04.03.1983
Neðri deild: 52. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2557 í B-deild Alþingistíðinda. (2384)

130. mál, málefni fatlaðra

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt. Ég vil benda á það að á undanförnum árum hafa margir aðilar í þessu þjóðfélagi talað um þessi mál sem sín sérmál og að mínu mati sýnt í því mikla sýndarmennsku. Þegar þetta mál er hér til afgreiðslu í Nd. Alþingis, þetta mikla og þýðingarmikla mál fyrir fatlaða, þá láta þeir sem ábyrgð hafa á málinu þau boð út ganga að þeir megi ekki vera að því að sitja þingfundi til þess að veita því brautargengi. Ég óska eftir því við forseta að það verði staðfest í þingskjölum hverjir eru hér viðlátnir til þess að mál þetta náist fram og að fram fari atkvgr. með nafnakalli.