08.03.1983
Efri deild: 60. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2656 í B-deild Alþingistíðinda. (2482)
226. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli
Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Ég er áhugamaður um byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli og svo er um marga aðra alþm. Rökin fyrir nauðsyn þess að ný flugstöð sé byggð á Keflavíkurflugvelli, hinum eina millilandaflugvelli, eru tvenn og hafa margoft verið rakin.
Í fyrsta lagi er flugstöðvarbyggingin, sem nú er notuð, orðin gömul, svo gömul að hennar endingartími er í raun og veru útrunninn fyrir æðilöngu síðan, þ. e. sá tími sem í öndverðu var miðað við að þessi bygging gæti staðið. Þó að reynt hafi verið að hressa upp á þessa byggingu hvað eftir annað og þó að aukið hafi verið við hana ýmsum viðbyggingum þá er það svo eins og hv. flm. minntist á, að hún er nú orðin hættuleg. Það gæti orðið þarna eldsvoði t. d. og gætu hlotist af því alvarleg slys ef margmenni væri í byggingunni. Hún er ennfremur ákaflega óþægileg bæði fyrir farþega og fyrir starfsfólk sem vinnur í stöðinni. Þegar af þeirri ástæðu er því þörf á að byggja nýja flugstöð.
Í öðru lagi hefur það verið áhugamál Íslendinga að hægt væri að skilja að hernaðarflug, sem fer fram á þessum flugvelli, og farþegaflug. Eins og allir vita var um það samið fyrir allmörgum árum, 1974, að þessi aðskilnaður skyldi eiga sér stað. Auðsætt var að slíkur aðskilnaður gat ekki farið fram nema flugstöðin væri byggð á nokkuð öðrum stað og utan þess vallarsvæðis sem nú er um að tefla. Þess vegna var augljóst að það mundi kosta verulegt fé að gera veg og hlöð fyrir flugvélar að nýrri byggingu, leggja leiðslur og margt fleira í því sambandi.
Bandaríkjamenn tóku að sér þegar árið 1974 að annast útikostnað sem hlytist af því að flugstöðin væri flutt. Síðan var það svo árið 1978, að ég ætla, að þeir féllust auk þess á að taka þátt í kostnaði við sjálfa bygginguna, greiða allt að helmingi byggingarkostnaðarins en aldrei yfir 20 millj. dala. Að sjálfsögðu kostar þessi framkvæmd öll mikið fé. Það sem Bandaríkjamenn leggja fram varðandi það sem er utan dyra er mun hærri fjárhæð en þeir leggja til byggingarinnar sjálfrar er til kemur. Gegn því að leggja þetta fé til byggingarinnar var á það fallist að þeir fengju gömlu bygginguna. Það eru því nokkurs konar skipti sem þar koma til greina. Ég lít ekki á þennan samning sem neinn góðvildarsamning. Ég lít á þetta sem algerlega gagnkvæman samning. Það eru gagnkvæmir hagsmunir af því fyrir Íslendinga og Bandaríkjamenn að þessi skilnaður á milli farþegaflugs og þeirra hernaðarumsvifa sem þarna fara fram eigi sér stað. Þess vegna er það samkv. minni skoðun á allan hátt eðlilegt að Bandaríkjamenn taki þátt í þessum kostnaði eins og samið hefur verið um.
Bygging nýrrar flugstöðvar er mikið fyrirtæki og hún kostar mikið fé. Það voru uppi hafðar nokkrar mótbárur í öndverðu gegn þeirri byggingu sem upphaflega var hönnuð. Hún þótti of stór í sniðum og of dýr. Það var eitt af mínum fyrstu verkum sem utanrrh. að gangast fyrir nýrri hönnum á þessari byggingu með það fyrir augum að lækka kostnað við hana og minnka hana allverulega. Ég hygg að nærri láti að við þá endurhönnun hafi hún verið minnkuð um nálægt þriðjung. Samt sem áður hefur sumum þótt hún of dýr og of fyrirferðarmikil og ég hef ákveðið að láta nú fara fram endurskoðun á þeirri hönnun með það fyrir augum að reyna að draga nokkuð úr kostnaði og gera það auðveldara en ella að byggja stöðina í áföngum. Þeirri endurskoðun er enn ekki lokið, en henni verður vonandi lokið innan tíðar. Ég tel að þegar þannig hefur verið gengið frá sé nokkuð erfitt að færa þetta meira saman en þar er áætlað. Þess verður að gæta að þetta er flugstöð fyrir millilandaflug og það er ákaflega þýðingarmikið fyrir framtíð þess flugs hvernig búið er að þeim farþegum sem koma til landsins, sem millilenda hér. Ég hygg að það verði hægt að búa ákjósanlega að þeim í þeirri fyrirhuguðu byggingu þó að það verði nokkuð dregið saman og hún ekki tekin öll í notkun strax.
Það kann að vera að sumum sýnist það ekki mikið atriði hvernig flugstöð lítur út og hvaða þægindi hún hefur upp á að bjóða, þegar um er að ræða flugstöð á millilandaflugvelli. Ég hygg þó að það sé álit allra, sem til þekkja, að það hafi æðimikla þýðingu fyrir farþegaflug að sú bygging sé þannig úr garði gerð að hún laði menn að í stað þess að taka þannig á móti að þeir vilji kannske helst ekki koma aftur. Þetta er í mörgum tilfellum kannske það eina sem menn sjá af landinu, svo að þetta verður með vissum hætti andlit landsins út á við, og það er vissulega ekki sama hvernig það andlit er sem snýr að komumönnum þegar þeir koma á þennan flugvöll. Þess vegna þarf ég ekki að undirstrika það með fleiri orðum að mikil nauðsyn er á því að koma upp þessari byggingu. Og ég held nú að flestir, sem í alvöru kynna sér það mál og skoða flugstöðina sem þarna er fyrir hendi, hljóti að viðurkenna að það sé nauðsyn á því. Það hafa oft verið uppi, einkanlega á hinum síðari árum, nokkrar hrakspár um millilandaflugið. Það verður að segjast eins og er að þær hafa ekki ræst. Tölur liggja fyrir um það að þegar frá eru skilin eitt eða tvö ár hefur farþegum fjölgað. Þeim hefur fjölgað á hinum síðustu árum og það er að mínu viti engin ástæða til að ætla annað en að sú þróun geti haldið áfram, ef sæmilega er búið að farþegum, sem hingað koma, og þeir geta notið hér sambærilegrar eða svipaðrar aðstöðu og þeir njóta annars staðar og þeim er kunn.
