04.03.1983
Efri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2558 í B-deild Alþingistíðinda. (2404)

156. mál, orkulög

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Hér mun víst um neðrideildarmál að ræða. Iðnn. fjallaði um þetta mál. Smávægilegar breytingar voru gerðar á frv. í Nd. Eins og hv. þingdeildarmönnum er kunnugt fjallar frv. fyrst og fremst um niðurfellingu aðflutningsgjalda og niðurfellingu söluskatts af borverkum. Í öðru lagi gerir frv. ráð fyrir því ef jarðborun reynist árangurslaus, að heimilt sé að fella niður endurgreiðslu lána til Orkusjóðs. Þetta eru þær tvær meginbreytingar sem frv, felur í sér. Iðnn. var samstiga í þessu máli og leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd.