08.03.1983
Neðri deild: 54. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2668 í B-deild Alþingistíðinda. (2508)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Till. sú sem hér er verið að greiða atkv. um er ekki síst til þess að tryggja hagsmuni dreifbýlisins. Ég varð ekki var við neina aðra till. sem gæti tryggt það betur en sú till. sem hér er til afgreiðslu. A. m. k. hefur hún ekki komið fram hér í hv. deild. Ég segi já.