08.03.1983
Neðri deild: 54. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2669 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)
206. mál, stjórnarskipunarlög
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég hef áður lýst því yfir að ég harmaði það mjög að kjördæmamálíð skyldi slitið úr samhengi við mikilvæg stjórnarskrármál, mannréttindamál og jafnréttismál af öllu tagi. Ég harmaði það jafnframt og óttaðist að ef kjördæmamálið yrði tekið út fyrir þann ramma sem okkur var ætlað að fjalla um, þ. e. breytingar á stjórnarskránni, þá mundi það hafa það í för með sér að stjórnarskrárbreytingar, sem eru þessari þjóð lífsnauðsynlegar, mundu sitja á hakanum í 8–12 ár n. k. og ekkert í þeim gert. Þess vegna tók ég þá ákvörðun að koma ekki nálægt afgreiðslu þessa máls. Ég greiði ekki atkv.