagsstofnun vildi við kannast. Því kemur mönnum nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar hæstv. forsrh. ætlar nú að kenna Þjóðhagsstofnun um þá röngu áætlun sem með þessum hætti var lögð fram haustið 1982. Þetta er fyrsta atriðið sem ég vildi koma á framfæri. Sú áætlun sem hæstv. forsrh. kvartar yfir að hafi reynst röng var ekki áætlun Þjóðhagsstofnunar, heldur áætlun sem hann hafði samið sjálfur og stofnanir sem hæstv. ríkisstj. styðst við, eins og Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki, vildu ekki láta kenna sig við.

Í öðru lagi er það einnig rangt að mjög hafi komið á óvart sú þróun sem orðið hefur í ytri aðstæðum, m.a. varðandi afla á árinu 1982. Það er ekki rétt að hæstv. ríkisstj. hafi ekki um þessa þróun vitað fyrr en seint á s.l. sumri. Við í stjórnarandstöðunni höfum að sjálfsögðu miklu verri aðstæður til að fylgjast með áliti og spám sérfræðistofnana en hæstv. ríkisstj. og þeir flokkar sem hana styðja. samt sem áður get ég vottað það fyrir hönd okkar stjórnarandstæðinga að þegar í upphafi núlíðandi árs, 1982, fórum við að fá í hendur skýrslur bæði frá Seðlabanka og Þjóðhagsstofnun sem gáfu til kynna að stefndi í þá átt sem raun varð á. Strax í mars var t.d. í ljós komið að ekki væri óhætt að byggja á þeim spám um aflaverðmæti vegna loðnuafla sem fyrri áætlanir höfðu byggst á. Og þegar í maí s.l. var komið í ljós að ekki mundu rætast vonir manna um enn aukinn þorskafla á þessu ári frá árunum á undan. Í maímánuði á s.l. vori, rétt í þann mund er Alþingi lauk störfum, var sem sé orðið alveg ljóst hver framvindan á árinu 1982 mundi verða. Þá þegar voru öll atriði þeirrar þróunar þekkt og ég trúi því ekki að hæstv. ríkisstj. hafi ekki verið gert viðvart um þá þróun þegar ég get borið um það sjálfur — og sjálfsagt ýmsir staðfest það úr hópi stjórnarandstæðinga — að okkur var gert viðvart um þetta.

Hinn 22. júní í sumar var síðan gefin út ný spá um afkomu þjóðarbúsins og aflahorfur á árinu 1982. Þá var sem sé skýrt opinberlega frá því sem ríkisstj. og stjórnarandstaðan höfðu vitað um og rætt í heilan mánuð. Staðreyndin er því sú að það hefur ekkert í þessari þróun komið á óvart. Meginatriði hennar voru ljós strax í vor, sum áður en lánsfjárlög voru samþykkt, önnur um svipað leyti og Alþingi lauk störfum á s.l. vori.

Hitt er hins vegar rétt í málinu, að þó að ríkisstj. hafi verið gert þetta allt saman ljóst á tímabilinu mars-maí náði hún ekki þá fremur en áður eða síðar neinu samkomulagi um hvaða viðbrögð hún ætti að hafa uppi við þeirri þróun sem henni var tilkynnt að fyrirsjáanleg væri. Ríkisstj. gerði ekki neitt allan þennan tíma til að aðlaga stefnuna þeim breytingum sem orðið höfðu frá þjóðhagsáætlun — ekki Þjóðhagsstofnunar heldur hæstv. forsrh.

Nú ætla þessir herramenn síðan að koma og kenna öðrum um. Þeir ætla að halda því fram, eins og hér hefur verið gert að sérfræðistofnanir þjóðfélagsins hafi gerst sekar um að láta ekki ríkisstj. vita í hvaða óheillahorf stefndi fyrr en allt of seint. Auðvitað er ekki hægt að hafa slíkar afsakanir uppi með neinum rökum. Hins vegar er kannske skiljanlegt, þó ekki sé það stórmannlegt hjá hæstv. ríkisstj. sem hefur ekki komið sér saman um neinar aðgerðir allan þann tíma sem þessi niðurstaða lá fyrir, að hún vilji kenna öðrum um.

Annað dæmi um hvernig á málinu er haldið kom glögglega fram í sambandi við þær vaxtaákvarðanir sem Seðlabankinn hefur tekið. Með bréfi 11. ágúst s.l. var ríkisstj. gerð grein fyrir þeirri þróun sem orðin var í peningamálum og tillögum Seðlabankans um hvernig mætti snúa þeirri öfugþróun við. Þessar tillögur hafði hæstv. ríkisstj. á borðinu hjá sér í tíu vikur. Á þeim tíu vikum kom hún sér ekki saman um neina tillögugerð eða neina afstöðu til þeirra tillagna sem fyrir henni lágu. Þegar Seðlabankann loksins þraut örendið og ákvað að gripa til þeirra úrræða sem hann hafði lagt fyrir ríkisstj. héldu hæstv. ráðherrar því fram að þetta hefði komið þeim á óvart. Höfðu þeir þó haft þessar tillögur í heilar tíu vikur á borðum sínum. Sýnir þetta enn hvernig hæstv. ráðherrar skjóta sér á bak við sérfræðistofnanir í þjóðfélaginu, sem eiga að vera hæstv. ríkisstj. til ráðuneytis, og nota þær sem skálkaskjól fyrir því að hæstv. ríkisstj. kemur sér ekki saman um eitt eða neitt. Þetta vildi ég láta koma fram án þess að fara lengra út í þá sálma að ræða almennt um efnahagsmál í þjóðfélaginu.

Að lokum vildi ég þó aðeins benda mönnum á þá athyglisverðu staðreynd að það virðist meira að segja mega draga þá ályktun að hæstv. ráðherrar lesi ekki þau gögn sem þeir leggja fyrir okkur alþingismenn sem stefnuyfirlýsingu sinnar eigin ríkisstjórnar. Fyrir nokkrum dögum lagði hæstv. ráðh. enn fram á Alþingi sem sína áætlun og ríkisstj. þjóðhagsáætlun fyrir árið 1983. Okkur alþingismönnum var afhent þessi áætlun sem boðskapur um stefnu ríkisstj. Eins og hér hefur þegar verið getið af hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen er á bls. 7 í þessari áætlun boðuð sú stefna að óhjákvæmilegt sé að grípa fljótlega til hækkunar á vöxtum og verðtryggðra inn- og útlána. Þessi stefna var okkur tilkynnt að væri vilji hæstv. ríkisstj. Síðan koma menn eins og hæstv. fjmrh. og lýsa því yfir að þessi boðskapur, sem við fengum í hendur fyrir nokkrum dögum, lýsi ekki afstöðu þeirra. Ekkert hefur áður vitnast um það að t.d. hæstv. fjmrh. og flokksbræður hans í ríkisstj. hafi einhverjar athugasemdir að gera við þá þjóhagsáætlun sem hæstv. forsrh. lagði fram fyrir nokkrum dögum í þeirra nafni. Þetta getur ekki bent til annars en að hæstv. ráðherrar lesi ekki einu sinni þau plögg sem eru lögð fyrir Alþingi í nafni ríkisstj. og eiga að boða stefnu þeirrar sömu ríkisstjórnar. Þá rís sú spurning: Hvenær mega menn taka mark á stefnuyfirlýsingum hæstv. ríkisstj.? Hvenær meinar hæstv. ríkisstj. það sem hún segir og hvenær meinar hún það ekki? Ef ekki má skoða þjóðhagsáætlun forsrh. sem yfirlýsingu ríkisstj. um hvað hún hyggst gera, hversu mikið mark eiga menn þá t.d. að taka á fjárlagafrv. hæstv. fjmrh.? Er nokkuð meira mark takandi á þeim boðskap sem þar er að finna en þeim boðskap sem er að finna í þjóðhagsáætlun hæstv. forsrh.?

