04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2330)
Umræður utan dagskrár
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það hefur greinilega komið fram í þessum umr. að þeir sem eru stuðningsmenn þessarar lausnar á olíugeymavandamálum hersins, sem er kennd við Helguvík, treysta sér alls ekki út í neinar málefnalegar umr. um það, hvaða afleiðing þessi staðsetning hernaðarmannvirkjanna hafi. Slíkar umr. hafa ekki farið fram og það er athyglisvert að íslensk yfirvöld hafa ekki, svo mér sé kunnugt um, leitað til neinna óháðra sérfræðinga hérlendis eða erlendis til að meta hvort staðsetning eldsneytisbirgðastöðva af þessu tagi og hafnarmannvirkja í þágu hennar sé í þágu svokallaðra varnarhagsmuna fólksins, sem býr í Keflavík og Njarðvík, eða ekki. Ég er viss um það, eftir þeim kynnum sem ég hef af nýjustu ritum hernaðarsérfræðinga um eðli skotmarka í styrjöld á okkar tímum og á næstu árum og áratugum, að niðurstaða slíkrar athugunar væri sú, að þessi staðsetning væri ekki í þágu varnarhagsmuna fólksins sjálfs. Það er athyglisvert að þeir sem tala mest um varnir Íslands og nauðsyn þess að hafa hérna varnarlið, eins og síðasti ræðumaður hv. þm. Karl Steinar Guðnason, eru ekki reiðubúnir að skoða hvaða afleiðingar þetta hefur fyrir varnarhagsmuni fólksins sjálfs. (KSG: Það er búið að skoða alls staðar.) Það er ekki búið að skoða það neitt. Þetta er aumingjalegt frammíkall hjá þm. sem veit að þessi hlið málsins þolir ekki skoðun.
Hv. þm. Karl Steinar Guðnason var að kvarta yfir því að seint hefði gengið með framkvæmdir. Það er alveg rétt, sem hæstv. utanrrh. sagði áðan, að það lá ljóst fyrir, þegar þessi áætlun um Helguvíkurframkvæmdirnar var kynnt, að hún mundi taka 6–7 ár. Og það sýnir best hvað bæjarstjórn Keflavíkur og hv. þm. Karl Steinar Guðnason hafa lítið vitað um þetta mál þegar þeir koma nú og fara að fjargviðrast yfir því að þetta sé ekki búið. (Gripið fram í: Alþingi gerði ályktun.) Alþingi gerði ályktun, það er alveg rétt, en það lá fyrir í þeim gögnum, sem þá voru kynnt hæstv. Alþingi, að þetta mundi taka a. m. k. 6–7 ár og væri í fyrsta lagi hægt að byrja á framkvæmdum á árinu 1983.
Það er satt að segja fagnaðarefni að hv. þm. Karl Steinar Guðnason skuli hafa afhjúpað jafnrækilega hvað lítið hann veit um þetta mál. Ályktun bæjarstjórnar Keflavíkur er satt að segja hneyksli. Ég get sagt það þó hæstv. utanrrh. þurfi embættis síns vegna að vera kurteisari í orðavali og kjósi að segja ekkert um hana vegna þess að hann sé ekki búinn að sjá hana. Orðavalið og röksemdafærslan á þessari ályktun sýnir best hve mikill skortur á málefnalegri umfjöllun um þetta mál ríkir í þeirri ágætu stofnun sem þetta lét frá sér fara. Auðvitað vita allir að orðalagið „flutningur mannvirkja“ er iðulega notað um að byggja nýtt í stað eldra á öðrum stað. Það er almenn málvenja í þessu landi. Að láta sér detta í hug að þar með sé verið að gefa út stefnuyfirlýsingu um að það eigi að taka núverandi tanka og setja þá annars staðar sýnir bara best á hvers konar stigi málið er í hugum þeirra sem stóðu upp hér utan dagskrár til að spyrja ráðh. sérstaklega að því. Ef það eitt var tilefnið held ég nú að hugarástandið hjá Alþfl.-þm. fyrir Reykjaneskjördæmi sé sérkennilegt.
Meiri hluti Alþingis hefur ákveðið að annað af risaveldunum skuli hafa hér í landinu víðtæka hernaðaraðstöðu. Ég er andvígur þeirri skoðun, en ég tel engu að síður nauðsynlegt að metið sé hverju sinni hvort þær tillögur sem frá risaveldinu koma um framkvæmdir þjóni svokölluðum varnarhagsmunum íbúa hér á landi eða ekki. Auðvitað er hægt að koma aðstöðu hersins fyrir hér á margvíslegan hátt. Þótt hæstv. núverandi utanrrh. hafi, eins og hann hefur ítrekað hér, eingöngu leyft geymarými á þessum nýja stað, álíka að stærð og það geymarými sem fyrir er, hefur verið mörkuð þarna stefna. Það hefur verið stigið veigamikið skref sem vísar inn í framtíðina og gerir þeim sem með þetta embætti fara síðar miklu auðveldara að stækka umsvifin og reisa enn öflugri birgðastöð á þessum stað og knýr einnig á um að þrýstingurinn af hálfu Bandaríkjanna á að svo verði verður mun meiri en ella — ég tala nú ekki um ef þarna verður einnig reist höfn.
Það er alveg rétt, að þessar umr. eru ekki vettvangur til að fjalla ítarlega um þetta mál, en það eru þó ýmsir þættir, sem eru óræddir í þessu efni, t. d. það, hver er eignaraðilinn að hugsanlegum hafnarmannvirkjum sem þarna verða reist. Er það bandaríski herinn og er það ætlunin að bandaríska hernum verði þannig afhent til eignar veigamikið hafnarmannvirki á þessum stað? Þannig mætti nefna ýmsa fleiri þætti.
Það er mikill misskilningur, sem kom fram hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni, að afstaða æðsta yfirvaldsins í skipulagsmálum. hæstv. félmrh., hver sem hann svo er á hverjum tíma, skipti engu máli í þessu efni og það sé ekki hægt að beita því stjórnvaldi í samræmi við það sem viðkomandi ráðh. telur skynsamlegast, ef hann er á annarri skoðun en heimamenn. Hv. þm. Kjartan Jóhannsson, bæði þegar hann var ráðh. og síðar, hefur hvað eftir annað lýst því yfir að sjútvrh. eigi að hafa aðra skoðun á skipakaupum en heimamenn. Þótt heilt byggðarlag, jafnvel hver einasti maður, óski eftir því að fá að kaupa nýjan togara hefur hv. þm. Kjartan Jóhannsson hvað eftir annað lýst því yfir að sjútvrh. eigi að neita slíkri beiðni. Það er því sérkennilegt að sami þm. stendur hér upp og segir að ráðh. skipulagsmála eigi ekki að hafa sama stjórnarfarslega rétt og hann hefur krafist hér á Alþingi hvað eftir annað að ráðh. sjávarútvegsmála taki sér. Það er alveg ljóst að ráðh., skipulagsmála hefur fullan rétt til að fjalla um ýmsa þætti þessa máls.
Ég vil að lokum, herra forseti, endurtaka það sem ég hef áður sagt: Þetta mál er ekki komið í höfn. Það á ennþá eftir að fjalla um það af réttum aðilum. Síðar á þessu ári mun það verða tekið til meðferðar. Þá er það von mín, að þeir sem ábyrgð bera á lífi og öryggi íbúa Suðurnesja fjalli ekki um þann þátt málsins af álíka léttúð og hv. þm. Karl Steinar Guðnason gerði áðan.