04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2508 í B-deild Alþingistíðinda. (2326)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti Það eru senn tvö ár síðan Alþingi hafði til meðferðar till. um mengunarhættu vegna olíugeyma hersins í nágrenni Keflavíkur og Njarðvíkur. Við afgreiðslu till. lá fyrir að kleift væri að forða mengunarhættu í byggðarlögunum tveimur á tæpum tveimur árum með því að binda endurnýjun tankanna eingöngu við einfalda endurnýjun, en tengja ekki framkvæmdirnar stækkun á eldsneytisgeymarými hersins né heldur tengja það hafnargerð á vegum Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjahers á Íslandi

Fulltrúar Alþb. gerðu þá grein fyrir því í umr. að fram hefðu komið í álitsgerðum frá þeim mönnum, sem annast hafa olíusölu og olíuþjónustu við herinn um áraraðir og rekstur olíugeymanna, tillögur um með hvaða hætti mætti endurnýja geymana og forða byggðarlögunum frá núverandi mengunarhættu, ef áhuginn væri eingöngu bundinn við mengunarhættuna, en ekki bundinn við stækkun eldsneytisgeymarýmisins eða hafnarframkvæmdir. Við gerðum grein fyrir því, að í greinargerðum frá Olíufélaginu hf. hefði komið mjög skýrt fram að slíkt væri kleift. Það er því mikill misskilningur, sem kom fram hér í ræðu hv. þm. Karls Steinars Guðnasonar, og sérkennilegt, svo ekki sé meira sagt, í ályktun bæjarstjórnar Keflavíkur. að hæstv. utanrrh. hafi farið að ráðum og tillögum Alþb. varðandi þetta mál. Margt má nú bera á hæstv. utanrrh., en ég held að þeir menn sem flytja slíkan málflutning í fullri alvöru hér í þingsölum hljóti að hafa verið staddir á tunglinu á undanförnum misserum en ekki dvalist hér á meðal okkar.

Málið er hins vegar það, að ekki hefur verið farið að þeim tillögum, sem Alþb. lagði fram í þessu máli. Það er meginástæðan fyrir því hvers vegna byggðarlögin búa enn við óbreytt ástand tveimur árum síðar. Það væri miklu nær fyrir bæjarstjórn Keflavíkur að huga að þeim tillögum. sem Alþb. flutti á sínum tíma, kynna sér þær greinargerðir og hugleiða hvort ekki hefði verið rétt hjá bæjarstjórnaryfirvöldum í þessum byggðarlögum að lýsa yfir stuðningi við þessar till. því það hefur gerst í þessu máli, sem við sögðum að mundi gerast, væri þessi leið farin, að það mundi taka áraraðir að breyta ríkjandi ástandi, vegna þess að bandarísk hernaðaryfirvöld og hagsmunaaðilar hér á landi væru búin að hengja aftan í þennan mengunarvanda áform hersins um stóraukna eldsneytisgeymaaðstöðu á Suðurnesjum og hafnaraðstöðu fyrir herinn í tengslum við herstöðina í Keflavík. Það eru fyrst og fremst þessar kröfur um stóraukna eldsneytisgeymaaðstöðu fyrir herinn á Suðurnesjum og hafnaraðstöðu fyrir Bandaríkjaher á Suðurnesjum sem orsaka þennan mikla drátt. Hefði málið eingöngu verið bundið við það, sem var talin meginorsökin, að leysa mengunarvanda íbúa á Suðurnesjum, væri nú þegar búið að leysa þetta mál. En það er eins og oft áður þegar vandi hefur steðjað að byggðarlögunum á Suðurnesjunum frá hernum og átt hefur að leysa hann, að þá hafa sameinast í eina sæng bandarísk hernaðaryfirvöld og íslenskir hagsmunaaðilar og tengt aftan í lausnir á þeim vanda alls konar óskyld mál.

Það er skoðun Alþb., að sú „lausn“ sem nú liggur fyrir á mengunarvanda olíugeyma hersins gagnvart íbúum Suðurnesja skapi byggðarlögunum stórfelldari vanda í framtíðinni en núverandi geymar. Sá vandi er einkum tvíþættur. Hann er fólginn í því í fyrsta lagi, að tekið er mjög verðmætt og dýrmætt byggingarsvæði, sem samkvæmt skipulagi átti að vera eitt helsta framtíðarbyggingarsvæði íbúa í Keflavíkurkaupstað, fyrir þessa geyma, og í öðru lagi er hættan, sem byggðarlögunum stafar af nábýli við herstöðina á tímum ófriðar og styrjaldar, mögnuð enn frekar með því að staðsetja umfangsmestu birgðastöð hersins í nágrenni við byggðarlagið sjálft.

