08.03.1983
Sameinað þing: 61. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2691 í B-deild Alþingistíðinda. (2547)

124. mál, rannsóknir á laxastofninum

Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Atvmn. hefur fjallað um till. til þál. um eflingu rannsókna á laxastofninum. Nefndin var sammála um að mæla með samþykkt þessarar till. og þarf ekki að rökstyðja það með mörgum orðum, en það hljóta allir að vera sammála um að um leið og við erum að gera kröfur til þess að þjóðir í kringum okkur séu ekki að stunda laxveiðar og bera nánast á þær getsakir í þeim efnum, þá er eins gott að við sjálfir reynum að auka rannsóknir svo að við vitum fyrir víst hvað við erum að tala um.