04.03.1983
Neðri deild: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2527 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

22. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Hv. 5. þm. Suðurl. boðar skrifl. brtt. Hv. 4. þm. Vesturl. tekur til máls. Ég vil benda hv. 5. þm. Suðurl. á að umr. mun vera að ljúka og hann á þess kost að flytja brtt. við 3. umr. Ef till. verður ekki komin fram áður en þessari umr. lýkur mundi hún verða tekin til 3. umr.