Ég vænti þess, að í utanrrn. á Íslandi hafi menn kynnt sér þær greinargerðir hernaðarsérfræðinga, sem til eru fjölmargar, um hvers konar staðir séu líklegastir til þess að vera skotmörk á tímum styrjaldarátaka á okkar tímum. Það er niðurstaða slíkra athugana, að í átökum milli risaveldanna, og reyndar öðrum hernaðarátökum einnig, séu eldsneytisbirgðastöðvar þau skotmörk sem einna fyrst eru líkleg til að hljóta árás. Það er ósköp einföld skýring á slíku. Hún er sú, að eldsneytið er sá dritkraftur sem vígbúnaður óvinarins þarf fyrst og fremst á að halda. Séu eldsneytisbirgðastöðvarnar eyðilagðar er hernaðargeta óvinarins lömuð á svo afgerandi hátt að hann verður nánast magnlaus á eftir þótt hann hafi tæki sín og tól að mestu ósködduð. Hann hefur einfaldlega ekki það efni, eldsneytið sjálft, sem þarf til að reka vígvélarnar. Þetta er ein af þeim meginbreytingum, sem orðið hafa á samsetningu skotmarka á síðari árum, að ásamt flugbrautum, höfnum og fjarskiptastöðvum eru eldsneytisbirgðastöðvar þau skotmörk sem einna fyrst og helst munu hljóta árás ef til átaka kemur.

Það er ljóst að íbúar Keflavíkur búa í námunda við flugbrautir. Það er ljóst að þeir búa einnig í námunda við fjarskiptastöðvar. Þetta allt skapar þeim ákveðna hættu, ef til átaka kemur á styrjaldartímum og Ísland verður fyrir árás. En hitt er einnig jafnljóst. að þegar búið er að byggja inn í berg í 1 km fjarlægð eða svo frá meginbyggðarlaginu á Suðurnesjum höfuðeldsneytisbirgðastöð Bandaríkjahers á Íslandi er verið að kalla á slíka árás á þetta svæði og sprengjumagn og eyðileggingargetu að byggðarlagið sjálft mundi tortímast. Sprengjukrafturinn, sem þarf til þess að eyðileggja þessa traustu geyma, sem byggja á inn í sjálft bergið, eins og hér hefur komið fram í umr., er slíkur að hann mundi tryggja, ef svo má orða það, eyðingu byggðarlagsins sjálfs.

Ég hef lýst því yfir hér í umr. áður um þetta mál, að þótt við Alþýðubandalagsmenn séum algerlega andvígir dvöl bandaríska hersins á Íslandi áskiljum við okkur rétt til að taka fullan þátt í umr. um það, með hvaða hætti framkvæmdum á vegum hersins er fyrir komið hér á landi, einkum og sér í lagi þegar ljóst er að þær framkvæmdir geta stóraukið árásarhættuna á íslensk byggðarlög, bæi og kauptún þar sem þúsundir landsmanna búa. Ég hef lýst þeirri skoðun minni, að meðan bandaríski herinn er hér er óvit, hreint og klárt óvit, hvað sem líður skoðunum manna með eða móti dvöl hersins hér á landi, að reisa meiri háttar eldsneytisbirgðastöð í næsta nágrenni við byggðarlög þar sem búa þúsundir Íslendinga. Að því leyti er miklu skynsamlegra að hafa eldsneytisbirgðastöð í Hvalfirði eða annars staðar á Suðurnesjum, þar sem tugir km eða enn meiri fjarlægð væri til þeirra kaupstaða og kauptúna þar sem þúsundir landsmanna búa. Ég segi það hreint út, að það er mikill ábyrgðarhluti af hálfu þeirra íslensku ráðamanna, sem eiga að gæta hagsmuna Íslendinga við ákvörðun um framkvæmdir af þessu tagi, að samþykkja slíka staðsetningu geymanna, að samþykkja að varanleg og meiri háttar eldsneytisbirgðastöð, tengd hafnaraðstöðu, sé reist í næsta nágrenni við þúsunda manna byggðarlög hér á landi. Ég fullyrði að í Bandaríkjunum eða öðrum hernaðarveldum mundi slíkt aldrei gerast, vegna þess að þar eru ráðamenn svo kunnugir þeirri hættu sem felst í fyrirkomulagi slíkra hluta að þeir myndu aldrei samþykkja slíka staðsetningu.

