04.11.1982
Sameinað þing: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (232)

1. mál, fjárlög 1983

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Umræður um þetta kreppufrv. hæstv. fjmrh. að fjárlögum fyrir næsta ár eru nú orðnar nokkuð langar og yfirgripsmiklar. Hér hefur margt það komið fram sem helst er um þetta mál að segja á þessu stigi. Í ítarlegri ræðu Matthíasar Á. Mathiesen hér áðan komu fram ýmis sjónarmið okkar sjálfstæðismanna svo að ég get verið stuttorður. En ég ætlaði að spyrja hæstv. ráðh. nokkurra spurninga við þessa 1. umr. og gera nokkrar örstuttar athugasemdir við þessa fjárlagasmið.

Þessa dagana hefur rignt yfir okkur alþm. ýmsum gögnum um stöðu ríkisfjármála og þjóðarbúsins. Í einni skýrslunni, skýrslu Þjóðhagsstofnunar nr. 13 frá því í mars á yfirstandandi ári segir svo um afkomu ríkissjóðs á árinu 1981:

„Á síðasta ári var þróun ríkisfjármála með þeim hætti að töluverður greiðsluafgangur var hjá ríkissjóði. Hann bætti stöðu sína við Seðlabankann. Meginástæða þessarar útkomu var mikil tekjuaukning, einkum af aðflutningsgjöldum og söluskatti vegna mikils innflutnings.“

Sama þróun hefur átt sér stað fyrstu mánuði yfirstandandi árs. Í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1983, sem nýlega hefur verið lögð fram á Alþingi, segir svo um framvindu ríkisfjármála á fyrstu mánuðum yfirstandandi árs, með leyfi hæstv. forseta:

„Framvinda A-hluta ríkisfjármála var fremur hagstæð framan af þessu ári. Tekjur jukust mun örar en útgjöld og rekstrarafkoman var því hagstæð.“ Síðan segir orðrétt: „Tímabilið jan. — ágúst í ár voru innheimtar tekjur um 50% meiri en á sama tíma í fyrra og var það umfram hækkun verðlags á þessu tímabili vegna mikillar veltu og innflutnings fyrstu mánuði ársins.“

Nú er það spurning mín til hæstv. fjmrh.: Hefur hæstv. ráðh. óskað eftir því að fá upplýsingar um það frá Þjóðhagsstofnun hversu miklar aukatekjur ríkissjóður hefur innheimt á þessum tveimur árum vegna þess sem þarna er vitnað til í þessum skýrslum? Ég held að kjarni þess að komast að sæmilegri niðurstöðu um fjármál ríkisins, eins og þau horfa við nú, sé að fá upplýsingar um þetta.

Ég hef rætt við nokkra sérfróða menn um þennan tekjuauka vegna umframinnflutnings 1981 og fyrstu níu mánuðina í ár. Þeir telja að það megi a.m.k. gera ráð fyrir að ríkissjóður hafi haft 800 millj. kr. tekjur af þessu fyrirbrigði. Og þá er ég að tala um verðlag í ár, 800 millj. kr. tekjur á verðlagi í ár. Það er að sjálfsögðu útsala á gjaldeyri og eyðsluskuldasöfnun erlendis, eins og fram hefur komið í þessum umr., sem hefur orðið til þess að auka svo mjög tekjur ríkissjóðs. Hér hefur komið fram að þjóðargjaldþrot blasir við af þessum ástæðum, enda verður viðskiptahallinn sennilega um 5 000 millj. kr. á verðlagi ársins í ár á þessum tveimur árum, eða um það bil 17% af þjóðarframleiðslu eins og hún verður í ár. Og auðvitað vex greiðslubyrði erlendra lána um allan helming af þessum ástæðum og lántökuþörfin vex gífurlega. Mér skilst á sérfræðingum Seðlabankans að í ár verði slegin löng erlend lán fyrir 3 000 millj. kr., en lánsfjáráætlun, þótt hún þætti djarfleg, sem afgreidd var á Alþingi í vor, gerði aðeins ráð fyrir 2 000 millj. kr. lántöku. (Gripið fram í: Þetta eru ansi grófar tölur.) Þetta er, hæstv. ráðh., haft eftir sérfræðingum Seðlabankans. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðh. trúir Seðlabankanum í þessu fremur en öðru, en þetta er það sem mér hefur verið sagt, að löng erlend lán, sem slegin verða í ár, nemi 3 000 millj. kr., í staðinn fyrir að lánsfjáráætlun gerði ráð fyrir 2 100 millj. kr. ef ég man rétt.