Ég hlýt þess vegna út af fyrir sig að fagna því að þessu máli skuli vera hreyft hér á hv. Alþingi. Ég hlýt að fagna framkomnu frv. um það efni. Frv. felur í sér nýmæli að því leyti að bent er á leiðir til þess að fjármagna bygginguna. Það er um allverulegar tekjur að tefla sem gætu komið til vegna þeirra tekjupósta sem taldir eru upp í 2. gr. frv. Ég hef að vísu ekki í huga hvað flugvallargjaldið er mikið, en það er gert ráð fyrir 40% af því. Hins vegar er hagnaður af fríhöfninni, eins og menn sjá í skýrslu minni sem hefur verið dreift hér, á s. l. ári nær 40 millj. og hagnaður af Sölu varnarliðseigna, sem greiddur er í ríkissjóð, fyrir utan skatta er um 8 millj., bæði beinn hagnaður og söluskattur. Lendingargjöldin hygg ég að hafi á s. l. ári numið 9 millj. kr. og er gert ráð fyrir 50% af þeim. Síðan er það svo hagnaðarhluti ríkissjóðs af starfsemi Íslenskra aðalverktaka. Sá hagnaður getur auðvitað verið breytilegur frá ári til árs, og ég skal ekki fara með neinar tölur hér í því sambandi, en stundum hefur þar þó verið um verulegar fjárhæðir að tefla. Hér er því um liði að ræða sem vissulega munar mikið um. Og þetta eru allt liðir sem út af fyrir sig má segja að eðlilegt sé að gangi til þessa verkefnis vegna þess að þeir eru allir til komnir vegna flugvallarins og starfsemi sem þar fer fram.
Eins og er rennur þessi hagnaður allur í ríkissjóð, að svo miklu leyti sem einhverjum hluta hans hefur ekki verið varið til endurbóta á þeirri flugstöð sem fyrir er. Það má þess vegna segja að það komi kannske nokkuð í einn stað niður hvort þessir tekjustofnar eru sérstaklega markaðir til þess arna eða hvort þeir renna í ríkissjóð eins og nú er og ríkissjóður standi svo undir framkvæmdum. Það er að sjálfsögðu álitamál. Ég verð að segja það að almennt er ég heldur andvígur mörkuðum tekjustofnum og vildi heldur hafa þá færri en fleiri. En það getur staðið svo sérstaklega á að það sé réttmætt og eðlilegt að beita þeirri aðferð.
Ég tel sjálfsagt og dreg ekki í efa að n. sem fær þetta mál til meðferðar muni einmitt sérstaklega skoða þessa hlið málsins. Nú er að vísu sá hængur á, að þetta frv. er nokkuð seint fram komið, og þess vegna má búast við að tími til athugunar og afgreiðslu þess verði tæplega fyrir hendi á þessu þingi. En þó gildir það náttúrlega sem endranær að vilji er allt sem þarf, og ef vilji er fyrir hendi þá er hægt að afgreiða þetta. En hvað um það, hér er farið inn á nýjar leiðir. Manni skilst að það muni ekki verða óralangt í næsta þing og þá er hægt að taka málið upp aftur. Og til þess er sérstök nauðsyn vegna þess að sú fjárveiting sem Bandaríkjaþing hafði veitt til þessarar framkvæmdar rann út s. l. haust. Hún fékkst framlengd, en aðeins til eins árs, til l. okt. í haust, og með því fororði að það var beinlínis tekið fram að þess mætti ekki vænta að hún yrði framlengd ef framkvæmdir væru þá ekki hafnar. Ef menn ætla að notfæra sér það framlag sem hér er um að ræða verða framkvæmdir þess vegna að hafa byrjað fyrir 1. okt. n. k. Það er ekki tekið fram hve miklar þær framkvæmdir þurfi að vera, svo að það er í raun og veru nægilegt að verkið sé hafið, að það sjáist að byrjað sé á því og það sé alvara í því efni.
Ég vil undirstrika það sem ég hef áður sagt að ég álít þátttöku Bandaríkjamanna í byggingu þessa mannvirkis eðlilega af því að þarna er algerlega um gagnkvæma hagsmuni að ræða. Það eru hagsmunir af því fyrir Bandaríkjamenn að geta verið út af fyrir sig og það eru hagsmunir fyrir Íslendinga að farþegaflugið sé algerlega skilið frá þeim hernaðarumsvifum sem fara fram á vellinum. Keflavíkurflugvöllur er, að ég hygg, í röð bestu millilandaflugvalla og það sæmir ekki annað en að á þeim flugvelli sé flugstöðvarbygging sem landinu getur verið sómi að.
Ég þakka flm. fyrir að hafa hreyft málinu og vænti þess að n. íhugi þá leið sem þarna et bent á. Og ég ítreka að þó að málið fái ekki afgreiðslu á þessu þingi þá er náttúrlega nauðsyn að það fái afgreiðslu á því næsta.