Nú er það að vísu rétt, að Íslendingar eru svo fjarri öllum hernaðarhugsunarhætti að menn leiða ekki að þessu hugann hér, en ég hef þó búist við því. að a. m. k. þeir sem styddu dvöl bandaríska hersins hér vænt búnir að laga sig svo að þeim afleiðingum. sem fylgja dvölinni, að þeir væru farnir að gera ráð fyrir að þar sem risaveldi hefur herstöð getur komið til átaka og stórátaka, stórárása hins risaveldisins. Það er eitt af grundvallarlögmálum nútímahernaðar að risaveldin stefna fyrst og fremst árásargetu sinni á hernaðarbækistöðvar hvors annars. Nú eiga sér stað sérstakar viðræður milli risaveldanna tveggja vegna þess að menn viðurkenna slíkt eðli vígbúnaðarkapphlaupsins á undanförnum árum.

Ég vil þess vegna nota þetta tækifæri til að koma þeim tilmælum í fullri einlægni og einurð á framfæri við fulltrúa annarra flokka, að hvað sem líður deilum manna um veru bandaríska hersins hér á landi ræði menn nú á nýjan leik hvað felst í þeirri staðsetningarákvörðun sem tekin hefur verið. Það er að vísu rétt, sem hæstv. ráðh. hefur sagt, að ekki er stefnt að því að í byrjun verði reistir nema tveir nýir tankar á þessu svæði. En það er ljóst að í þeim áætlunum, sem lagðir hafa verið fram, er stefnt að því að reisa fleiri tanka og það er stefnt að því að reisa höfn af þeirri stærðargráðu að hún geti tekið við meiriháttar eldsneytisflutningum. Þar með væri búið að reisa í nígrenni við þúsunda manna byggð á Suðurnesjum stærstu eldsneytisbirgðastöð sem Bandaríkjamenn hafa aðgang að í nágrenni við herstöðvar sínar á norðlægu Norður-Atlantshafi, í þeim heimshluta sem hernaðarafstaða Íslands miðast fyrst og fremst við. Og ég fullyrði aftur, að í heimalandi þeirra hermanna sem hér dvelja mundi engum stjórnvöldum detta í hug að samþykkja slíka staðsetningu.

Sem betur fer tel ég að Helguvíkur málið, eina og það hefur löngum verið nefnt, sé ekki á enda runnið enn. Það hafa ekki öll stjórnvöld veitt það samþykki sem þarf áður en hægt er að hefja framkvæmdir. Skipulagsyfirvöld, þau hin æðstu hér í þessu landi, eiga eftir að fjalla um þetta mál, og áður en framkvæmdir geta hafist þurfa fleiri aðilar en hér hafa tekið þátt í umr. eða verið vitnað til að samþykkja þær fyrir sitt leyti. Þess vegna er ekki öll nótt úti enn í þessu efni, og það mun gefast tími síðar á þessu ári til að reyna að fá menn til að átta sig rækilega á að það er þjóðarnauðsyn að menn fari aðra leið til lausnar þeim mengunarvanda, sem núverandi staðsetning geymanna hefur skapað, en þá leið sem stóreykur þá hættu sem byggðarlögunum á Suðurnesjum er brúin af dvöl bandaríska hersins og hefur það í för með sér að bandaríski herinn fengi umfangsmeiri hafnaraðstöðu hér á landi en menn hafa löngum talið ráðlegt að veita honum.

Ég vona að þótt menn hafi ólíkar skoðanir á því hvort bandaríski herinn eigi að vera á Íslandi eða ekki beri menn gæfu til þess að ræða af fullri hreinskilni hvað er skynsamlegt varðandi þá hættu sem landsmönnum er óhjákvæmilega búin af því að hafa herinn hér í landinu. Menn hafa náð um það samstöðu að forða þjóðfélaginu frá óeðlilegum áhrifum af dvöl bandaríska hersins. Þegar fyrirrennari hæstv. utanrrh. tók þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að breyta leyfisveitingum varðandi samskipti bandaríska hersins við Íslendinga sameinuðust allir nefndarmenn í utanrmn., fulltrúar allra flokka, um að mótmæla þeirri ákvörðun og ráðh. dró hana til baka. Ég vona varðandi þetta mál að fulltrúar allra flokka setjist niður og skoði með opnum huga hvers konar ákvörðun það er sem hér er verið að knýja á um að verði framkvæmd og kanni rækilega þær aðrar leiðir til lausnar á þessari mengunarhættu, sem bent hefur verið á, og sameinist um að finna leið sem í senn getur komið til framkvæmda á skömmum tíma og hefur það í för með sér að hvorki umsvif né árásarhætta verði aukin vegna dvalar bandaríska hersins hér á landi.