Áður en ég kem að efnisatriðum núv. fjárlaga og forsendum þeirra er nauðsynlegt að fara nokkrum orðum um hvernig þær forsendur hafa staðist sem núgildandi fjárlög eru byggð á. Áætlun um verðlagshækkanir í fjárlögum yfirstandandi árs eða verðlagsspá þess fjárlfrv. var 33%. Verðlagshækkanir á árinu 1982 munu hins vegar reynast yfir 50%. Spánni skeikar því um tæpan helming frá raunveruleikanum. En það er ekki aðeins að spánni skeiki að þessu leytinu til heldur hafa útgjöldin hjá hæstv. fjmrh. verið mjög miklu meiri þetta ár. Hæstv. fjmrh. og fylgismenn hans hafa hrósað sér mjög að því að aðhaldi hafi verið beitt í ríkisrekstrinum. En raunin er sú að útgjöld ríkisins á árinu 1982 munu hækka allverulega meira en verðhækkunum nemur á því ári. Útgjöldin munu hækka um ca. 58% á sama tíma og almennar verðhækkanir, mældar á sömu vog, munu nema réttum 50%. Stjórnin hjá hæstv. fjmrh. á útgjöldum ríkissjóðs hefur ekki verið betri en svo að útgjöldin hafa aukist mjög verulega fram yfir almennar verðhækkanir á árinu. Og þá rís auðvitað sú spurning: Hvernig stendur á því að hæstv. fjmrh. telur sig geta sýnt hagstæða afkomu ríkissjóðs á þessu ári, þó að sú sé raunin að útgjöldin hafi vaxið meira hjá honum en nemur almennri verðlagsþróun á árinu? Þó að sú sé raunin að honum hefur ekki tekist að sýna það aðhald í ríkisrekstrinum að útgjaldaaukning hafi haldist í hendur við almenna verðlagsþróun á árinu? Skýringin er mjög einföld. Skýringin er sú að á fyrstu mánuðum ársins, eða alveg fram til mánaðamóta sept. — okt., hafa tekjur ríkissjóðs vaxið meira en útgjöldin og miklu meira en almennri verðlagsþróun nemur. Og hver er skýringin á því? Ekki hafa verið lagðir á nemir nýir skattar á yfirstandandi ári. Hvers vegna hafa þá tekjurnar vaxið svona langt umfram útgjöldin og umfram þá verðlagsþróun sem átt hefur sér stað? Skýringin er ákaflega einföld. Almennur vöruinnflutningur hefur aukist að magni til á yfirstandandi ári um 10% og vöruinnflutningur neysluvöru, þar með taldar bifreiðar, hefur aukist að magni til á árinu á föstu verðlagi um 14%.

Þetta er, hæstv. fjmrh., meginskýringin á hinum alvarlega viðskiptahalla sem hæstv. ríkisstj. kvartar nú yfir. Ýmis verðmæti og neysluvörur hafa streymt inn í landið á undanförnum mánuðum, m.a. í skjóli þeirrar gengisstefnu sem hæstv. ríkisstj. fylgir. Þessar almennu neysluvörur hafa aukist að magni til um 14% á fyrstu níu mánuðum ársins og þessi innflutningur hefur bjargað ríkissjóði hjá hæstv. ráðh. M.ö.o., sá vandi sem hæstv. ráðh. segir að sé aðallega við að fást í okkar þjóðarbúskap á árinu 1982, hinn stórkostlegi viðskiptahalli sem myndast hefur á því ári, hefur bjargað fjárhag ríkissjóðs. Viðskiptahalli myndast vegna hins mikla innflutningsstreymis neysluvöru langt umfram það sem eðlilegt er. Þessi mikli innflutningur neysluvöru hefur orsakað að tekjur ríkissjóðs af aðflutningsgjöldum hafa vaxið langt fram úr almennri verðlagsþróun í landinu og það hefur gert hæstv. fjmrh. fært að sýna fram á hagstæða afkomu ríkissjóðs fram undir þetta. En samt — og vísa ég þá til bls. 20 í þjóðhagsáætlun hæstv. forsrh. — efast menn um að takist að ná jöfnuði í ríkisfjármálunum á þessu ári.

Það er talsvert alvarlegt þegar svo er háttað rekstri ríkissjóðs að atburðir sem eru að setja þjóðarbúið á vonarvöl skuli geta komið fram sem hagnaður hjá ríkissjóði. Það er staðreynd, sem hæstv. ríkisstj. segir að sé alvarlegasta efnahagsmeinsemd í okkar þjóðfélagi, að á árinu 1982 hefur myndast stórkostlega alvarlegur viðskiptahalli við útlönd, m.a. vegna feiknamikils innflutnings á neysluvöru á því ári vegna gengisstefnu hæstv. ríkisstj. Þessi staðreynd, þessi alvarlegi vandi er leiddur svo gersamlega fram hjá ríkissjóði að hann kemur fram í ríkisbókhaldinu sem stórkostlegur hagur fyrir ríkissjóð. Þannig getur sú undarlega staða komið upp að hreint þjóðargjaldþrot í erlendum viðskiptum lýsi sér sem stórkostlega góð afkoma hins íslenska ríkissjóðs. Með þessum hætti eru erfiðleikar í þjóðarbúskapnum færðir fram hjá ríkiskassanum sjálfum. Með þessum hætti er hagur ríkissjóðs sýndur góður þó að hagur þjóðarbúsins sé kominn á vonarvöl.

Og þetta, herra forseti, er skýringin á því að þó að hæstv. fjmrh. hafi ekki tekist að halda útgjöldum ríkisins neitt í samræmi við almennar verðlagshækkanir í landinu, heldur farið talsvert fram yfir, skuli ekki koma fram í hallarekstri ríkissjóðs hinn mikli viðskiptahalli sem á árinu hefur skapast. Viðskiptahallinn, þjóðarvandinn hefur orðið búhnykkur fyrir hæstv. fjmrh.

Í öðru lagi byggðust fjárlög yfirstandandi árs á þeirri áætlun að meðalhækkun á erlendum gjaldmiðlum færi ekki fram úr 24% miðað við íslensku krónuna. Þessi forsenda hefur ekki staðist betur hjá hæstv. ríkisstj. en svo, að meðalhækkun erlendra gjaldmiðla mun á yfirstandandi ári nema 57,8%. Einnig í þessu tilliti hefur því áætlun hæstv. ríkisstj. reynst meira en helmingi of lág.

Gjaldeyririnn hefur hækkað, krónan hefur fallið um ca. 50% þegar fjárlög eru reist á því að verðgildi krónunnar falli ekki á árinu nema um tæplega helming af því.

Þriðja forsendan fyrir fjárlögum yfirstandandi árs var sú áætlun hæstv. fjmrh. að skattbyrði héldist óbreytt. Í umr. um fjárlagafrv. í fyrra sýndi ég fram á að svo gæti ekki orðið. Niðurstaðan nú staðfestir það. Á bls. 19 í þjóðhagsáætlun er því lýst yfir að skattbyrði hafi þyngst á árinu 1982, eins og ég sagði fyrir um að verða mundi. Þess er hins vegar ekki getið í þjóðhagsáætluninni hversu mikið skattbyrðin hafi aukist á árinu 1982. Þess vegna vil ég koma þeirri spurningu á framfæri við hæstv. fjmrh. að hann upplýsi okkur um þetta. Hann hélt því fram fyrir einu ári og byggði fjárlagafrv. sitt á því að þetta mundi ekki gerast.

Fjórða forsenda fjárlaga yfirstandandi árs var sú, að kaupmáttur almennings héldist óbreyttur. Það var einn megintilgangur hæstv. ríkisstj. í fjárlagafrv. sem hún lagði fram á s.l. ári. Hver hefur raunin orðið? Raunin hefur orðið sú, að kaupmáttur ráðstöfunartekna mun á yfirstandandi ári minnka um 1–2% og kaupmáttur umsaminna launa hefur hrapað úr 134 stigum árið 1974 í 121 stig síðasta ársfjórðung ársins 1981 og er áformað að kaupmáttur lækki a.m.k. um 6% á næsta ári. M.ö.o.: hæstv. núverandi ríkisstjórn er löngu búin að gera ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar góða. Hæstv. fjmrh. getur ekki einu sinni gert sér vonir um að alþýðufólkið í landinu komist með tærnar þar sem að það hafði hælana kaupmáttarlega séð á því heita vori þegar Alþfl. og Alþb. felldu ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar.

Menn geta haldið því fram að þetta gefi aðeins mynd af því að verðmætin til skiptanna til þjóðfélagsþegnanna á þessu tímabili hafi verið að minnka og komi fram í rýrnandi kaupmætti umsaminna launa á þessu ári. Það er ekki svo, því á sama tíma og kaupmáttur kauptaxta rýrnaði úr 134 stigum 1974 í 121 stig 1981 hafa helstu framleiðslugreinar þjóðarinnar, sem hún byggir á fjárhagslegt sjálfstæði sitt, skilað stórauknum afköstum. Á sama tíma hefur t.d. togaraflotinn aukið afla á úthaldsdag úr 7,9 tonnum í tæplega 12 tonn. Þetta hefur skilað feikilega auknum verðmætum inn í þjóðarbúið. Þau hafa ekki komið almenningi til góða, þau hafa ekki komið til skiptanna, vegna þess að á sama tíma og þessum feikilegu verðmætum hefur verið skilað inn í þjóðarbúið til aukningar frá ári til árs hefur kaupmáttur umsaminna launa hrapað. Þetta, herra forseti, eru nokkrar helstu forsendur sem fjárlög yfirstandandi árs voru byggð á.

