08.03.1983
Neðri deild: 54. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2663 í B-deild Alþingistíðinda. (2488)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs um þingsköp vegna þess að það sætir undrun að deildafundir séu á þessum tíma og leiðir hugann að því hvort starfslaust sé orðið í Sþ. Ég renni hér yfir 23 mál, sem liggja þar fyrir á dagskrá, og sakna þess þó að þar er eitt mál ekki sem ég hefði talið að hæstv. forseti deildarinnar hefði þó haft fullan hug á að kæmi til umr. og atkvgr.

Atvmn. Alþingis hefur lagt fram till. um það hvernig skuli staðið að viðræðum við Alusuisse um hækkun á raforkuverði til Íslenska álfélagsins o. fl. Og það sækir á mann sú hugsun hvort forseti sé með í ráðum um að koma í veg fyrir að þetta mál komi til atkvgr. hér í þinginu. Það vekur í það minnsta undrun ef svo hart er gengið fram með deildafundi að Sþ. er rutt til hliðar, þó að þar liggi miklu fleiri mál fyrir á dagskrá og einnig samkv. þskj. miklu yngri mál. Nú er það vitað, að þetta mál nýtur mikils fylgis hér í þinginu og brýn nauðsyn að sem fyrst verði farið í samningaviðræður, svo að sá ósómi verði stöðvaður að Landsvirkjun fái að hella að vild yfir almenningsveitur þessa lands hækkunum á raforku, eins og gerst hefur í stjórnartíð iðnrh. þegar orðið hefur um 800% hækkun frá Landsvirkjun.

Ég vil eindregið inna herra forseta eftir því hvort hann sé ósammála því sem 4. þm. Austurl. lagði svo ríka áherslu á í atvmn., að þetta mál fengi afgreiðslu hér í þinginu.