07.03.1983
Neðri deild: 53. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2649 í B-deild Alþingistíðinda. (2468)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Ingólfur Guðnason:

Herra forseti. Ég verð í upphafi máls míns að láta í ljós ánægju mína yfir því að hv. flm. þessa frv. til stjórnskipunarlaga á þskj. 367 skuli nú vera öllu fastari í sessi en við 1. umr. málsins, þegar þeir vart sáust hér í þingsölum. Þeir hafa eins konar vaktaskipti í kvöld og er það vel.

Þessi umr. er með allsérstæðum hætti og einkennandi fyrir það, hve mikið mál er hér talað um lítið frv. Þeir sem hafa haft þolinmæði til að hlusta á umr. gætu haldið að hérna væri um stórmál að ræða. Einn kvöld- og næturfundur er þegar búinn að vera um málið og nú er klukkan farin að halla í 12 nokkuð og mér sýnist að hér stefni í næturfund um þetta sama mál.

En hvaða mál er svo til umr.? Hvaða mál er það sem er svona áríðandi að ræða á kvöld- og næturfundum til að koma í gegnum þetta ágæta þing? Skyldu menn vera að ræða um að bjarga þjóðarbúskapnum eða eru menn að ræða hér um atvinnuvegi þjóðarinnar, vanda þeirra og björgun? Er verið að ræða hér einhvern þjóðarvoða? Er sjálfstæði þjóðarinnar í hættu, þannig að hér þurfi að hafa kvöld- og næturfundi um þetta mál, eða er kannske styrjöld í aðsigi? Hvað skyldi fólk almennt halda þegar það sér þinghöllina okkar uppljómaða? Hér hlýtur mikið mál að vera á ferðinni. Mér þætti ekki ólíklegt að fólk hugsaði sem svo: Aumingja mennirnir, hvað þeir leggja mikið á sig fyrir þjóðarhag, því að eitthvað mikið hlýtur nú að vera að gerast.

En hvað er að gerast? Jú, við erum að ræða frv. til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Það er frv. upp á fjórar greinar. Þetta eru allmikil skjöl og eitthvað hlýtur að standa á öllum þessum blaðsíðum, sem eru 29. Eitthvað hlýtur nú að felast í þessu. Jú, viti menn, lagafrv. er fjórar greinar. Síðan eru grg. og fskj., töflur og einhverjir útreikningar, lesmál og tölur, sem ekki eru hér til umr., nákvæmlega ekki neitt, og varða málið ekki neitt. Þetta lesmál og allar þessar tölur er málefni sem e. t. v. einhvern tíma verða til umr. hér í þingsölum og þá rædd af öðrum mönnum að meira eða minna leyti en sitja þetta hv. þing. En hvað hvetur þá menn til að vera hér dag og nótt og ræða þetta mál og ræða um fjölgun alþm. um þrjá? Það er nú aldeilis. Jú, reyndar felst þarna kosningaaldur. Hann skal nú lækkaður úr 20 árum í 18 ár. Hvað veldur því að það er svona bráðnauðsynlegt að koma þessu máli hér í gegn að fjölga alþm. um þrjá kynnu nú menn að spyrja. Er þjóðinni að fjölga svona óskaplega mikið? Við gætum skilið að það þyrfti að fjölga þm. ef þjóðin væri orðin 1, 2 eða 10 millj. Sem betur fer fjölgar þjóðinni nokkuð, en ekki svo geysilega mikið að það þurfi að fjölga þm. þess vegna.

Þá er það önnur spurning: Danir hafa ákveðinn kvóta á ferkm. Þá kynnu menn að halda: Erum við að apa eftir Dönum? Er landið að stækka þau ósköp að við þurfum að fara að fjölga þm.? Jú, sem betur fer hefur landið líka stækkað. Við höfum fengið Surtsey og dálítið af hrauni í Vestmannaeyjum síðan 1959 og okkur er sagt að landið sé alltaf að gleikka, stækka, að það komi upp hraun í miðju landi og það sé að lengjast. En ekki hef ég samt trú á því að það sé að stækka þau ósköp að það valdi þessum 60 þm. erfiðleikum að komast og hitta kjósendur sínar.

Það er sem sagt ekkert sem knýr á um fjölgun þm. frá því sem nú er. Hér er verið að breyta breytinganna vegna.