Skýringin á því að fjárlögin skuli ekki hafa hrunið þó að forsendurnar hafi hrunið er, eins og ég áðan sagði, sú, að hinn mikli viðskiptahalli, sem skapast hefur á árinu 1982, hefur komið fram sem búhnykkur fyrir ríkissjóð. Ástæðan fyrir því að ríkissjóður stendur, þrátt fyrir að allar forendur fjárlaga frá því í fyrra hafi hrunið, er einfaldlega sú, að búið hefur verið til stórkostlegt vandamál í okkar þjóðarbúskap með viðskiptahalla, sem hæstv. fjmrh. sjálfur hefur margoft lýst. Það vandamál hefur orðið búhnykkur fyrir ríkissjóð, þó svo þjóðin stefni í gjaldþrot.

Í ljósi þessa hljótum við að ræða það fjárlagafrv. sem nú er lagt fram. Við skulum skoða helstu forsendur þess. Helstu forsendur núverandi fjárlaga eru þrjár: Í fyrsta lagi almennar verðlagsforsendur, í öðru lagi launaforsendur frv. og spá um kaupmáttarþróun og í þriðja lagi sú áætlun um gengisþróun sem frv. er byggt á. Auðvitað koma fleiri atriði hér við sögu og má segja að forsendur fjárlagafrv. séu fleiri en þessar þrjár, en þetta eru meginforsendur hverrar fjárlagagerðar. Ef þær standast ekki er sú áætlun um ríkisbúskapinn, sem fjárlagafrv. á að vera, byggð á sandi.

Ef við tökum þá fyrstu forsenduna, hina almennu verðlagsforsendu, spá frv. um verðþróun á næsta ári, er nú í annað sinn dregin af hæstv. ráðh. einhver tala út úr hatti og kölluð „reiknitala“ í aðfararorðum frv. án frekari skýringa. Af einhverjum ástæðum er þessi reiknitala valin talan 42. Hvers vegna talan 42 er valin fremur en t.d. 32 eða 52 kemur hvergi fram. Í fyrra var með sama hætti talan 33 tekin út úr hatti og notuð sem reiknitala fjárlaga. Á því var þá engin skýring gefin hvers vegna endilega þessi tala var valin umfram aðrar. Ég gat mér þess þá til, að ríkisstj. héldi e.t.v. að þetta væri reiknitalan sem Sölvi Helgason notaði þegar að hann reiknaði kálfinn í kúna. Hafi svo verið hefur það alla vega komi í ljós að ekki hefur sú tala, 33%, dugað þessari ríkisstj. til þess að reikna kálf í neina kú og þess vegna e.t.v. er ný tala valin. En það mun sjálfsagt ganga seint að ná árangri með slíkum hætti, ef menn ætla að leita þannig fram og til baka í öllu talnaflóðinu.

En þó svo í fjárlagafrv. segi að ekki beri að líta á þessa reiknitölu sem neina verðlagsforsendu kemur í ljós í öðru gagni, sem hæstv. ríkisstj. leggur fram, að svo ber að gera. Það er í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1983. Á bls. 5 í þjóðhagsáætlun segir nefnilega að ríkisstj. stefni að því að verðbólgan verði ekki meiri en 40–45% á næsta ári. M.ö.o., talan 42, sem notuð er sem almenn verðlagsforsenda fyrir fjárlagafrv., er meira en reiknitala. Okkur er sagt í þjóðhagsáætlun frá að þetta sé sú verðlagsforsenda sem ríkisstj. gefur sér að hún ætli að stefna að. Það þýðir ekki fyrir hæstv. fjmrh. eða einhvern annan að halda öðru fram. Hæstv. ráðh. ætti að lesa boðskapinn frá sinni eigin stjórn. En er þessi forsenda líkleg til að standast? Er líklegt að það markmið ríkisstj. náist að verðlag á næsta ári muni ekki vaxa meira en svo að verðlagshækkun frá meðaltali yfirstandandi árs til meðaltals næsta árs verði ekki meiri en nemur 42%, eins og fjárlagafrv. er byggt á? Á yfirstandandi ári óx varðbólgan næstum tvisvar sinnum meira en verðlagsforsendur fjárlaganna gerðu ráð fyrir. Er líklegt að áætlun hæstv. ríkisstj. standist betur nú?

Í þjóðhagsáætlun kemur svo fram að framreikningur verðbólgu næsta ár mun þýða frá meðaltali yfirstandandi árs til meðaltals ársins 1983 að verðbólgan á því tímabili vaxi um 58%. Ég legg áherslu á, og vitna þar í bls. 29 í þjóðhagsáætluninni, að þá eru meðtalin áhrif launalækkunarinnar sem á að koma til framkvæmda þann 1. des. n.k. og einnig áhrif þeirrar aðhaldsstefnu í peninga-, lána- og ríkisfjármálum sem ríkisstj. segist ætla að beita sér fyrir. Allt skilar þetta ekki meiri árangri en þeim að Þjóðhagsstofnun áætlar verðbólguna á næsta ári 58% frá meðaltali til meðaltals. Ríkisstj. segist stefna að 40–45% verðbólgu. Eina atriðið sem nefnt er til stuðnings þeirri stefnu, umfram það sem þegar hefur verið tekið með í áætlun Þjóðhagsstofnunar um 58% verðbólgu, er breyting á vísitöluviðmiðun kaupgjalds. Það er eina úrræðið sem nefnt er í þjóðhagsáætluninni að ríkisstj. hafi til að breyta 58% fyrirsjáanlegri verðbólgu á næsta ári í 40–45%, eins og ríkisstj. segist ætla að gera.

Sjálfsagt gera menn sér þess ekki fyllilega grein, en sú viðmiðun ríkisstj. að meðaltal verðbólgu á næsta ári, miðað við meðaltal yfirstandandi árs, megi ekki fara fram úr 40–45% þýðir að verðbólga frá upphafi ársins 1983 til ársloka 1983 má ekki fara yfir 20%. Ef meðaltalsreikningarnir eiga að sýna 40–45% má verðbólgan frá upphafi til loka næsta árs ekki fará fram úr 20%. Á yfirstandandi ári mun verðbólga frá upphafi til ársloka nema um þrefaldri þeirri prósentu. Þeim árangri segist ríkisstj. ætla að ná með nýrri vísitöluviðmiðun launa, sem feli í sér svo mikla kjaraskerðingu að verðbólgan frá upphafi til loka ársins 1983 verði ekki nema 20% á sama tíma og verðbólga frá upphafi til loka ársins 1982 er um það bil 60%. Þykir mönnum nú slík áætlanagerð raunhæf? Telja menn líklegt, að hægt sé að ná þeim árangri, jafnvel þó að ný vísitöluviðmiðun verði tekin upp, að hægt sé að skerða með þeirri viðmiðun svo mikið laun almennings, til viðbótar þeirri kjaraskerðingu sem þegar hefur verið gerð, að ástæða sé til að búast við að verðbólga vaxi ekki á næsta ári nema um 20% frá upphafi til loka? Sjálfsagt þykir mönnum ekki slík áætlanagerð raunhæf, en engu að síður er það slík áætlanagerð sem er megininntak þeirrar verðlagsstefnu sem frv. byggist á.

Í öðru lagi eru launaforsendurnar, sem frv. byggist á, auðvitað nátengdar almennum verðlagsforsendum frv. Framreikningar Þjóðhagsstofnunar á verðlags- og launaþróun, miðað við þær kjaraskerðingar sem brbl. gera ráð fyrir og það aðhald í lána- og ríkisfjármálum sem ríkisstj. segist ætla að beita sér fyrir, sýna að frá meðaltali ársins 1982 til meðaltals ársins 1983 verði verðbólga 58%. Þá er reiknað með að á því ári minnki kaupmáttur ráðstöfunartekna um 6%. M.ö.o. gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að laun hækki ekki á næsta ári nema um ca. 52% á sama tíma og verðbólgan aukist um 58%.

En hver skyldi vera launastefna hæstv. fjmrh. í frv.? Frv. er byggt á því, að laun hækki ekki á næsta ári nema um 34%. Frv. er byggt á því að hámarkslaunahækkanir í landinu stöðvist við 34% markið, þó svo Þjóðhagsstofnun segi okkur að laun þurfi að hækka um 52% til þess að halda í verðlagsþróun á næsta ári, þó að gert sé ráð fyrir 6% kjaraskerðingu á því ári. Frv. ráðh. er á því byggt, að launin séu stöðvuð við 34% markið, en ekki sé leyft að hækka um næstu 18% sem launin þurfa að hækka til að halda í við verðbólguþróunina, þó svo gert sé ráð fyrir 6% kjaraskerðingu. Og ég spyr: Hvernig á slík launaforsenda að standast?

