04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2501 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

214. mál, varnir gegn mengun frá skipum

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Samgn. hefur fjallað um frv. til laga um framkvæmd alþjóðasamninga um varnir gegn mengun frá skipum. Nefndin er sammála um að mæla með samþykkt frv. með breytingu, sem birt er á sérstöku þskj., þ. e. að 1. gr. frv. orðist svo, með leyfi forseta: „Ráðh. þeim sem fer með siglingamál er heimilt að setja reglur til að framfylgja alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og fjalla um mengun frá skipum.“ Þarna er nánast um að ræða breytingu á orðaröð en enga efnisbreytingu. Greinin hljóðaði áður þannig, með leyfi forseta: „Ráðh. þeim sem fer með siglingamál er heimilt að setja reglur til að framfylgja alþjóðasamningum um mengun frá skipum, sem Ísland er aðili að“. Mönnum þótti það heldur óeðlileg orðaröð og því er þessi brtt. flutt, herra forseti.