Frsm., hv. formaður þeirrar stjórnarskrárnefndar sem báðar deildir hafa kosið og mælti hér fyrir frv., hv. þm. Matthías Bjarnason, ræddi nokkuð þessa þriggja manna fjölgun alþm. og taldi það í raun og veru ekki mikið mál miðað við fjölgun í ýmsum öðrum starfsstéttum. Þetta er alveg satt og rétt. En þá er það spurningin: Hefur fjölgun t. d. bankamanna, eins og hann mun hafa nefnt, gert nauðsynlegt að fjölga þm. þjóðarinnar eða kallað á fjölgun í rn. eða starfsfólks við sjúkrahús? Ég sé ómögulega að það geti verið ástæðan. En ég spyr þá: Hver er ástæðan? Það er kannske ástæðan að verið er að breyta breytinganna vegna.

Þeir menn sem um þetta hafa mest fjallað, þ. e. formenn stjórnmálaflokkanna og stjórnarskrárnefndir beggja deilda, hafa talað um að það hafi sérstaklega gott samkomulag náðst um allan málatilbúnað á ýmsum stigum málsins, bæði þegar formenn flokkanna höfðu það til umfjöllunar og eins þegar stjórnarskrárnefndir deildanna höfðu það til umfjöllunar. Að sjálfsögðu er ekki neitt nema gott að segja um gott samkomulag.

Herra forseti. Það er einlæg von mín og ósk að þetta góða samkomulag megi ríkja milli allra þessara hv. alþm. þegar þeir koma saman og ræða hin eiginlegu vandamál þessarar þjóðar, að það nái út fyrir það þegar verið er að fjölga þm. um þrjá. Vissulega er það von mín og ósk og ég veit að hv. alþm. taka undir það. — Ég þakka hv. þm. Magnúsi Magnússyni fyrir að hann situr hér á verðinum fyrir hönd flm. frv.

Hér eru allmargar brtt. komnar fram við þetta mál. Ég ætla ekki að eyða tíma þingsins í að ræða þær allar lið fyrir lið, en ég ætla að geta um eina. Það er brtt. á þskj. 469 frá þeim Stefáni Valgeirssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni. Það læðist að mér sá grunur að flm. frv. til stjórnskipunarlaga á þskj. 367 finnist ekki allt í sómanum í jafnrétti milli þegna þessa lands. Í grg. með frv. á bls. 3, þ. e. tölul. 2 segir svo, með leyfi forseta:

„Þingflokkar Alþb., Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl., sem að frv. þessu standa, hafa auk þess orðið ásáttir um eftirfarandi:

..2. Að beita sér fyrir aukinni valddreifingu og virkara lýðræði samhliða afgreiðslu nýrrar stjórnarskrár. M. a. fái sveitarfélög meira sjálfsforræði og þannig verði völd og áhrif landsmanna allra í eigin málum aukin, óháð búsetu þeirra. Jafnframt munu þingflokkarnir beita sér fyrir sérstökum aðgerðum til þess að jafna félagslega og efnalega aðstöðu manna þar sem mismununar vegna búsetu gætir helst.“

Það læðist að manni sá grunur, að flm. þessa frv. þyki ekki allt í sómanum með jöfnuð milli þegnanna. Þarna eru fögur orð og fögur fyrirheit. Ýmsir menn hér á hv. Alþingi hafa sagt í umr. um þetta mál að kosningarréttur og aðstaða þegnanna til þjónustu og annars, sem lýðveldið lætur þeim í té væru óskyld málefni. Kosningarréttur væri alveg sérréttur. Annar réttur þegnanna væri alveg óviðkomandi mál. Þess vegna dettur mér í hug að þeir ágætu flm. frv. til stjórnskipunarlaga á þskj. 367 sjái þarna leið til þess að koma í framkvæmd þessum ágætu fyrirheitum, sem ég vitnaði til hér áðan, og þeir gætu sæst á að samþykkja nú og setja sem stjórnarskrárákvæði brtt. þeirra hv. þm. Stefáns Valgeirssonar og Ólafs Þ. Þórðarsonar, að 77. gr. stjórnarskrárinnar orðist svo, og með leyfi forseta vil ég lesa brtt. upp:

„Skattamálum skal skipa með lögum.

Við ákvörðun skatta á tekjur og eignir skal gætt jafnræðis þegnanna, þannig að til lækkunar komi sérstakur kostnaður vegna búsetu, eftir því sem nánar verður ákveðið í lögum.“

Þetta ákvæði gæti sem best gilt þangað til hin fögru ætlunarverk flm. frv. til stjórnskipunarlaga væru að fullu komin í gildi. Ég held sem sagt að þeir mættu taka fagnandi þessari brtt., og ég trúi ekki fyrr en ég sé það að þeir muni ekki greiða henni atkv., svo afdráttarlaus er þeirra viljayfirlýsing í grg. með frv. til breytinga á stjórnskipunarlögum.