Fjmrh. byggir frv. upp á því, að laun í landinu megi ekki hækka nema um 5% á þriggja mánaða fresti allt næsta ár, þó að við vitum nú þegar að fyrsta launahækkunin á því ári, sem verður vegna verðlagshækkana sem þegar hafa orðið, þurfi að vera þrefalt meiri. Hvernig ætlar hæstv. ráðh. að framkvæma þetta? Ég vildi gjarnan að hæstv. ráðh. hlustaði. Hvernig ætlar hæstv. ráðh. að framkvæma það þann 1. mars n.k. að launahækkun staðnæmist við 5%, þó svo að verðlagshækkanir sem þá eru orðnar gefi til kynna að laun ættu að hækka um 15%? Ætlar hæstv. ráðh. að skerða verðbætur þann 1. mars um 8–10 stig ofan á 8–10 stiga verðbótaskerðingu þann 1. des. n.k.? Hann ætlar ekki að láta sér það nægja. Það nægir ekki til þess að forsendur frv. í launamálum standist. Hann verður að skerða laun um nánast sömu prósentutölu ekki bara 1. mars heldur líka 1. júní, 1. sept. og 1. des. á næsta ári. Á slíkum kjaraskerðingum er frv. byggt. Launamálastefna frv. er sú, að laun mega ekki hækka á næsta ári nema um 5% á þriggja mánaða fresti.

Er hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni t.d. ljós þessi stefna um hækkun launa, sem fjárlagafrv. boðar? Ég efast um það. Er fjmrh. sjálfum þetta ljóst? Það hlýtur að vera. Það er hann sem er tillögumaður. En telur hann sennilegt að það sé hægt að framfylgja slíkri kjaraskerðingu? Því trúi ég ekki.

Það er mjög einfalt fyrir okkur stjórnarandstæðinga að segja: Þetta er þá launamálastefna Alþb. Það er launamálastefna Alþb. í frv. til fjárlaga, sem fjmrh. leggur fram, að laun séu skert um 6–10% á þriggja mánaða fresti allt næsta ár. Ég ætla ekki að halda því fram að þetta sé launamálastefna Alþb. Ég ætla að halda því fram að þetta sýni hvers konar firrur það eru sem hæstv. fjmrh. byggir fjárlagafrv. sitt á. Auðvitað er ljóst að svona launamálastefna nær aldrei fram að ganga. En hvers vegna byggja menn þá fjárlagafrv. á slíkum áætlunum? Hvaða mark er hægt að taka á áætlunum sem reistar eru á svona forendum?

Það getur vel verið að fjmrh. svari með því að segja að það þurfi ekkert endilega að skerða launin sem þessu nemur. Það má ná sama árangri t.d. með að greiða niður landbúnaðarafurðir, eins og ríkisstj. hefur gert á þessu ári, til að koma í veg fyrir að launafólk fái réttmætar hækkanir á kaupi sínu. En veit hæstv. fjmrh. hvað mundi kosta að greiða landbúnaðarafurðir niður á næsta ári svo að kaup hækkaði ekki meira en um 5% á þriggja mánaða fresti? Fyrsta aðgerðin af þessu tagi þann 1. mars n.k. — bara hún — mundi kosta 1–1.5 milljarð kr. og þá eru þrjár slíkar aðgerðir eftir til þess að launamálastefna frv. standist. Eru þeir peningar til? Á hæstv. fjmrh. þá peninga til? Auðvitað á hann þá ekki til. Hvernig er þá hægt að byggja fjárlagafrv. á slíkri stefnumörkun í launamálum? Auðvitað er slíkur boðskapur ekki tekinn alvarlega, en ef menn taka þann boðskap ekki alvarlega geta menn ekki heldur tekið fjárlagafrv. hæstv. ráðh. alvarlega.

Þriðja meginforsenda frv. er sú áætlun um þróun gengis íslensku krónunnar miðað við aðra gjaldmiðla sem frv. er reist á. Í fyrra reyndist gengisforsenda hæstv. ráðh. röng um 120%. Hver skyldi forsendan vera nú? Í fjárlagafrv. í fyrra var reiknað með að meðalhækkun á erlendum gjaldeyri miðað við íslensku krónuna yrði á næsta ári 39%. Hún varð 57.8% á yfirstandandi ári. Þetta sýnir á hve fjarstæðukenndum grunni fjárlagafrv. er byggt. Bara vaxtagreiðslurnar einar, vaxtagreiðslur af erlendum lánum, miðaðar við að verð erlends gjaldeyris hækki ekki um meira en 39% á næsta ári, eru áætlaðar 2.3 millj. kr. Ef sú forsenda verður álíka röng á næsta ári og hún var í ár verður að tvöfalda þá upphæð sem menn nota til að greiða vexti af erlendum lánum. Þá þarf að hækka þá upphæð úr 2.3 millj. kr. upp í tæplega 5 milljarða kr. Og hvar ætla menn að fá það fé?

Ég veit ekki hvort menn gera sér grein fyrir með hve miklum ógnarhraða íslenska krónan fellur nú í verði gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Frá því að gengisfellingin var gerð þann 23. ágúst s.l. og fram á þennan dag hefur verðgildi erlendra gjaldmiðla hækkað gagnvart íslenskri krónu um 7.3%. Krónan hefur fallið um rösk 6% á tveimur mánuðum eftir síðustu gengisfellingu og hún á eftir að falla enn meira, vegna þess að í bréfi sem hæstv. ríkisstj. hefur með höndum frá Seðlabanka Íslands er henni tjáð að gengi íslensku krónunnar muni á fyrstu mánuðum ársins 1983 falla um 5.7% á hverjum einasta mánuði. Á hverjum einasta mánuði á fyrstu mánuðum ársins 1983 reiknar Seðlabankinn með að krónan falli um 5.7% á mánuði. Síðan kemur ríkisstj. og reisir fjárlagafrv. sitt á því að meðalgengi erlendra gjaldmiðla hækki ekki nema um 39% allt næsta ár.

Herra forseti. Ég hef nú sýnt fram á hvernig þrjár meginforsendur fjárlagafrv. eru allar út í hött. Sem áætlun er þetta fjárlagafrv. því einskis virði. Það er byggt á tilbúnum tölum, sem enga stoð eiga sér í veruleikanum. Hins vegar þarf það ekki endilega að þýða að hagur ríkissjóðs verði slæmur á næsta ári, — vel að merkja: ef hæstv. ríkisstj. heldur áfram þeirri stefnu sinni að búa til stórkostlegan viðskiptahalla á viðskiptareikningi þjóðarinnar við útlönd í þeim tilgangi að auka fjárinnstreymi í ríkiskassann svo að hæstv. fjmrh. geti á pappírnum sýnt góða afkomu ríkissjóðs á sama tíma og þjóðarbúið í heild stefnir í gjaldþrot. Af þessum ástæðum er e.t.v. ekki rétt að fara mörgum orðum um einstök atriði í frv. Ég ætla þó að leyfa mér að gera það.

Ég hef áður rætt uppsetningu frv. hjá hæstv. ráðh., áður rætt hvernig hann færir viðfangsefni ríkissjóðs úr ríkissjóði og í annan bás við ríkisfjármálajötuna. Þetta gerir hann til þess að færa kostnað við að leysa slík viðfangsefni framhjá ríkissjóði. Auðvitað er slíkt engin lausn. Menn eru bara að færa vandann á milli vasa á sömu yfirhöfninni. Það er verið að vista vanda ríkissjóðs hjá öðrum aðila í ríkiskerfinu og fyrir þjóðina skiptir það engu máli hvernig slíkar millifærslur eru gerðar því að það er hún sem borgar reikninginn og reikningurinn lækkar ekki þó að viðfangsefnin séu færð á milli aðila í kerfinu.

Þessari stefnu er að sjálfsögðu áfram haldið í núverandi fjárlagafrv. Það er reynt að leysa vanda ríkissjóðs með því að skapa vanda hjá öðrum. Þannig t.d. fellir enn ríkisstj. niður og lækkar verulega lögboðin framlög til fjárfestingarlánasjóða, m.a. til lánasjóða húsnæðiskerfisins, en ætlar þessum lánasjóðum að afla sér fjár í staðinn með því að taka lán með 1.5% hærri vöxtum en nemur þeim vöxtum sem þessir sjóðir fá af útlánum sínum. Til þess að leysa fjárhagsvanda ríkissjóðs er sem sagt búinn til annar og erfiðari vandi hjá öðrum sjóðum hins opinbera m.a. lánasjóðum húsnæðiskerfisins.