Ef þessi tekjuauki ríkissjóðs hefði ekki komið til árin 1981 og 1982 er augljóst mál að það hefði orðið stórfelldur halli á ríkissjóði, eða um svipaða upphæð, eilítið minni, kannske 700–800 millj. kr. á þessum tveimur árum. Og að sjálfsögðu hefði ríkissjóður þá þurft að fá fé til þess að standa undir þeim halla með auknum lántökum. Þess vegna tel ég það algjöra undirstöðu í ríkisfjármálunum, eins og þau horfa við nú, að gera sér sem allra gleggsta grein fyrir þessu, vegna þess að til lengdar verður að sjálfsögðu ekki hægt að bjarga ríkisfjármálum með því að safna eilíflega erlendum óreiðuskuldum og halda áfram þeim gegndarlausa innflutningi sem verið hefur.

Í forsendum þessa kreppufrv. er líka gert ráð fyrir því. — Þjóðhagsstofnun, sem gerir að vanda tekjuáætlunina, gengur út frá því að viðskiptahallinn verði að vísu áfram, en að umframinnflutningurinn hverfi, hann verði ekki lengur til. Þess vegna hækka tekjur frv. um 60% eða nálægt því, en útgjöld um 65, mikilvæg útgjöld eins og rekstrarútgjöld. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort hann geri sér grein fyrir því að við okkur, sem erum í fjvn., virðist það blasa að þessi niðurstaða sé hreinlega falin í fjárlagafrv. Það er gert ráð fyrir því, eins og ég sagði, að tekjurnar vaxi ekki nema um 60%, en ýmsir útgjaldaliðir um 65%. Þar af leiðir að skornir eru niður mjög verulega ýmsir þættir og ýmis starfsemi hjá stofnunum. Forsvarsmenn sumra stofnana hafa komist þannig að orði að ef fjárlagafrv. verði samþykkt með þessum hætti, þá blasi við stöðvun þeirra. Ég get nefnt mörg dæmi um þetta, en ég ætla ekki tímans vegna að fara að rekja þau sérstaklega. En þetta er mjög áberandi, að frv. virðist vera mjög óraunhæft miðað við ýmiss konar starfsemi sem á að halda áfram. Að sjálfsögðu væri hægt að komast af með þessar fjárhæðir, geri ég ráð fyrir, ef ríkiskerfið yrði allt saman stokkað upp frá grunni og starfsemi ríkiskerfisins þrýst inn fyrir þennan ramma. En ég óttast mjög að þessi staðreynd, að ríkissjóður hefur aðeins upp á að hlaupa á þessu ári samkv. forsendum frv. eðlilegar tekjur af innflutningi, verði til þess að farið verði að skera niður á ýmsum sviðum á mjög óraunhæfan hátt, sem ekki gangi nema með uppskurði í ríkiskerfinu. Þess vegna stefni með þessu kreppufrv. í vandræði á ýmsum sviðum í ríkisbúskapnum að óbreyttri starfsemi.

Það er athyglisvert að svona skuli vera komið í ríkisfjármálunum, því að einungis árin 1980, 1981 og 1982 hafa skattar til ríkisins hækkað um 3.1% af þjóðarframleiðslu. Þetta jafngildir 1 290 millj. kr. eða 28 þús. kr. á hverja fimm manna fjölskyldu á verðlagi fjárlagafrv. Samtímis þessu hækkuðu skattar til sveitarfélaga nokkuð eða um 0.3–0.4% af þjóðarframleiðslu. Skattahækkunin til ríkis og sveitarfélaga í tíð núv. ríkisstj. jafngildir því 31 600 kr. á hverja fimm manna fjölskyldu. Samt sem áður er útkoman þessi.

Það má segja um þetta fjárlagafrv. eins og fjárlagafrv. undanfarin ár að það hefur ákveðin megineinkenni. Þau eru í fyrsta lagi óbreytt skattastefna. Skattar eiga enn að hækka og stefnir þar í þær hæðir sem ég minntist hér á áðan. Eyðsluútgjöldin hækka. Þau hækka um 65% á sama tíma sem tekjur hækka um 60% og framkvæmdir aðeins um 28–30%. Niðurgreiðslur og millifærslur eru keyrðar fram úr öllu hófi og enn er haldið áfram árlegum niðurskurði á raungildi fjárveitinga til ýmiss konar framkvæmda.

Að síðustu er í frv. algjört stefnuleysi í viðureigninni við verðbólguna. Það er gert ráð fyrir að verðlag hækki um 42% á milli áranna 1982 og 1983. Eins og hér hefur komið fram áður, þá þýddi þetta að verðbólgan ætti að vera frá ársbyrjun til ársloka á næsta ári 20%. En verðbólgan hefur verið í ár 60% eins og menn vita.

