04.03.1983
Neðri deild: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2526 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)
22. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. meiri hl. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hl. hv. félmn., sem mælir með því að frv. verði samþykkt, en það felur það í sér að lækka fasteignagjöld af sumarbústöðum. enda eru sumarbústaðir aðeins notaðir hluta af árinu. Það er óþarfi að fara fleiri orðum um þetta mál, en ég vil vekja athygli á því að undir nál. skrifa sex af sjö nm. hv. n., en þrír þeirra með fyrirvara. Hv. þm. Alexander Stefánsson skilar séráliti. Ég leyfi mér að benda á að í hans áliti kemur það fram að réttara sé að létta álögum af sumarbústaðaeigendum með því að fella niður gjald til sýsluvegasjóðs af sumarbústöðum. Um þetta var rætt í n., en meiri hl. taldi að það væri sérstakt mál og ætti ekki heima sem brtt. við það frv. sem til umr. var og umfjöllunar í nefndinni.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, en vænti þess að deildin samþykki frv. eins og það liggur fyrir.