Það eru fjölmörg slík dæmi í fjárlagafrv., þar sem verið er að færa viðfangsefni ríkissjóðs frá ríkissjóði og vista á öðrum stað í kerfinu. Lántökukostnaður vegna byggðalína upp á 224 millj. kr. er þannig færður framhjá ríkissjóði? Hver á að borga þetta? Við því fæst ekkert svar. Hvaða máli skiptir það almenning hvort hann borgar þessa fjárhæð í sköttum til ríkisins og fjárhæðin færist þá inn og út úr ríkissjóði eða hvort almenningur borgar þetta í hækkuðu raforkuverði vegna þess að fjárhæðin sé vistuð t.d. hjá Landsvirkjun? Auðvitað skiptir það engu máli. En það er með því að færa svona fjárhæðir framhjá ríkissjóði sem hæstv. fjmrh. telur sig geta sýnt hagstæða afkomu á ríkisrekstrinum.

Fjármagnsútgjöld Kröflu eru annað dæmi um þetta. Hæstv. fjmrh. sagði hér áðan varðandi Kröfluvirkjun, að hún mundi að sjálfsögðu koma til með að standa undir ekki bara rekstrarkostnaði heldur fjármagnskostnaði líka þegar tímar liðu fram. Það er ekki rétt, hæstv. ráðh. Ég er með í höndunum ítarlegt svar frá hæstv. iðnrh., sem hann gaf mér á Alþingi í fyrra, þar sem m.a. koma fram rekstraráætlanir Kröfluvirkjunar, og þar er, hæstv. ráðh., ekki gert ráð fyrir að Kröfluvirkjun greiði nokkurn tíma vextina af þeim lánum sem hæstv. ráðh. er að taka nú. Því er lýst yfir í þessu svari. Ég skal afhenda ráðh. þetta svar.

Ég er með það á borðinu hjá mér. Það er ekki gert ráð fyrir að Kröfluvirkjun greiði þetta nokkurn tíma. Hver á þá að borga? Og hvaða máli skiptir hvort þetta er greitt fyrir milligöngu ríkissjóðs eða fyrir milligöngu orkureikninga landsmanna? Þetta kemur niður á fólkinu hvaða aðili svo sem það er sem reikninginn skrifar.

Það er líka rangt hjá hæstv. ráðh. að það sé ætlast til þess að Kröfluvirkjun muni einhvern tíma fara að skita árangri í þjóðarbúið. Það kom fram í svari ráðh. í fyrra, að ef Kröfluvirkjun ætti að standa undir sér þyrfti að hækka orkuverðið frá henni um 369%. (Fjmrh.: Það eru ógreiddir orkureikningar.) Það kom líka fram í þessum áætlunum, að þær ná ekki lengra aftur en til ársins 1990 og jafnvel þá er byggingu virkjunarinnar enn ekki lokið. Kröfluævintýrið mun teygja sig fram yfir aldamótin. Menn verða fram yfir aldamót að borga reikningana fyrir veru hæstv. fjmrh. í Kröflunefnd. Áætlun Kröflureksturs er reist á því að hún greiði aldrei vextina af þeim lánum sem hæstv. fjmrh. er að taka fyrir hana m.a. nú. Það þýðir ekkert fyrir hæstv. ráðh. að koma hér og halda einhverju öðru fram, því að ég er með skrifleg gögn um þetta á borðinu hjá mér. Það er alveg guðvelkomið að afhenda honum þau.

En það er annað í þessum Kröflumálum. Það er gert ráð fyrir því í áætlun um rekstur Kröflu að á hverju ári fram til ársins 1990 verði varið 38 millj. kr. á verðlagi liðins árs í framkvæmdir við Kröflu. Ekki er að finna eina einustu fjárupphæð í fjárlagafrv. hjá hæstv. ráðh., ekki svo mikið sem eina krónu, til framkvæmda við Kröflu. Og þess vegna spyr ég: Hvers vegna ekki? Er ráðgert að hætta við framkvæmdir samkv. þeim áætlunum sem okkur voru kynntar í fyrra og áttu að ná aftur til ársins 1990? Ber að skilja fjárlagafrv. hæstv. ráðh. svo, að hann sé loksins eftir öll þessi ár, þegar þjóðin þarf að borga 220 millj. kr. í vexti og afborganir af arðlausri fjárfestingu, farinn að viðurkenna staðreyndir og viðurkenningin komi fram í því að nú sé ekki gert ráð fyrir einni einustu krónu til framkvæmda við Kröfluvirkjun á sama tíma og fyrir liggur áætlun sem gerir ráð fyrir að varið sé í framkvæmdir við virkjunina 38 millj. kr. á hverju einasta ári fram til ársins 1990? Það eru engin smáverðmæti sem nefndin hans Jóns Sólnes er farin að kosta okkur Íslendinga. Er mönnum það t.d. ljóst, að ef við hefðum ekki Kröflu á bakinu, mistök núv. forsrh., núv. fjmrh. og núv. menntmrh., væri t.d. hægt að tvöfalda allar nýframkvæmdir í vegum á næsta ári eða aflétta eignarskatti af öllum einstaklingum á Íslandi? Þeir eru orðnir þungir í poka, hæstv. ráðherrar þrír, forsrh., yfirmaður Kröflumistakanna, hæstv. menntmrh., varaformaður Kröflunefndar, sem nú er orðinn æðsta yfirvald allra vísindarannsókna á Íslandi, — hugsa sér — og hæstv. fjmrh., Kröflunefndarmaðurinn sem stjórnar ríkisfjármálum Íslands um þetta leyti. Byrðin af ykkur herrar mínir, nemur því að íslenska þjóðin gæti tvöfaldað vegaframkvæmdir á næsta ári ef hún þyrfti ekki að borga reikning mistaka ykkar í framkvæmdum við Kröflu.

Það er hægt að halda áfram að ræða þau viðfangsefni sem færð eru fram hjá ríkissjóði. Það er stofnað nýtt fyrirtæki á B-hluta ríkisreiknings sem er kallað Iðnaðarrannsóknir. Þetta nýja fyrirtæki á að taka lán upp á 3 millj. kr. í erlendum gjaldeyri. Og hvað á þetta nýja fyrirtæki að gera? Jú, það á að rannsaka. Og hvernig á það að borga sitt lán? Það á að borga lánin með því, að því er manni skilst, að það á að selja niðurstöður rannsókna sinna til þeirra aðila sem e.t.v. hyggjast hagnýta þær til að byggja verksmiðjur í landinu. Mér er spurn: Hvað skyldi væntanleg kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði borga fyrir slíka rannsókn? Eða er það e.t.v. steinullarverksmiðja norður í landi sem er líkleg að leggja fram fjármagn til ríkissjóðs til þess að borga fyrir svona hluti? Auðvitað ekki. Þarna er verið að búa til aðferð til að geta fært ákveðin viðfangsefni fram hjá ríkissjóði og vista í B-hluta fjárlfrv. sem sjálfstæða stofnun, þó að guð og menn viti að þessar „sjálfstæðu stofnanir“ munu aldrei reynast þess megnugar að borga svo mikið sem eyris virði af þeim lánum sem verið er að taka í þeirra nafni.

Ljósasta dæmið um þetta er auðvitað leikur hæstv. fjmrh. með almannafé varðandi útflutningsuppbætur. Þegar svo var komið að fjármagn úr ríkissjóði til að borga með landbúnaðarafurðir, sem þjóðin þarf ekki lengur á að halda, ofan í erlenda neytendur var komið í hámark þess sem lög leyfðu, hvað gerði ráðherrann þá? Þá fékk hann aðila úti í bæ, Framleiðsluráð landbúnaðarins, sem á ekki bót fyrir rassinn á sér, til að skrifa sig fyrir erlendu láni gegn ríkisábyrgð. Hvað þýðir þetta? Það þýðir auðvitað það að aldrei er gert ráð fyrir því að Framleiðsluráð landbúnaðarins borgi eyris virði af slíkri lántöku, enda á það enga peninga til þess að borga með. Greiðslurnar hljóta auðvitað að falla á ríkissjóð. Ríkissjóður tekur á sig greiðsluna. Hún nemur núna 55 millj. til viðbótar við hinar hefðbundnu útflutningsbætur á næsta ári. Ríkissjóður þarf á næsta ári að borga fullar útflutningsbætur eins og lög leyfa, 263 millj. kr. og til viðbótar 55 millj. kr. vegna lánanna, sem tekin hafa verið undanfarin ár til viðbótargreiðslna á útflutningsbótum, umfram það sem lög leyfa, en Framleiðsluráð hefur verið skrifað fyrir og er ekki borgunarmaður fyrir.

