07.03.1983
Efri deild: 59. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2582 í B-deild Alþingistíðinda. (2448)
Umræður utan dagskrár
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs hér utan dagskrár til að fá að bera fram stutta fsp. til hæstv. samgrh., en nú gerist stutt eftir þingtímans og þess vegna óhægt um vik að koma fyrirspurnum á dagskrá í Sþ.
S. I. föstudag varð sá atburður að dýpkunarskip Vita- og hafnamálastofnunar sökk hér úti á Faxaflóa í mjög slæmu veðri. Þetta skip, dýpkunarskipið Gretti, átti að nota allvíða í sumar. Nú verður það ekki gert og þess vegna er ljóst að skapast mun erfitt ástand í allmörgum höfnum þar sem ætlunin var að nota þetta afkastamikla tæki til framkvæmda. Því vildi ég spyrja hæstv. samgrh. hvort horfur séu á að unnt sé að bjarga skipinu, þ. e. að ná því upp þaðan sem það liggur, eða hvort það sé á meira dýpi en svo að slíkt sé framkvæmanlegt.
Í öðru lagi vildi ég spyrja hvaða áhrif þetta óhapp muni hafa á framkvæmdir við hafnargerð hér á landi í sumar, og sömuleiðis, ef ekki reynist tæknilega unnt að bjarga skipinu þaðan sem það nú er, hvort gerðar hafi verið eða muni verða gerðar á næstunni ráðstafanir til að afla nýs dýpkunarskips.
Ennfremur mætti um það spyrja hér að lokum, vegna þess að við þetta hafa allmargir starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar haft atvinnu, hvort þetta óhapp muni leiða til fækkunar starfsliðs þar eða til uppsagnar.
Ég held, herra forseti, að það sé óþarfi að hafa um þetta fleiri orð að sinni.