08.11.1982
Neðri deild: 8. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (242)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég verð að segja að mér hreinlega ofbýður að hlusta á þetta. Hæstv. ráðh. á að stjórna menntamálum í þessu landi. Þaðan berast þær fregnir næstum því daglega, að þær stofnanir, sem undir hann eru seldar, séu komnar í algjöra neyð. Hann er spurður hér hvaða tillögur hann hefur að gera. Hann hefur ekkert fram að færa nema almennt og innhaldslítið raus. Hann hefur engar tillögur sjálfur að gera. Hann segir bara: Ég verð að treysta á Alþingi. — Og hvað óskar hann eftir að Alþingi geri? Ekkert, engin ósk, engin stefna og engin skoðun. (Gripið fram í.) Mér ofbýður að hlusta á málflutning eins og hér fór fram áðan.
Í fyrsta lagi um það sem hæstv. menntmrh. nefndi smámál: Það er ekkert nýtt, að þóknanir sem mönnum eru greiddar fyrir nefndarstörf komi eftir á; þegar nefnd hefur lokið störfum eða ef nefnd situr lengi að störfum komi kannske ein þóknun á ári fyrir þau störf sem hafa verið innt af hendi. Við erum ekki að kvarta yfir þessu.
Þetta gengur jafnt yfir alla og þetta er almenn regla í ríkisbúskapnum. En átti menn sig á þessu: Hér er um það að ræða að hæstv. menntmrh. óskar eftir því við einn þingflokkanna að hann tilnefni mann til að fara í vinnu fyrir ráðh. að endurskoðun ákveðins máls. Þessi maður er búsettur utan Reykjavíkur. Til þess að geta komist til þessa verks, sem hann er beðinn að vinna af hálfu ráðh., er hann sjálfur búinn að leggja fram úr eigin vasa í ferðakostnað og dvalarkostnað hér í Reykjavík 8 þús. kr. Þetta er venjulegur launamaður, sem hefur sjálfsagt ekki úr miklu að moða. Hann er búinn að leggja fram úr eigin vasa 8 þús. kr. til þess að komast á þessa fundi, sem hann er beðinn um að sækja af hæstv. ráðh. Hann fær engin svör í ráðuneytinu þegar hann biður um að fá endurgreiddan þennan útlagða kostnað. Hann þarf að borga með sér til að fá að starfa fyrir hæstv. ráðh. Það er ekki um það að ræða að maðurinn sé að kvarta yfir því að hann fái ekki laun eða greitt fyrir þau verk sem hann vinnur. Maðurinn fær ekki greiddan útlagðan kostnað, flugför og uppihald hér í Reykjavík, og er búinn að leggja úr eigin vasa fram mánaðarlaun eða meira til þess að komast suður til að vinna fyrir ráðh. En hæstv. ráðh. segir: Þetta er bara smámál. Ég er of mikill karl til að svara svona fyrirspurnum.
Herra forseti. Þetta yfirlæti hæstv. ráðh. er fyrir neðan aflar hellur. Sá ráðh. sem kallar svona mál smámál er smámenni. Og það segi ég, og býst við að ég tali þar fyrir hönd okkar þm. Alþfl.: Við höfum aldrei fyrr þurft að eiga í svona samskiptum við ráðh. eða ráðuneyti. Ég veit engin eldri dæmi þess, að menn utan af landi, sem við höfum skipað til ákveðinna starfa samkv. beiðni ráðh., hafi ekki fengið greiddan ferðakostnað meðan þeir urðu að starfa fyrir viðkomandi ráðh. Þetta er eina dæmið sem ég þekki um slíkt. Og ég er sannfærður um að við þm. Alþfl. verðum ekkert ginnkeyptir fyrir því, nema hæstv. menntmrh. lagi þetta smámál, að tilnefna menn til vinnu fyrir hann og ráðuneyti hans, því að hann getur ekki einu sinni séð um að menn fái greiddan þann kostnað sem þeir verða að leggja fram úr eigin vasa til þess að komast til vinnunnar. Ég krefst þess af hæstv. ráðh. hér og nú, að hann myndi sér skoðun á þessu máli og það í snatri og hann gefi fyrirheit um að þetta verði lagfært ella er ekki um annað að gera fyrir viðkomandi mann en stefna hæstv. ráðh. Þau mál sem eru smámál í augum þessara karla geta verið stórmál fyrir launþega sem eiga hlut að máli. Það er ekkert smámál fyrir slíkt fólk, hvort það þarf að gefa með sér mánaðarlaun meðan það starfar fyrir hæstv. menntmrh. Ingvar Gíslason eða ekki.
Alþingi hefur sett ákveðin lög um fræðslumál. Námsgagnastofnun er einn af þeim aðilum í þjóðfélaginu sem á að framkvæma þessi lög. Fjárhagsástæður þessarar stofnunar eru nú þær, að það fjármagn sem henni er ætlað á fjárlögum næsta árs mun ekki nægja fyrir öðru en launakostnaði fastráðinna starfsmanna og til þess að geta framkvæmt þá útgáfustarfsemi, sem átti að framkvæma á s.l. ári, en varð þá að fresta. Engin ný útgáfustarfsemi getur því átt sér stað á næsta ári. Aðstæður þessarar stofnunar eru nú orðnar þær, að hún getur ekki tryggt að fólk á skyldunámsstigi á Íslandi fái í hendurnar þau námsgögn sem því ber að fá lögum samkvæmt. Hæstv. menntmrh. er spurður um hvað hann hafi til málanna að leggja, hverjar séu tillögur hans, hver séu hans tilmæli til Alþingis eða ríkisstj. Hann hefur ekkert svar að gefa, ekki neitt. Hann segir bara: Ég verð að treysta á að alþm., fjvn. og Alþingi lagfæri þetta. — En hverjar eru tillögur ráðh.? Hvað biður hann um? Það fengust engin svör við því. Ég hef aldrei horft né hlustað á menntmrh. Íslands í hlutverki eins og hæstv. ráðh. Ingvar Gíslason leikur nú.