Auðvitað getur hæstv. fjmrh. leikið sér með fjöldamörg slík atriði. Hann gæti leikið sér að því að búa til eitthvert fyrirtæki í B-hluta, Lögfræðiskrifstofu Arnmundur Backmans t.d., sem tæki að sér að sjá um að verðbólga á Íslandi væri stöðvuð. Ríkissjóður ábyrgðist erlend lán fyrir lögfræðiskrifstofu Arnmundar Backmans sem ætlar að taka að sér að borga niður vöruverð á Íslandi. Auðvitað reynist svo lögfræðiskrifstofa Arnmundar Backmans ekki borgunarmaður fyrir láninu. Og hvað gerist þá? Ríkissjóður borgar að sjálfsögðu en þetta kemur ekki fram í kassanum. Það er enginn vandi að leysa öll vandamál ríkisfjármálanna með þessum hætti, að búa bara til einhverja reikninga á öðrum stað í kerfinu, búa til einhverjar stofnanir, sem ekki eru einu sinni pappírsins virði sem bréfhausinn er letraður á, og láta þær taka við fjárhagsbyrðum af ríkissjóði. Ríkissjóður veitir síðan ábyrgðir fyrir lántöku o.fl., sem auðvitað fellur á hann, en allt heila góssið er fært fram hjá ríkiskassanum sem hann þó ber ábyrgð á.

Annað er mjög athyglisvert í frv. Það er sú almenna lína sem í því felst. Þar kemur m.a. fram að áformað er að niðurgreiðslur aukist á næsta ári um 80%, útflutningsbætur um 64%, önnur rekstrargjöld um 73% en framkvæmdir um 28%. Niðurgreiðslurnar eiga að verða 839 millj. kr. sem er talsvert hærri fjárhæð en samanlögð fjárfestingarútgjöld ríkisins. Því nær allur rekstrarhagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, eins og hann er áætlaður næsta ár, fer í niðurgreiðslur landbúnaðarafurða. Útflutningsbæturnar nema hátt á fjórða hundrað millj. kr. þegar allt er talið saman. Þetta er jafnmikil upphæð og samanlögð framlög ríkisins til verklegra framkvæmda við allar skólabyggingar í landinu, við allar hafnargerðir og við allar framkvæmdir við ríkisspítala. Þetta svarar öllum áætluðum tekjum ríkisins af samanlögðum eignarskatti einstaklinga og félaga. Slík er meðgjöfin með íslenskum landbúnaði á næsta ári. Það er stórkostleg öfgaþróun sem hér á sér stað. Hér er um að ræða algera sprengingu í útgjöldum ríkisins til niðurgreiðslu innanlands og utan á afurðum einnar atvinnugreinar í landinu sem veitir kannske 3-5 þús. mönnum atvinnu.

Þessi stefna er á góðri leið með að stöðva alla framkvæmdagetu ríkisins. Það er skammt í að almennar ríkistekjur dugi ekki lengur nema fyrir niðurgreiðslu á landbúnaðarafurðum innanlands og utan, vaxtagreiðslum af lánum ríkisins og í rekstur ríkisins og ríkisstofnana, en allar framkvæmdir hins opinbera verði að fást að láni. Enn stórkostlegri eru þessi alvarlegu áhrif á atvinnulífið í landinu. 10% af ríkistekjunum er nú varið í að halda uppi fölsku verðlagi á afurðum einnar atvinnugreinar. Kostnaðurinn við rekstur íslenska landbúnaðarins úr ríkissjóði landsmanna er orðinn meiri í hundraðshlutum heldur en útgjöld breska ríkisins við rekstur breska hersins. Landbúnaðarpólitíkin á Íslandi er dýrari fyrir íslenska skattborgara en breski herinn er fyrir breska. Og hvaða áhrif halda menn að svona pólitík hafi á þá atvinnustarfsemi, sem við búum við í landinu, þegar 10% af ríkistekjunum eru notaðar til þess að halda uppi fölsku verðlagi hjá afurðum einnar einustu atvinnugreinar?

Auðvitað getur þetta ekki haldið áfram. Við getum ekki haldið áfram að auka niðurgreiðslur og útflutningsbætur um 70–80% á hverju einasta ári á sama tíma og aukning framkvæmdaútgjalda er að stöðvast. Og hvað gerist þá? Hvað gerist þegar farið verður að vinda ofan af þessari hættulegu stefnu? Hvaða áfall verður það ekki fyrir þá atvinnugrein sem um áraraðir hefur þrifist á því að 10% af samanlögðum tekjum ríkisins hafa verið notaðar til að halda uppi fölsku afurðaverði frá þeirri einu atvinnugrein? Hvað verður þá um það fólk í landinu sem þarf að byggja afkomu sína á því að sú atvinnugrein geti haldið áfram? Hvaða Íslendingur er reiðubúinn t.d. að borga það verð, sem þarf að fást miðað við rekstrargrundvöll landbúnaðarins í dag, fyrir þær afurðir sem hann framleiðir? Hvaða launþegi á Íslandi væri reiðubúinn að borga fyrir mjólk, kjöt og smjör kannske tvöfalt það verð sem hann þarf nú að rétta yfir búðarborðið? Hann gerir þetta í dag. Hann borgar þetta afurðaverð. Hann borgar helminginn af því í sköttum, helminginn þegar hann kaupir afurðina hjá kaupmanninum. En auðvitað getur þetta ekki haldið áfram til eilífðarnóns. Auðvitað getum við ekki látið útgjöldin hækka, til þess að halda uppi fölsku afurðaverði þessarar atvinnugreinar, um 80% á hverju einasta ári og stöðvað framkvæmdir hins opinbera til þess að svo megi verða. Og hvað verður þá um framleiðendur íslenskra landbúnaðarafurða, þegar þeir þurfa að fara að aðlaga sig breyttum aðstæðum vegna þess að þjóðin getur ekki meir?

Hafa menn áttað sig á því að á næsta ári er ráðgert að verja miklum fjárhæðum af almannafé í fjárfestingarframlög í hefðbundnum landbúnaði, til að auka framleiðslu atvinnugreinar sem framleiðir um það bil 20–24% að magni umfram þarfir þjóðarinnar, 97 millj. kr., í fjárfestingarframlög í þessa atvinnustarfsemi sem munu skila aukinni framleiðslu. Og hvað kostar sú framleiðsla, sem nú þegar á sér stað, þjóðina í formi útflutningsuppbóta? 323 millj. kr. á næsta ári. M.o.ö., 420 millj. kr. af aflafé þjóðarinnar á næsta ári munu fara til þess að auka fjárfestingar í hefðbundnum greinum landbúnaðar, sem kallar að sjálfsögðu á aukna framleiðslu annars vegar, og til þess að standa undir kostnaðinum af offramleiðslunni hins vegar. Framlög til húsnæðis- og félagsmála á sama ári eiga samtals að nema 397 millj. kr., 30 millj. kr. lægri upphæð. Þetta er herkostnaðurinn, herra forseti. Ef menn bæta svo þar að auki niðurgreiðslunum við, sem vissulega gagnast framleiðendum landbúnaðarafurða þó að þær séu fremur hugsaðar til þess að ná einhverjum árangri að knýja niður kaupgjald almennings um skamma hríð, ef við bætum niðurgreiðslunum líka við þessa fjárhæð, þá eru heildarútgjöldin vegna þessa á næsta ári orðin 1 milljarður 259 millj. 606 þús., á sama tíma og samanlögð heilbrigðismálaútgjöld þjóðarinnar eru 1 milljarður 259 millj. 485 þús. kr. eða því sem næst sama upphæð. Rekstur landbúnaðarins kostar okkur jafnmikið og samanlögð heilbrigðismálaútgjöld þjóðarinnar, og er þá aðeins átt við fjárfestingarframlögin en alls ekki önnur framlög til búnaðarmála, sem ekki koma fram í síauknu afurðamagni sem framleitt er hverju sinni.

Lánsfjáráætlun er ekki enn komin, það er rétt. Saga ríkisfjármála er því tæplega hálfsögð og húsnæðismálin eru meðal þess sem bíður óútkljáð þangað til lánsfjáráætlun kemur fram. Hins vegar eru á kreiki sögur í ríkiskerfinu um lántökuáform ríkisstj. um allt að 6 milljarða kr. í erlendu fé á næsta ári. Hæstv. ríkisstj. segir að viðskiptahallinn sé alvarlegasta vandamál í íslenskum þjóðarbúskap nú. því er spáð að viðskiptahalli nemi rösklega 10% af þjóðarframleiðslu á yfirstandandi ári eða 3 000 millj. kr. Af hverju stafar þessi viðskiptahalli? Helmingurinn, 1 500 millj. kr., er vegna halla á vöruskiptajöfnuði við útlönd og stærsti þátturinn í þeim halla stafar af innflutningi fiskiskipa. Á yfirstandandi ári hefur orðið um 14% magnaukning á innflutningi fiskiskipa. Hallinn á vöruskiptajöfnuðinum upp á 1 500 millj. kr. stafar því að langmestu leyti af þeirri stefnu sem kennd hefur verið við formann Framsfl. í skipakaupmálum, af Steingrímskunni. Hún er búin til af honum. Hinn helmingur viðskiptahallans stafar af halla á þjónustujöfnuði, 1 500 millj. kr. Og hvað er það? Það eru vaxtagreiðslurnar af erlendu lánunum sem hæstv. ríkisstj. hefur tekið. Hallinn á þjónustujöfnuði er vegna vaxtagreiðslna á erlendum lánum. Stærsti þátturinn í hallanum á vöruskiptajöfnuði er vegna Steingrímskunnar í innflutningi fiskiskipa. Síðan kemur hæstv. ríkisstj. og segir: Þetta er vandamál sem við ekki ráðum við, þetta er vandamál sem ytri aðstæður hafa skapað.

