04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2506 í B-deild Alþingistíðinda. (2324)

Umræður utan dagskrár

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég fagna því að utanrrh. hefur leiðrétt missögn í Tímanum frá 27. febrúar s. l., hvar mátti skilja að flytja ætti gamla og úr sér gengna olíutanka yfir á svæðið í Helguvík — tanka sem margsinnis hefur verið krafist að yrðu rifnir vegna þess að íbúarnir í Njarðvíkum óttast að olían. sem í tönkunum er, leki niður í vatnsbólin, mengi vatnsbólin og geri mönnum lífið óbærilegt eftir það. En það kemur fleira fram í þessu viðtali, sem er vafalaust missögn. Þar segir að olíubryggjan í Njarðvíkurhöfn hafi brotnað. Þar hefur aldrei nein olíubryggja verið og þess vegna ekki brotnað. Hins vegar brotnaði hafskipabryggjan í Keflavík á sínum tíma og eru menn í vandræðum með að losa olíu í þeirri höfn einmitt nú.

Ég hef hins vegar verið að furða mig á því, hvað það gengur seint að efna þá samþykkt, sem Alþingi gerði varðandi þessi olíutankamál, hvar ætlast var til þess að gengið yrði fljótt í málin, og einkum vegna þess að menn óttast að núverandi ástand verði íbúunum mjög til tjóns.

Þegar þetta viðtal hafði birst var það að bæjarstjórn Keflavíkur tók málið til umfjöllunar og gerði sérstaka samþykkt. Sú samþykkt sýnir fram á þann ótta sem fyrir hendi er í byggðarlaginu, og hann er einnig í öðrum byggðarlögum þarna. En samþykktin er þannig:

„Bæjarstjórn Keflavíkur ítrekar fyrri samþykktir sínar um að olíutankar og leiðslur varnarliðsins verði fjarlægð og minnir á að með hverju árinu sem líður hrörnar þetta dót og verður auk þess sífellt meira fyrir skipulaginu. Einnig minnir bæjarstjórn á að olíubryggjan hvarf fyrir nokkrum árum og leyfi til löndunar olíu í Keflavíkurhöfn var aðeins til bráðabirgða. Ennfremur samþykkir bæjarstjórn að leita til Almannavarna ríkisins með mál þetta, þar sem nú er upplýst að þrátt fyrir samþykkt Alþingis 21. maí 1951 ætla stjórnvöld ekki að framkvæma neitt sem gagn er að á næstunni.“

Þetta var samþykkt með 8 atkv. gegn 1 — samþykkt ekki aðeins af Alþýðuflokksmönnum heldur líka framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum. Till. var jafnframt vísað til bæjarráðs og skyldi ræða við önnur sveitarfélög um málið og þá einkum við Njarðvíkurbæ.

Í grg., sem fylgdi till. og bökuð var sérstaklega í fundagerðarbækur Keflavíkurbæjar, segir svo, með leyfi forseta:

„Það er nú ljóst að utanrrh. ætlar að fara að vilja Alþb. og Olíufélagsins í svonefndu Helguvíkumáli þrátt fyrir samþykkt Alþingis frá 21, maí 1981 og marggefin fyrirheit um að beita sér fyrir skjótri lausn á grundvelli samkomulags frá 1980.

Í viðtali Tímans við ráðh. s. l. sunnudag kemur fram að núna, tveimur árum eftir að Alþingi fól honum að hraða því verki „sem kostur er,“ liggur ekkert fyrir um framkvæmdir annað en að færa tvo gamla tanka út á berg og, að því er best verður séð, leggja hringleiðslu kringum Keflavík til að fylla á þá. Eftir margra ára stríð höfðum við loforð um að losna við þetta löngu ónýta og ólöglega dót og í staðinn kæmu niðurgrafnir tankar, frágengnir að nútímakröfum. Ná er hins vegar ætlunin að flytja aðeins til á svæðinu sama draslið. Þetta verður að stöðva.

Þá er ástæða til að vekja athygli á þeim auglýsingum, sem glumdu í útvarpinu í gærkvöldi, þegar bátar okkar voru að berjast að landi í vitlausu veðri, vegna þess að verið var að losa stórhættulegan olíufarm í höfninni.

Ráðh. hefur hvað eftir annað villt um fyrir sveitarstjórnarmönnum. Alþingi skeytir svo ekki um framkvæmd sinnar samþykktar fremur en fyrr. Við teljum því lágmark að bæjarstjórn mótmæli þessum vinnubrögðum og minnum á að samkvæmt niðurstöðum. sem gengið var frá við fulltrúa NATO veturinn 1980, gátu framkvæmdir hafist strax á árinu 1981.

Að lokum látum við fylgja hér með kafla úr tilvitnuðu viðtali við utanrrh. og fylgir það í fundargerðarbókinni.

Þetta er harðorð ályktun og ber þess merki að menn óttast að ekkert eigi að gera í þessum málum. Sjálfsagt er það ekki svo, en það hefur dregist ótrúlega lengi að koma því af stað, sem fullyrt var að ætti að gera, þ. e. að flytja olíustöðina frá Njarðvík. en Njarðvík og Keflavík liggja þarna saman. og yfir í Helguvík, flytja þessa starfsemi til að forða því að vatnsbólin í Njarðvíkum mengist af olíu.

Ég vona að þessar framkvæmdir geti hafist sem fyrst. þessum rannsóknum ljúki sem fyrst og það takist að uppfylla kröfur og óskir íbúanna þarna syðra um úrbætur í þessum málum.