Í ráðstöfunum ríkisstj. um áramótin, sem fengu hin háðulegustu heiti svo sem eins og drullukökugerð, eins og ég held að einn af framámönnum verkalýðshreyfingarinnar hafi kallað þessar ráðstafanir, var fyrst og fremst um að ræða auknar niðurgreiðslur. Í þessu frv. er gert ráð fyrir 806 millj. kr. í niðurgreiðslur á búvöruverði. Mér er tjáð af Hagstofu að þetta svari til þess að nú séu greidd niður 8.5% í framfærsluvísitölu. Spurning mín til hæstv. ráðh. er þessi: Er ríkisstj. búin að breyta um stefnu í þessum efnum? Það voru greidd niður 5.2% í framfærsluvísitölu þegar þessi ákvörðun var tekin um að bæta 6 prósentustigum við. Nú eru greidd niður 8.5%, en samkvæmt forsendum fjárlagafrv. þyrfti að auka mjög við þessa niðurgreiðsluupphæð til að halda þeirri stefnu sem ríkisstj. markaði þegar hún tók ákvörðun um að auka niðurgreiðslur. Mér reiknast til að þessi upphæð þyrfti að vera 1 300 millj. kr. Það kostar nefnilega 800 millj. kr. að greiða 6 vísitölustig niður miðað við forsendur fjárlagafrv. um verðlag. Ég fæ því ekki betur séð en að ríkisstj., eins og raunar var spáð, muni gefast upp í því gríðarlega niðurgreiðslufeni sem hún stefndi út í með sínum ákvörðunum í vetur. Annaðhvort er hæstv. ríkisstj. að gefast upp á þessari stefnu eða þá að það skortir hvorki meira né minna en 500 millj. kr. inn í fjárlagafrv. til þess að halda við þá stefnu sem þá var mörkuð.

Til samanburðar við þessar feiknalegu upphæðir má geta þess að í fjárlagafrv. er einungis ætlað að verja 620 millj. til byggingar nýrra brúa, vega, hafna, sjúkrahúsa, dagvistarheimila, grunnskóla og íþróttamannvirkja. En það kostar sem sagt 800 millj. kr. að greiða þessi 6 viðbótar niðurgreiðslustig sem ríkisstj. tók ákvörðun um og átti að vera og var aðalatriðið í efnahagsráðstöfunum hennar í vetur. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvað hér sé á ferð, hvort ríkisstj. muni hækka þessa upphæð eða hvort hún hafi breytt hér um stefnu.

Það er auðvitað fjölmargt í þessu fjárlagafrv. sem ástæða væri til að fara út í, en ég vil aðeins að lokum vekja athygli hæstv. ráðh. á því að Vegagerð ríkisins hefur lagt fyrir fjvn. tillögur sínar um framkvæmd fjárlaga á næsta ári, og þar kemur fram að niðurskurður að raungildi í frv. til nýrra vega og brúa, miðað við drög að langtímaáætlun sem lögð var fram hér á Alþingi í fyrrahaust, er um 136 millj. kr. samkv. útreikningum Vegagerðarinnar. Þetta mun vera um 27% raungildisniðurskurður. Í nefndinni var minnst á það að til stæði að leggja nýjan skatt á þjóðina, á bíleigendur í landinu til að brúa eitthvað af þessu bili. Ég vil taka fram að þarna er gert ráð fyrir því að tekin verði lán í Byggingarsjóði til vegagerðarinnar. Samt sem áður vantar svona háa fjárhæð upp á það að 2.2% af þjóðarframleiðslu gangi til vegamála á næsta ári. (Fjmrh.: Hvaða upphæð nefndi þm.?) Ég nefndi 136 millj. kr. sem vantar upp á það að það séu 2.2% af þjóðarframleiðslu. Þetta eru tölur frá Vegagerðinni og ég skal með ánægju gefa hæstv. ráðh. ljósrit af þessu plaggi ef hann telur að þetta sé ekki rétt. Ég er ekki með þetta hérna hjá mér. En það komu fram hugmyndir — og það er aðalmálið í nefndinni — um það, eða það var einhvers staðar á sveimi í kerfinu athugun á því að leggja nýjan skatt á þjóðina, á bíleigendur til þess að ná í nýjan tekjustofn til Vegagerðarinnar og þann veg að brúa eitthvað af því bili, sem þarna er um að ræða, en þetta bil er mjög verulegt. (Gripið fram í.) Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að lokum hvort honum sé kunnugt um þetta og hvort þetta sé stefna ríkisstj.