Á næsta ári er áætlað að verði 5.5% viðskiptahalli. Það er ekki gert ráð fyrir að neinn halli verði þá á vöruskiptajöfnuði. Til þess að stöðva hann hefur verið gripið til 10% kauplækkunar, til að koma í veg fyrir það að almenningur hafi efni á að kaupa innflutta vöru. Þannig á að stöðva hallann á vöruskiptajöfnuðinum. Allur viðskiptahallinn á næsta ári á að koma fram í þjónustujöfnuði. Hvar? Í vaxtagreiðslum. Allur áætlaður viðskiptahalli á næsta ári stafar af vaxtagreiðslum af lánunum sem ríkisstj. hefur tekið. Allur áætlaður viðskiptahalli við útlönd á árinu 1983 er þannig bein afleiðing af lántökustefnu núv. ríkisstj. Það er engin tilviljun að ríkisstj. hefur aukið erlendar skuldir þjóðarinnar um 50% í erlendum gjaldeyri þau þrjú ár sem hún hefur setið. Þessi lántökustefna veldur því að á næsta ári verður 5.5% viðskiptahalli, sem allur er tilkominn vegna vaxtagreiðslna á þjónustujöfnuði.

Í þriðja lagi, hver er skattamálastefna þess frv. sem hæstv. fjmrh. leggur fram? Á yfirstandandi ári, árinu 1982, er launahækkun áætluð 52%. Á því ári hafa eignarskattar einstaklinga hækkað um rúmlega 69%, eða 17% umfram launahækkun. Samkv. fjárlagafrv. næsta árs er áætlað að eignarskattar hækki um 60%. En launahækkanir eiga aðeins að verða um 34% kaupmáttarsamdráttur ráðstöfunartekna á bilinu 6–18%. Hvað um tekjuskatt einstaklinga? Nettóálagning tekjuskatts einstaklinga hækkar um 70% á yfirstandandi ári á sama tíma og laun hafa ekki hækkað nema um 52%. En það er áformað að halda enn lengra áfram á árinu 1983. Þá á að hækka tekjuskatt einstaklinga um 55% á sama tíma og kauphækkanir eru ekki áformaðar nema um 34% og samdráttur ráðstöfunartekna áætlaður 6–18%. Á yfirstandandi ári hækkaði sjúkratryggingagjald um 66% á sama tíma og laun hækkuðu um 52%. Á næsta ári á að hækka sjúkratryggingagjaldið um 51% á sama tíma og kaupmáttur á að minnka um 6–18%. M.ö.o., í skattamálum heldur ríkið áfram að strengja á klónni. Í þeim erfiðleikum sem nú er við að etja í þjóðarbúskapnum leggur ríkisvaldið engan skerf fram á móti launafólki, heldur þvert á móti. Á sama tíma og ríkisstj. framkvæmir launalækkanir með lögum og áformar 6–18% kaupmáttarminnkun á næsta ári eykur ríkisvaldið skattheimtuna á almenning í landinu og framkvæmir þannig viðbótarskerðingu. Ríkisvaldið kemur ekki til móts við almenning, sem þarna á að þola launaskerðingu, heldur eykur það með skattamálastefnu sinni þá kaupmáttarskerðingu sem almenningur verður að horfast í augu við.

Hæstv. fjmrh. segir að þetta fjárlagafrv. sé kreppufrv. Það er engin kreppa sjáanleg á skrifstofum ráðherranna. Af hverju ekki? Vegna þess að það eru allt aðrar reglur látnar gilda um ráðherrana sjálfa, útgjöldin á skrifstofum þeirra heldur en er ættað að gilda gagnvart öðrum í þessu fjárlagafrv. Á s.l. ári hækkuðu fjárframlög til skrifstofu forsrh. um 90% á sama tíma og aðrir urðu að sætta sig við 20–30% hækkun. Nú verða aðrir að sætta sig við 30–40% hækkun, en forsrh. fær 52%. M.ö.o., aðeins einu ári eftir að forsrh. skammtaði sinni eigin skrifstofu þrefalt meiri hækkun fjárframlaga en mikilvægustu þjónustustofnanir ríkisins þurftu að sætta sig við fylgir hann sókninni eftir með því að skammta skrifstofu sinni á næsta ári 20–30% meiri hækkun en aðrir fá. Það er ekki kreppa á skrifstofunni hjá Gunnari.

Hvað um menntmrh. og hæstv. ráðh. Ingvar, sem Ríkisútvarpið kallaði Helgason, þekkti ekki betur sinn æðsta yfirmann? Á síðasta ári hækkuðu fjárveitingar til skrifstofu menntmrh. næstum því tvöfalt á við það sem aðrir þurfa að sætta sig við. Nú ætlar ráðh. sjálfum sér og skrifstofu sinni 55.6% hækkun fjárframlaga á sama tíma og aðrir verða að sætta sig við fjórðungi minna. Háskólinn væri ekki að kvarta ef hann fengi sambærilega afgreiðslu og menntmrh. ætlar sjálfum sér. Það er ekki kreppa á skrifstofu menntmrh. (Gripið fram í.) Að vissu leyti, það má vel vera. Hún kemur þó ekki fram í fjárframlögum. Hitt er svo aftur á móti allt annað mál, hvort aukin fjárframlög geta bætt úr þeirri kreppu.

Hæstv. landbrh. tvöfaldaði á yfirstandandi ári framlagið til skrifstofu sinnar. Nú hyggst hann fá fjórðungs meiri hækkun á næsta ári en aðrir eiga að fá. Rekstrarliðir á skrifstofu hans eiga að hækka um 60% á sama tíma og aðrir verða að sætta sig við 30. Það er ekki kreppa hjá hæstv. landbrh.

Hvað um formann Framsfl., hæstv. sjútvrh.? Hæstv. fjmrh. sagði hér áðan að það væri almenn stefna í frv. að ráða ekki nýtt fólk til starfa nema brýna nauðsyn bæri til. Það ber brýna nauðsyn til á skrifstofu sjútvrh. því að þar á að ráða fólk. Það ráðslag leiðir til þess að hæstv. sjútvrh. fær fjórðungi meiri hækkun í sitt rn. en aðrir verða að sætta sig við. Það er ekki kreppa h já Steingrími, hvorki í sjávarútvegsmálum né á skrifstofunni.

Hæstv. dómsmrh. er þó stórtækari en þeir allir því að hann skammtar skrifstofu sinni 64.7% hækkun á meðan aðrir verða að sætta sig við 40%. Það þætti ekki ónýt fyrirgreiðsla hjá ýmsum þeim stofnunum sem hæstv. dómsmrh. stjórnar. Þar er kreppa, en ekki á skrifstofunni hjá honum, enda er maðurinn að fara í prófkjör.

Hvað um hæstv. félmrh., sem segir að nú verði launafólkið að herða sultarólina af því að það sé kreppa í þjóðfélaginu? Hvað skyldi vera um hans skrifstofu að segja? Hann fékk á yfirstandandi ári tæplega tvöfalt meiri hækkanir en menn fengu almennt í ríkiskerfinu. Núna fær hann 53.5% hækkun á framlagi til skrifstofu sinnar á meðan aðrir verða að sætta sig við hækkanir á bilinu 30–40%. Þar af hækkar rekstrarkostnaður skrifstofu ráðh. um tæplega 65%. Húsnæðisstofnun verður að sætta sig við 33% hækkun. Byggingarsjóður ríkisins verður að sætta sig við 41.5% hækkun. Þeir eru tæplega hálfdrættingar á við ráðh. sjálfan.

Hæstv. ráðh., formaður Alþb., hefur líka aðra skrifstofu. Hann hefur skrifstofurnar tvær. Skyldi vera kreppa á þeirri skrifstofu, í heilbr.- og trrn.? Ekki aldeilis. Þar hækka framlög á komandi ári um 67.6% á sama tíma og ríkiskerfið verður að sætta sig við 40%. Og hver er skýringin á því? Jú, af þeim fáu stöðum, sem á að ráða í til ríkisins á næsta ári, fær hæstv. félmrh. eina. Hann þarf að ráða sér hagræðingarráðunaut, enda hækkar framlag til reksturs skrifstofu hans á næsta ári um lítil 71%. Ég held að það sé algert met hjá öllum ráðherrum samanlögðum og hinum veitir ekki af hagræðingarráðunaut. En á sama tíma og rekstrarkostnaður ráðh. hækkar um 71% verða ríkisspítalarnir að sætta sig við 54%, Þroskaþjálfaskólinn við 50%, Eftirlaunasjóður aldraðra við 48%. Þar er kreppa, en ekki í rn. h já honum Svavari. Þar er engin kreppa.

Hæstv. iðnrh. slær að sjálfsögðu öll met eins og hans var von og vísa. Hann réði á skrifstofu sína í fyrra tvo nýja starfsmenn, enda hefur verið feikilega mikið að skrifa þar eins og allir þm. hafa fengið nasasjón af. Menn hafa ekki tíma, þó að þeir leggi saman nótt og dag, til að lesa allt það sem skrifað er í iðnrn. En það er ennþá meira skrifað í ár því að hæstv. ráðh. ætlar að ráða sér einn mann í viðbót við alla hina. Og honum duga ekki 53% eins og félmrh. Honum duga ekki 50% eins og landbrh. Nei hann fær 61%. Almennur rekstur hjá honum hækkar um 66.2%. Lánasjóðir iðnaðarins, sem eiga að halda atvinnuveginum gangandi sem hann telur sig vera í forsvari fyrir, þeir verða að sætta sig við 33% hækkun á framlögum. En ráðh. sem rekur þetta fær 66%, nákvæmlega tvöfalt meiri hækkun heldur en atvinnuvegurinn sem hann stjórnar. Það er kreppa í iðnaði, en það er ekki kreppa hjá iðnrh.

Herra forseti. Í meira en heilan áratug hafa þeir flokkar sem ráðið hafa ferðinni í íslenskum stjórnmálum fylgt hreinni rányrkjustefnu, ekki á einu sviði heldur öllum. Rányrkjustefnan hefur ekki bara komið fram í rányrkju gróðurlendis, í rányrkju fiskistofna, heldur í rányrkju á öllum afkomu- og lífsmöguleikum fólks og þjóðarheildarinnar. Spariféð hefur verið brennt á báli. Húsnæðislánakerfið er lagt í rúst. Kjarasamningar eru leystir upp með lögum. Umsömdum kaupmætti er hrundið. Misrétti hefur verið haft sem afsökun fyrir nýjum skattálögum án þess þó að kjörin hafi verið jöfnuð. Afrakstri síaukins vinnuálags þjóðarinnar er sóað í arðlausar Kröflufjárfestingar. Lánstraust okkar erlendis er misnotað og framtíð barnanna okkar er veðsett utanlands. Nýkrónan hefur á 20 mánuðum verið gerð að verðlausri mynt. Voldugir aðilar í þjóðfélaginu eru gerðir ábyrgðarlausir á athöfnum sínum og ríkisvaldið heldur gjaldþrota fyrirtækjum gangandi með gjöfum af almannafé.

Þegar atvinnulífið riðar núna til falls og íslenska þjóðin reikar í spori undan þeim skuldaklyfjum, sem þessi rányrkjustefna hefur hlaðið á bak barna landsins, þá birta þessi öfl ríkisstj. nýjan boðskap. Og hver er sá nýi boðskapur? Þeir heimta nýja skatta, nýja kauplækkun, mestu kauplækkun sem nokkurn tíma hefur orðið í einni svipan í allri Íslandssögunni. Hvaða árangri mun þessi kauplækkun skila? Engum. Áhrif hennar verða runnin út í sandinn á fyrstu þremur mánuðum ársins 1983, því að þá þarf gengið að falla um 5.6% á hverjum einasta mánuði, og eigi það ekki að koma fram í stórvaxandi verðbólgu mun ríkisstj. við þær aðstæður grípa til sömu aðgerða og hún hefur nú gripið til, að taka út 8–10% af verðbótum á laun, eins og fjmrh. boðar að gert verði í þeirri launamálastefnu sem frv. er byggt á.

Þessi rányrkjuöfl verður að fara að leysa af hólmi. Þetta ráðslag dugar ekki lengur. Þjóðin hefur ekki lengur efni á að láta þessa menn ráðskast með framtíð sína og barna sinna. Staðreyndin er sú, að það dugar ekki að halda áfram þessari kauplækkunarpólitík. Við verðum að grípa til kerfisbreytinga, breyta því kerfi sem skapar þessi vandamál á 6–8 mánaða fresti. Markmiðið með slíkum breytingum á að vera að leysa úr læðingi verðmæti, sem nú fara í súginn sökum rangrar stjórnunar, sem gætu nýst öllum almenningi til tafarlausra lífskjarabóta ef stefnu yrði breytt.

Í öðru lagi eigum við að grípa strax það tækifæri sem felst í því að við Íslendingar erum í hópi fárra útvaldra þjóða, sem eiga ærinn auð í ótæmandi orkulindum, ef menn bara þora að nota þennan auð. Og í þriðja lagi eigum við að opna fólki nýjar leiðir til úrræða og áhrifa og láta ábyrgð fylgja þeim áhrifum sem fólk getur fengið með þeim hætti.

Þetta þarf að gera í fyrsta lagi með því að gerbreyta þeirri fjárfestingarstefnu sem fylgt hefur verið og leggja áherslu á tækniframfarir í fiskiðnaði, fullnýtingu sjávarafurða, nýjar og arðbærar greinar landbúnaðar, nýiðnað og orkuframleiðslu í stórum stíl, svo að loksins komi að því að verðmæti fjárfestinga fari að skila sér í bættum lífskjörum og fjölbreyttara atvinnulífi.

Í öðru lagi þarf að afnema útflutningsbótakerfið í áföngum og breyta því verðábyrgðarkerfi sem fylgt er gagnvart framleiðendum landbúnaðarafurða.

Í þriðja lagi þarf að koma á verðtryggingu sparifjár og breytaverðtryggingu lána þannig að greiðslubyrði aukist aldrei umfram vísitöluhækkanir á kaupi.

Í fjórða lagi þarf tafarlaust að stöðva skuldasöfnunina erlendis og gera þjóðarátak til að gera upp óreiðuskuldir rányrkjustefnunnar, sem ella munu leggjast með fullum þunga á bök barna okkar og hefta möguleika þeirra í framtíðinni.

Í fimmta lagi þurfum við að taka upp nýja framfærsluvísitölu sem mælir rétt samkv. neyslukönnunum sem gerðar eru á fárra ára fresti. Verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur verða síðan að semja um það með hvaða hætti þau ætla að miða verðtryggingu launa við þessa nýju vísitölu.

Í sjötta lagi þarf að koma á fót samspili launa, skattkerfis og trygginga, afkomutryggingu heimila, þar sem þjóðin ábyrgist hverjum þegni ákveðna lágmarksafkomu sem sé trygging fyrir mannsæmandi lífskjörum.

Í sjöunda lagi þarf að gerbreyta íslenska skattakerfinu. Við þurfum að taka upp virðisaukaskatt í stað söluskatts, við þurfum að afnema tekjuskattinn í núverandi mynd og við þurfum að bylta tollakerfi okkar til einföldunar og um leið afnema sjálfvirknina í ríkisútgjöldunum.

Í áttunda lagi þurfum við að stuðla að skipulagðri valddreifingu á öllum sviðum með auknu sjálfsforræði sveitarfélaga, með afnámi einokunar á ýmsum þáttum í útflutnings- og innflutningsverslun, með því að stuðla að frjálsari samningsgerð ábyrgra þjóðfélagsafla og með því að koma á fót atvinnulýðræði.

Að endingu þurfum við að afnema þessa óskráðu bakábyrgð ríkisins á illa reknum atvinnufyrirtækjum, sem hefur kostað þjóðarbúið ómældar fjárhæðir á umliðnum árum. Við þurfum að afnema óskráða bakábyrgð ríkisvaldsins á ábyrgðarlausum athöfnum stjórnenda í atvinnulífinu og skammsýnum ákvörðunum sem ríkisvaldið á enga aðild að.

Þetta eru úrræði sem eru varanleg og munu þess vegna skila árangri. Þetta eru úrræði um kerfisbreytingu í stað þeirra kauplækkunarstefnu sem rányrkjuöflin hafa fylgt á undanförnum árum en engum árangri hafa skilað.

Fjárlagafrv. það sem nú er til umr. er einn þátturinn í framlengingu þessarar rányrkjustefnu. Að því mun Alþfl. ekki standa.